01/05/2026
Nýr rekstaraðili Fab Lab Vestmannaeyja
Samkomulag hefur náðst milli Þekkingarseturs Vestmannaeyja (ÞSV) og RTD Rannsókna og tækniþróunar Íslands ehf um rekstur og framkvæmd fræðslustarfsemi Fab Lab Vestmannaeyja. Með samkomulaginu tekur RTD við daglegri starfsemi smiðjunnar frá og með 1. maí 2026.
RTD Rannsóknir og tækniþróun Ísland ehf er fyrirtæki í eigu hjónanna Ingibjargar Grétarsdóttur og Frosta Gíslasonar. Fyrirtækið mun annast fræðslustarfsemi Fab Lab auk þess að veita þjónustu til fyrirtækja og frumkvöðla, meðal annars á sviði tækniþróunar, vöruþróunar, verkefnastjórnunar og samstarfsverkefna.
Frosti Gíslason hefur verið verkefnastjóri Fab Lab Vestmannaeyja frá stofnun smiðjunnar árið 2008 og hefur jafnframt leitt samstarf Fab Lab Ísland, sem er samstarfsnet Fab Lab smiðja á Íslandi, frá upphafi.
Áfram verður lögð rík áhersla á menntun, nýsköpun og opið aðgengi að Fab Lab smiðjunni í Vestmannaeyjum. Kennsla heldur áfram í góðu samstarfi við Grunnskóla Vestmannaeyja og nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum munu áfram nýta smiðjuna í sínu námi og verkefnum.
Á næstunni verða kynntar nýjar námsleiðir og námskeið fyrir almenning, fyrirtæki og frumkvöðla, með sérstakri áherslu á stafræna framleiðslu, nýsköpun og nýtingu tækni í atvinnulífi.
Stefna stjórnvalda felur í sér áherslu á að vísindi, tækniþróun og nýsköpun verði lykildrifkraftar sterks og samkeppnishæfs samfélags. Hröð þróun á sviði stafrænnar umbreytingar og gervigreindar skapar bæði tækifæri og áskoranir fyrir samfélag og atvinnulíf.
Í ljósi þess mun RTD leggja sérstaka áherslu á að þróa Fab Lab Vestmannaeyjar áfram sem vettvang fyrir nýsköpun, samstarf og hagnýtingu tækni í þágu samfélagslegra lausna, auk þess að styðja við þekkingarmiðlun, verðmætasköpun og aukna samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.