26/09/2023
Frábær grein!
HEGÐUNARVANDI - FORVITNI OG SAMKENND
Börn og unglingar sem eiga við hegðunarvanda að etja hafa oft tamið sér viðbrögð sem þau eiga erfitt með að breyta. Mörg af þeim viðbrögðum eru lærð í gegnum aðgerðaminnið (e. procedural memory).
Við tengjumst aðgerðaminninu þegar við gerum eitthvað án umhugsunar. Við þekkjum það þegar við keyrum, hjólum, dönsum eða spilum á hljóðfæri. Þetta er sjálfvirk hegðun, færni eða skilyrt svar við aðstæðum.
Við lærum margt í gegnum aðgerðaminnið allt frá fæðingu og erfum mörg viðbrögð frá umönnunaraðilum. Hægt er að nefna getuna til að mynda augnsamband, ýmis hegðunarviðbrögð eins og hvort við séum hvatvís eða ekki, getum sagt nei á viðeigandi stöðum og hvort við forðumst óþægilegar aðstæður eða ekki. Einnig ýmsar sjálfgefnar stillingar í hegðun og hugsun, svo sem tilhneigingu til sjálfsásökunar, hvort við erum opin eða lokuð, upplifum mikla skömm eða reiði og fleiri skilyrtar stillingar sem við virðumst fara á, nánast sjálfkrafa, nánast eins og við höfum ekkert um það að segja.... og það er að mörgu leiti rétt.
Skammir og reiði annarra eru ekki gagnlegar þegar breyta þarf mynstrum aðgerðaminnisins.
Börn geta verið mjög ung þegar þau festast í sjálfvirkri hegðun sem skaða mögulega þau sjálf á einhvern hátt eða aðra. Það að barnið eða unglingurinn læri að vera forvitið um þessa hegðun sina og öðlist getu til að sýna henni mildi (í stað þess að fyllast af reiði eða skömm) getur skipt sköpum í getunni til að breyta.
Janine Fisher segir erfitt að breyta skilyrðingum aðgerðaminnisins ef við náum ekki að læra að verða forvitin um hegðunina. Forvitni og samkennd í eigin garð virkja framheilann, þar sem ígrundun og yfirvegun getur farið fram. Reiði annarra i garð hegðunarinnar virkjar hið gagnstæða – áframhaldandi sjálfvirka hegðun og auknar yfirhlaðnar tilfinningar.
Það að temja sér forvitni og samkennd dregur úr sjálfvirkum stillingum og virkjar þau svæði heilans sem tengjast ígrundun og getunni til að taka inn nýjar upplýsingar.
Það að temja sér forvitni og samkennd í eigin garð getum við lært mjög ung, þrátt fyrir að vera með ögrandi eða skaðlega hegðun.. ef og aðeins ef... einhver fullorðinn einstaklingur í kringum okkur kennir okkur það.