Seyðisfjarðarskóli

Seyðisfjarðarskóli Seyðisfjarðarskóli - grunnskóladeild

Svakalega lestrarkeppnin er í fullum gangi og nemendur Seyðisfjarðarskóla standa sig vel. Við fylgjumst með lestrinum og...
18/09/2026

Svakalega lestrarkeppnin er í fullum gangi og nemendur Seyðisfjarðarskóla standa sig vel. Við fylgjumst með lestrinum og skráum lesnar mínútur á Læsisappinu, bæði heimalestur og skólalestur. Á þessum fjórum dögum hafa nemendur 1. - 7. bekkjar lesið að meðaltali 80 mínútur hver.
Áfram lestur og áfram krakkar!

Ævintýralegur dagur hjá 3. bekk í Náttúruskólanum. Nemendur í 3. bekk áttu frábæran og fræðandi dag þegar þeir heimsóttu...
18/09/2026

Ævintýralegur dagur hjá 3. bekk í Náttúruskólanum.
Nemendur í 3. bekk áttu frábæran og fræðandi dag þegar þeir heimsóttu Náttúruskólann í Blöndalsbúð í Einarsstaðaskógi. Eftir að hafa gengið um skóginn var byrjað á því að fá sér hressandi ávaxtanesti undir berum himni. Dagskráin var fjölbreytt og lærdómsrík en nemendur fóru á milli mismunandi stöðva í hópum, sjá nánar á vefnum okkar.

Listasaga á miðstigiStelpurnar á miðstigi fóru upp í kletta við göngustíginn í átt að Fjarðarseli og teiknuðu hellamálve...
18/09/2026

Listasaga á miðstigi
Stelpurnar á miðstigi fóru upp í kletta við göngustíginn í átt að Fjarðarseli og teiknuðu hellamálverk. Stelpunum var útdeilt krítum og myndum af hellamálverkum sem þær notuðu til að teikna á klettana. Ef þið eruð á ferð þá geti þið skoðað kletta og steina á leiðinni og athugað hvort þið sjáið ekki einhver forsöguleg dýr eða handaför.

Í dag fóru stelpur á miðstigi upp í kletta við göngustíginn í átt að fjarðarseli og teiknuðu hellamálverk.

Svakalega lestrarkeppni 2026 byrjar formlega á morgun og við tökum að sjálfsögðu þátt.Við hvetjum alla nemendur í 1. - 7...
14/09/2026

Svakalega lestrarkeppni 2026 byrjar formlega á morgun og við tökum að sjálfsögðu þátt.

Við hvetjum alla nemendur í 1. - 7. bekk til að finna spennandi bók, njóta lestursins og standa saman sem ein liðsheild.

Áfram Seyðisfjarðarskóli, sýnum hvað við getum!

Gulur dagur á fimmtudaginn!Á fimmtudaginn, 10. september, er gulur dagur í grunnskóladeildinni. Við hvetjum alla nemendu...
08/09/2026

Gulur dagur á fimmtudaginn!

Á fimmtudaginn, 10. september, er gulur dagur í grunnskóladeildinni. Við hvetjum alla nemendur og starfsfólk til að mæta í gulum fötum eða með eitthvað gult á sér.

Með þessu vekjum við athygli á Gulum september en það er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Guli liturinn táknar von, kærleika og umhyggju.
Nánar inn á vef verkefnisins: https://gulurseptember.is/

Göngum í skólann hefst á morgun!Á morgun, miðvikudaginn 9. september, hefst verkefnið „Göngum í skólann“ og er þetta í t...
08/09/2026

Göngum í skólann hefst á morgun!

Á morgun, miðvikudaginn 9. september, hefst verkefnið „Göngum í skólann“ og er þetta í tuttugasta sinn sem það fer fram. Verkefninu lýkur formlega miðvikudaginn 7. október með alþjóðlega Göngum í skólann deginum.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í verkefninu með einum eða öðrum hætti.

Við hvetjum nemendur til að taka þátt með því að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta og stuðla þannig að heilbrigðara og öruggara skólaumhverfi.

05/06/2026

Við minnum á skólaslit Seyðisfjarðarskóla sem fara fram í kirkjunni kl. 17 í dag. Allir hjartanlega velkomnir.

03/06/2026

Visit Our Town - lokaverkefni í ensku

Nemendur í 10. bekk luku nýverið skemmtilegu lokaverkefni í ensku þar sem allur árgangurinn vann saman að gerð kynningarmyndbands um Seyðisfjörð. Markmiðið var að kynna bæinn fyrir erlendum ferðamönnum og sýna það sem gerir hann einstakan.

Í myndbandinu segja nemendur frá áhugaverðum stöðum, náttúru, menningu og upplifunum sem Seyðisfjörður hefur upp á að bjóða.

Verkefnið gaf þeim tækifæri til að æfa ensku í raunverulegu samhengi, vinna saman að sameiginlegu markmiði og nýta stafræna miðla á skapandi hátt.

Við bjóðum ykkur að horfa á afraksturinn og sjá Seyðisfjörð með augum nemenda okkar.

Flott verkefni sem nemendur á unglingastigi voru að vinna á dögunum.
13/05/2026

Flott verkefni sem nemendur á unglingastigi voru að vinna á dögunum.

Nemendur á unglingastigi unnu ljósmyndaverkefni í samfélagsfræði sem fólst í því að nemendur völdu gamlar ljósmyndir af Seyðisfirði af vefnum Sarpur.is og

Address

Seydisfjorður
710

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

470 2320

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seyðisfjarðarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Seyðisfjarðarskóli:

Shortcuts

Share

Category