Ljóstæknifélagið hefur látið í sér heyra á samráðsgátt stjórnvalda:
Samráðsgátt - Mál: S-204/2024 Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð, nr. 112/2012, vegna ákvæða um ljósvist.
Markmið félagsins er að stuðla að betri lýsingu og sjónskilyrðum og veita almenna, hlutlausa fræðslu um allt er varðar lýsingu og sjónstarf.
Færslur á þessari síðu eru ekki formleg skoðun félagsins heldur ætlað til að vekja áh
Ljóstæknifélagið hefur látið í sér heyra á samráðsgátt stjórnvalda:
Samráðsgátt - Mál: S-204/2024 Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð, nr. 112/2012, vegna ákvæða um ljósvist.
07/10/2024
Allt að gerast í ljósvist og byggingarreglugerð!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Birtan í híbýlum fólks - kynningarfundur um ljósvist Innviðaráðuneytið boðar til opins fundar um ljósvist miðvikudaginn 9. október nk. kl. 12.
13/10/2022
Sjáumst á morgun hjá SI:
Fræðslufundur FRV og SAMARK um ljósvist í mannvirkjagerð Félag ráðgjafarverkfræðinga, FRV, og Samtök arkitektastofa, SAMARK, efna til fræðslufundar um ljósvist í mannvirkjagerð föstudaginn 14. október kl. 12-13 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil vitundarvakning um ljósvist í mannvirkjum. ....
15/08/2022
Mbl fylgist með framgangi mála um tillögur að breytingu á byggingarreglugerð
„Þetta er svolítið búið að vera villta vestrið“ Starfshópur hefur verið skipaður til að fjalla um tillögur Ljóstæknifélagsins um að innleidd verði heildstæð umfjöllun um ljósvist í byggingarreglugerð. Formaður félagsins fagnar því að málið sé komið á dagskrá en telur að búið sé að hunsa þær aðferðir sem til eru...
11/07/2022
Kjarninn skrifar um dagsljós í borgarskipulagi:
Finna þarf jafnvægi í birtu og rými á milli húsa Reykjavíkurborg vinnur að leiðbeiningum um birtuskilyrði og gæði á dvalarstöðum og í íbúðarhúsnæði.
23/06/2022
Jæja! Sólin farin að láta sjá sig á köflum 🌞 allir út að góma sól og skugga!!! Vesturbær Reykjavíkur 23.06.2022 kl. 20:00
20/06/2022
Sól og skuggar á sumarsólstöðum! Hjálpaðu okkur að fanga skuggamyndir í kringum sólstöður 21.6.2022 með því að pósta myndir úr nærumhverfi þínu og merkja stað, stund og taggið okkar: Vesturbær Reykjavíkur 18.6.2022 kl 18:18
16/06/2022
Sigurvegarar íslensku lýsingarverðlaunanna 🌞 Þórður Orri fyrir Gróðurhúsið í Hveragerði og Darío fyrir Óðinstorg í Reykjavík.
Innilega til hamingju báðir tveir! Glæsileg verkefni sem keppa fyrir Íslands hönd í Norrænu lýsingarverðlaununum í Svíþjóð í haust!
15/06/2022
Fyrir þá sem ekki komust á fundinn í dag:
Mikilvægi ljósvistar verði viðurkennt í byggingarreglugerð | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun Mikil umræða hefur skapast að undanförnu um ljósvist í húsnæði á Íslandi og mikilvægi þess. Til stendur að innleiða aukin viðmið um ljósvist og skuggavarp í byggð inn í byggingarreglugerð og er HMS að vinna tillögur þess efnis um þessar mundir.