16/07/2025
Odd André og Haruna eru komin til landsins!
🇮🇸🇳🇴🇯🇵
Odd André Elveland er stofnandi og stjórnandi Improbasen í Osló og listrænn stjórnandi Barnadjass í Mosó. Improbasen er tónlistarstofnun sem hefur vakið athygli fyrir óhefðbundnar aðferðir við að kenna ungum börnum að spila djass eftir eyranu og spinna, jafnvel börnum sem aldrei hafa lært á hljóðfæri áður.
Aðferðirnar sem Odd André hefur þróað hafa hlotið alþjóðlega viðurkenningu en bók fræðikonunnar G**o Gravem Johansen, Children’s Guided Participation in Jazz Improvisation (Routledge, 2020), fjallar um kennsluaðferðir hans.
Haruna Koyamada er frá Kagoshima í Japan. Í Japan er mikil djassmenning og hefð fyrir því að börn byrji ung í djasstónlistarnámi. Haruna steig sín fyrstu skref í bigbandi sem heitir Little cherries og er fyrir börn allt frá yngsta stigi grunnskóla. Hún spilar á fjölda hljófðæra, meðal annars básúnu og píanó. Það er margt líkt með Íslandi og Kagoshima, meðal annars nálægðin við eldfjöll en virka eldfjallið Sakurajima gnæfir yfir Kagoshima. Haruna hefur verið búsett í Osló síðastliðin ár þar sem hún hefur tileinkað sér kennsluaðferðir Odd André og tekið þátt í kennslu í Improbasen. Haruna nær einstaklega vel til barnanna með hlýju og brosmildi.
Odd André og kennarateymi hans hafa unnið með börnum víðsvegar að úr heiminum og standa árlega að hinni alþjóðlegu hátíð Kids in Jazz í Osló en líta má á Barnadjass í Mosó sem litlu systur þeirrar hátíðar enda er Odd André listrænn stjórnandi beggja hátíða. Odd André hélt sína fyrstu vinnustofu í spuna fyrir börn árið 2017 í Norræna húsinu. Einn af þátttakendunum í þeirri vinnustofu var Jakob Leó Allansson, stóri bróðir Rakelar Elaisu sem tekur þátt í hátíðinni í ár. Honum var í framhaldinu boðið, ásamt þremur öðrum íslenskum krökkum, að taka þátt í Kids in Jazz hátíðinni í Osló. Síðan þá hafa yfirleitt verið einhverjir þátttakendur frá Íslandi á hátíðinni.
Við erum þakklát Odd André og Haruna fyrir að gefa íslenskum börnum tækifæri til að taka sín fyrstu skref í djasstónlist og upplifa alþjóðlegt tónlistarsamstarf.