02/10/2023
Alma hjá 🤍
Kontaktinformasjon, kart og veibeskrivelse, kontaktskjema, åpningstider, tjenester, stjerner, bilder, videoer og kunngjøringer fra Leiksamfélagið, Førskole, Oslo.
02/10/2023
Alma hjá 🤍
25/09/2023
Hverjar erum við?
Halldóra Kristín er bakvið miðilinn og ætlar á næstu dögum að sýna ykkur frá haustinu fyrir norðan og mögulega einhverju sniðugu föndri 🍂🧡
23/09/2023
Hverjar erum við?
Hlín er stelpukona sem heldur úti , vinnur í skóla og dundar sér við námsefnisgerð þegar börnin sofna á kvöldin
21/09/2023
skrifar:
Það er mikilvægt að börnum sé treyst fyrir eigin námi og fái frelsi til þess að læra það sem þau hafa áhuga á. Oft er talað um að skólinn sé mikilvægur liður í að undirbúa nemendur fyrir „lífið“ (sem oft er talið hefjast að skóla loknum) en nám og kennsla takmarkast ekki við skólann og skólastofuna heldur fer nám fram hvar og hvenær sem er. Í raun er heimurinn allur námið. Ef börn fá tækifæri til þess að læra að læra á náttúrulegan hátt og að læra að elska þá verður ekkert í vegi fyrir því að þau munu elska að læra. ❤️
21/09/2023
08/09/2023
.in.iceland skrifar
Skilin milli leiks og náms eiga að mínu mati ekki að vera skörp
Frjáls leikur barna er til dæmis stórkostlegt nám. Daglegt líf felur í sér óteljandi kosti til þess að læra.
Áttar þú þig á því hve mikill lærdómur er falinn í
- búðarleik barna
- því að drullumalla
- eldamennsku með foreldrum eða öðrum
- gönguferð í náttúrunni
- því að fara út í búð
- því að hjálpa til við heimildverk
- að spila
- að lesa eða hlusta á bækur
- að leika með opinn efnið við
og margt magt fleira. Það eru nefnilega námstækifæri út um allt. Það hjálpar jafnframt til við nám að börn geti tengt nám við daglegt og leik líf og skilji þannig tilgang þess betur.
Getur þú nefnt fleiri dæmi um nám í daglegu lífi hér í kommentum fyrir neðan ⬇️
07/09/2023
Sólveig hjá .in.iceland er með ykkur frá Mosfellsbæ þessa dagana. Fjallar um uppeldi, heimakennslu og hægt tempó 💚
03/09/2023
skrifar:
Við elskum haustið, litina og gleðina sem þessum árstíma fylgir ❤️. Á hverju ári föndrum við þessar ballerínur. En myndirnar finnið þið á heimasíðunni hjá .
Mælum með að þið prófið 🤩
01/09/2023
Hverjar erum við ?
Pálína Ósk eða er með ykkur um helgina frá Osló. Þið fáið að sjá útiafmæli, sveitalífið nálægt borginni og útivistardag fjölskyldunnar sem ferðafélagið heldur utan um ár hvert.
02/06/2023
Góð hugmynd hjá Færni til framtíðar
fyrir helgina ;)
Skemmtileg hugmynd fyrir helgina;)
Þetta geta allir gert og notið saman. Skrifa bréf og senda er eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi nú orðið. Verkefnið er einfalt og þið sláið margar flugur í einu höggi.
Hvort sem barnið kann að skrifa eða ekki, fær aðstoð þína við að semja bréf nú eða teiknar fallega mynd þá þori ég að veðja að ömmu, afa, færnda eða frænku eða góðum nágranna þykir vænt um að fá sendingu.
Þið fáið tækifæri til að ræða um samskipti fyrri ára og bera þau saman við samfélagsmiðla nútímans.
Þið fáið tækifæri til að njóta gæðastundar með barninu.
Þið fáið tækifæri til að fara í gönguferð - kaupa frímerkið og eða póstleggja bréfið. (setja það í lúgu hjá einhverjum)
Þið fáið hreyfingu og barnið fær hreyfingu -
þið náið jafnvel ráðlagðum dagsskammtil af hreyfingu;)
Hér er aðeins stiklað á stóru - en ávinningurinn er margþættur.
Góða helgi ;)
05/05/2023
Hrefna hjá skrifar:
Ef þig langar að fjölga útistundum barnanna í sumar þá mæli ég sannarlega með að koma sér upp aðstöðu til að drullumalla í nærumhverfi. Drullueldhús þarf ekki mikið pláss til að gefa af sér margar góðar minningar. Það þarf heldur alls ekki að vera flókið eða kostnaðarsamt - einfaldleikinn er oft bestur! Ef til vill leynist eitthvað í geymslunni eða á háaloftinu sem mætti brúka í drullumall. Er eitthvað í eldhúsinu sem er orðið lélegt eða aldrei notað? Kannski leynast gamlar gersemar hjá ömmum og öfum. Svo eru nytjamarkaðir víða sem gaman er að gramsa í.