Tónlistarskólinn í Garði

Tónlistarskólinn í Garði

Share

Tónlistarskólinn er til húsa í Sæborgu, en starfar í nánu samstarfi við Gerðaskóla. Kennt er á flest hljóðfæri, auk tónfræðagreina og samleiks af ýmsu tagi.

Photos from Tónlistarskólinn í Garði's post 06/06/2026

Tónlistarskólinn þakkar kærlega fyrir frábæran vetur. Njótið sumarsins og sjáumst hress og kát þegar kennsla hefst þriðjudaginn 25. ágúst!
Allar helstu upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðu tónlistarskólans.

21/05/2026

Við minnum á að síðustu tónleikar skólaársins fara fram í dag, fimmtudaginn 21. maí, kl. 17:30 í Sæborgu, sal tónlistarskólans. Tónleikarnir eru opnir öllum og öll eru hjartanlega velkomin!

19/05/2026

Við minnum á tvenna vortónleika í dag, þriðjudaginn 19. maí, í Sæborgu, sal tónlistarskólans. Fyrri tónleikarnir eru kl. 17:30, en þeir síðari, tónleikar lengra kominna nemenda, hefjast kl. 19:00. Tónleikarnir eru opnir öllum og öll eru hjartanlega velkomin!

18/05/2026

Vortónleikavika tónlistarskólans hefst í dag, mánudaginn 18. maí, með tónleikum í Sæborgu, sal tónlistarskólans kl. 17:30. Þetta eru fyrstu tónleikarnir af fernum sem haldnir verða í vikunni.

Tónleikarnir eru opnir öllum og öll eru hjartanlega velkomin!

22/04/2026

🎵 Það var mikið um að vera hjá okkur í tónlistarskólanum vikuna 13. - 19. apríl. Tónleikar á Barnamenningarhátíð, tónlistaratriði við úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar og við tókum við þátt í Nótunni - uppskeruhátíð tónlistarskóla 2026.
Nánari umfjöllun á heimasíðu tónlistarskólans!🎵

13/04/2026

Sjáumst á morgun, 14. apríl, klukkan 18:00 í Garðskagavita!
Þar munu nemendur Tónlistarskólans í Garði flytja gestum Garðskagavita söguna af Skeljaskrímslinu í tali, tónum og óhljóðum. Viðburðurinn er hluti af Skelinni, barnamenningarhátíð.

Opið er fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2025-2026 05/06/2025

Opið hús þriðjudaginn 10.júní-innritun fyrir skólaárið 2025-2026.

Opið er fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2025-2026 Opið er fyrir nýjar umsóknir fyrir skólaár 2025-2026 við Tónlistarskólann í Garði. Hægt er að koma og fá að prófa og eða fræðast um það hljóðfæranám sem við bjóðum upp á þriðjudaginn 10.júní frá kl.14-16. Einnig er hægt að koma við í tónlistarskólanum eftir sam...

Opið hús fyrir nýnema föstudaginn 27.maí 26/05/2022

Opið hús föstudaginn 27.maí kl.14-16

Opið hús fyrir nýnema föstudaginn 27.maí Opið er fyrir nýjar umsóknir fyrir næsta skólaár 2022-2023 við Tónlistarskólann í Garði. Hægt er að koma og fá að prófa og eða fræðast um það hljóðfæranám sem við bjóðum upp á föstudaginn 27.maí frá kl.14-16. Einnig er hægt að koma við tónlistarskólanum eftir sam...

22/05/2022

Flottir og skemmtilegir vortónleikar hafa verið hjá okkur í tónlistarskólanum undanfarna daga. Haldnir hafa verið nokkrir vortónleikar í Útskálakirkju og í sal tónlistarskólans og hafa fjöldinn allur af nemendum komið fram. Við höfum fengið frábæra mætingu áhorfenda sem er kærkomið í skólastarfinu. Lokahnykkurinn verður svo mánudaginn 23.maí kl. 17:30 í Miðgarði sal Gerðaskóla en þá koma fram hljómsveitir og samspil tónlistarskólans ásamt einleiksatriði. Fjölmennum í Miðgarð og njótum þess að hlusta á tónlistarfólk framtíðarinnar. Allir velkomnir!
https://tonogard.sudurnesjabaer.is/is/frettir/skolaslit-og-vortonleikar

Want your school to be the top-listed School/college?

Telephone