Tónlistarskóli Vestmannaeyja

Tónlistarskóli Vestmannaeyja Tónlistarskóli Vestmannaeyja er hluti af menntakerfi Vestmannaeyjabæjar. Kennt er á velflest hlj

Gjaldskrá 2021:
https://www.vestmannaeyjar.is/media/gjaldskrar-baejarins/Gjaldskra-Tonlistarskolans-2021.pdf

03/09/2026

Það er ánægjulegt að tilkynna að við getum boðið upp á söngnám í vetur. Hingað er að flytja söngkennari ásamt fjölskyldu sinni á næstu dögum og hefst kennsla fljótlega upp úr því.
Hægt er að skrá sig í söngnám og annað nám við skólann með því að smella á meðfylgjandi hlekk hér að neðan.
Nóg laust eins og er, en það getur verið fljótt að breytast.

Séra Viðar brýtur víða blöðin. Hann hefur predikað á trommur og hann er einnig fyrsti nemandinn til að taka framhaldspró...
15/05/2026

Séra Viðar brýtur víða blöðin. Hann hefur predikað á trommur og hann er einnig fyrsti nemandinn til að taka framhaldspróf á trommur í skólanum hjá okkur :)

Biggi kom sem ferskur andblær inn í skólann okkar og samfélagið í Eyjum. Hér er hann í áhugaverðu spjalli um lífið, sem ...
15/02/2026

Biggi kom sem ferskur andblær inn í skólann okkar og samfélagið í Eyjum. Hér er hann í áhugaverðu spjalli um lífið, sem er yndislegt 🥰

Birgir Nielsen hefur starfað við tónlist og kennslu um árabil og er vel þekktur í menningar- og tónlistarlífi Vestmannaeyja. Hann hlaut titilinn bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2024 og kennir nú í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Samhliða tónlistinni hefur hann á síðari árum stundað ...

Bjartey Ósk og Lovísa Ingibjörg spiluðu í dag fyrir forseta Íslands og fylgdarlið í opinberri heimsókn hans til Vestmann...
08/01/2026

Bjartey Ósk og Lovísa Ingibjörg spiluðu í dag fyrir forseta Íslands og fylgdarlið í opinberri heimsókn hans til Vestmannaeyja. Þær gerðu það með glæsibrag, eins og þeirra var von og vísa 🥰

Lúðrasveitin með sína árlegu hausttónleika um helgina. Við mælum með því að láta það ekki fram hjá sér fara.
05/11/2025

Lúðrasveitin með sína árlegu hausttónleika um helgina. Við mælum með því að láta það ekki fram hjá sér fara.

Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur sína árlegu hausttónleika nú um komandi helgi, laugardaginn 8. nóvember kl. 16:00. Tónleikarnir fara fram í Hvítasunnukirkjunni og gengið verður inn Hallarlundsmegin. Lúðrasveitin hefur starfað óslitið frá stofndegi 22.mars 1939 og hafa hausttónleik...

Það er virkilega ánægjulegt að fylgjast með gróskunni í tónlistarlífi ungs fólks í Vestmannaeyjum í dag. Allra veðra von...
15/09/2025

Það er virkilega ánægjulegt að fylgjast með gróskunni í tónlistarlífi ungs fólks í Vestmannaeyjum í dag. Allra veðra von er hluti af því, en það er hljómsveitarkeppni sem sett var á laggirnar hér á árum áður en hefur nú verið endurvakin af öflugum einstaklingum.
Hljómsveitin Þögn frá Vestmannaeyjum sigraði í keppninni um helgina. Við óskum þessum frábæru stelpum innilega til hamingju með verðskuldaðan sigur. Okkur finnst við eiga talsvert í þeim og erum afskaplega stolt af þeim.

Hljómsveitin Þögn kom sá og sigraði í hinni árlegu hljómsveitarkeppni Allra veðra von sem fór fram í Höllinni um helgina. S*x rokkbönd tóku þátt og var það hljómsveitin Þögn sem bar sigur í bítum í ár. Hljómsveitin er skipuð af s*x eyjastúlkum og þær hafa áður unnið ...

Matthías Harðarson okkar fyrrverandi nemandi og núverandi starfsmaður hefur verið ráðinn sem nýr dómorganisti. Enginn ge...
27/05/2025

Matthías Harðarson okkar fyrrverandi nemandi og núverandi starfsmaður hefur verið ráðinn sem nýr dómorganisti. Enginn gengur inn í slíkt starf án þess að hafa til þess unnið. Við óskum Matta okkar hjartanlega til hamingju með nýjan starfsvettvang. Dómkirkjan gæti ekki fengið betri mann í verkið ❤️👍

Matthías Harðarson er nýr dómorganisti, hann tekur til starfa 1. júlí. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í Dómkirkjuna og hlökkum til samstarfsins. Þökkum Guðmundi Sigurðssyni fráfarandi dómorganista kærlega fyrir samstarfið og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi. Nú skín sólin í Kvosinni- sjáumst í kyrrðarstundinni núna kl. 12.00 Séra Anna Sigríður verður gestur okkar í Opna húsinu kl. 13.00 í safnaðarheimilinu.

Tónlistarskólinn sá að vanda um tónlistaratriðin í 1.maí kaffinu.
09/05/2025

Tónlistarskólinn sá að vanda um tónlistaratriðin í 1.maí kaffinu.

„Tónlistarskólinn hefur séð um tónlistarflutning í 1. maí kaffi verkalýðsfélaganna um langt árabil. Í dag er það stéttarfélagið Drífandi sem sér alfarið um kaffið og hefur samstarf skólans og Drífanda verið farsælt og með ágætum,“ segir Jarl Sigurgeirsson, skólastjó...

Við vitum ekki alveg hversu margir bæjarlistamenn tengjast tónlistarskólanum og skólalúðrasveitinni, en þeir eru allnokk...
01/05/2025

Við vitum ekki alveg hversu margir bæjarlistamenn tengjast tónlistarskólanum og skólalúðrasveitinni, en þeir eru allnokkrir og Elísabet er einmitt einn þeirra. Svo var það náttúrulega afi hennar Hjálmar Guðnason sem stofnaði skólalúðrasveitina 1978. Við óskum Eló innilega til hamingju með titilinn hún er vel að honum komin og okkur finnst við eiga smá í henni 🥰

Í kvöld getur þú notið yndislegrar tónlistar í flutningi okkar frábæru kennara Jóhönnu Svövu og Kittyar Kovács, án þess ...
07/04/2025

Í kvöld getur þú notið yndislegrar tónlistar í flutningi okkar frábæru kennara Jóhönnu Svövu og Kittyar Kovács, án þess að borga svo mikið sem eina krónu fyrir. Bara mæta í safnaðarheimili Landakirkju rétt fyrir kl.20:00 í kvöld. Setjast niður og njóta.

Address

Vesturvegur 38
Vestmannaeyjar
900

Opening Hours

Monday 12:30 - 17:00
Tuesday 12:30 - 17:00
Wednesday 12:30 - 17:00
Thursday 12:30 - 17:00
Friday 12:30 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistarskóli Vestmannaeyja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Tónlistarskóli Vestmannaeyja:

Shortcuts

Share