MINJAR FRÁ SEINNI ÖLDUM
Umfangsmikil fornleifarannsókn fer fram í landi jarðarinnar Fjarðar við norðanverðan Seyðisfjörð. Í sumar beindist rannsóknin einkum að svæðinu norðvestan við hinn forna bæjarhól Fjarðar þar sem talið er að landnámsmaðurinn Bjólfur hafi byggt. Á síðari öldum myndaðist þar vísir að þorpi en þegar snjóflóð féll úr fjallinu Bjólfi árið 1885 fórust þar 24 menn, auk þess sem 16 hús skemmdust. Eftir snjóflóðið var svæðið einkum nýtt undir útihús og mannvirki tengd búskapnum og má þar því finna tóftir fjárhúsa, stekkja og kvíar, garðhleðslur og fleira. Sérstaka athygli vekur lítil myllutóft með aðfallsrás í Mylluholti sem hefur verið í notkun tímabilið 1800–1870 og var rannsökuð með uppgrefti í sumar. Aðrar minjar svo sem skotbyrgi og byssuhreiður sem einkenna svæðið tengjast hersetu Breta og Bandaríkjamanna og minna á varnaraðgerðir á Seyðisfirði og hlutdeild Íslands í einhverjum mestu stríðsátökum mannkynssögunnar. Mikilvægt er að rannsaka þær fáu minjar sem til eru frá snjóflóðinu 1885 og var eitt bæjarstæðanna sem urðu undir snjóflóðinu grafið upp í sumar. Vitað var að þarna væru nokkur byggingarskeið frá því fyrir og eftir snjóflóðið en við forkannanir sumarið 2020 hafði fundist mannvist fyrir ofan gjósku úr Veiðivötnum sem féll árið 1477 og var ekki búist við að finna minjar sem væru eldri en frá 17. öld.
2. ÓVÆNTIR FUNDIR
Þegar leið á ágúst tók rannsóknin hins vegar óvænta stefnu. Mannvistarlög fundust á þessu svæði frá því áður en gosið í Öræfajökli varð 1362 með tilheyrandi öskufalli. Fram komu minjar frá miðöldum og landnámsöld tengdar búsetu. Uppgrefti sumarins var framlengt og eftir því sem meira var grafið fjölgaði óvæntum fundum. Við forkannanir sumarið 2020 hafði meðal annars verið komið niður á skriðu sem talin var forsöguleg og var hún töluvert neðar en þær mannvistarleifar sem þá fundust. Við rannsóknirnar í sumar uppgötvaðist hins vegar að skriða frá því um 1400 hefur fallið yfir mun stærra svæði en talið var og ljóst varð að meint forsöguleg skriða hafði í raun ekki fallið fyrr en árið 1151. Breiddi sú skriða úr sér yfir fjölbreyttar mannvistarleifar allt aftur til landnáms.
Á síðustu vikum hefur verið grafinn upp kumlateigur á svæðinu, þ.e. grafreitur með fjórum kumlum eða heiðnum gröfum sem að öllum líkindum eru frá 10. öld.
3. FYRSTA AUSTFIRSKA BÁTSKUMLIÐ
Fyrst fundust bein manns og hests á rannsóknasvæðinu og hjá þeim gryfja sem síðan reyndist vera bátskuml. Í því kumli voru tennur úr manneskju og bein hests, spjót, bátasaumur og fleiri járngripir sem bíða greiningar. Þá hafa verið grafnar upp perlur, brot af dýrindis silfurhring og næla, sem sennilega er líka úr silfri, en hún hefur verið send á Þjóðminjasafnið til nánari greiningar. Þarna fundust einnig ýmsir minni gripir og taflmaður úr hnefatafli sem var fornt norrænt spil. Taflmenn hafa aðeins fundist í örfáum kumlum hér á landi og virðast þau vera kuml karlmanna. Algengt er að spjót finnist í kumlum karlmanna en þó hafa aðeins tvö slík fundist áður á Austurlandi. Perlur og skart hafa bæði fundist í gröfum karla og kvenna.
Þarna hefur verið búið um látinn mann í bát eins og stundum var gert. Einnig hafa reiðskjótar verið grafnir ásamt fjölda gripa en hvoru tveggja bendir til auðs og ættgöfgi. Af um 400 kumlum sem grafin hafa verið upp hérlendis eru aðeins ellefu bátskuml en þau virðast hafa verið mun algengari í Noregi en hér. Því merkilegri er fundurinn í Firði en þetta er jafnframt fyrsta bátskumlið sem finnst á Austfjörðum að undanskildu barnskumli með litlum báti sem fannst að Straumi í Hróarstungu.
Í þriðja kumlinu sem fannst við hliðina á þessum tveimur var einnig hestur og auk hans hundur. Þá eru þar mögulega bátsleifar. Í þessu kumli hafa hins vegar enn ekki fundist mannabein en það hefur orðið fyrir raski í kringum 1960 þegar rafmagnsstaur var rekinn niður í það. Engu að síður er afar merkilegt að finna þrjú kuml með hestum og að hundur skuli líka hafa verið í einu þeirra. Fjórða kumlið er nýfundið og er enn verið að grafa það upp.
4. FYRSTU ÍBÚAR SEYÐISFJARÐAR
Grafir heiðinna manna segja okkur margt um efnahag og uppruna fólksins sem settist hér að. Þetta gætu verið bein frá landnámsmönnum sem komu til Seyðisfjarðar fyrir um 1100 árum. Beinin þarfnast þó frekari rannsóknar áður en hægt verður að segja nánari deili á einstaklingunum sem þarna voru lagðir til hinstu hvílu. Freistandi er að tengja þennan merka fund við frásögn Landnámu af Bjólfi sem settist að á Seyðisfirði og bjó á bænum Firði. Vitað hefur verið allt frá því að frumrannsóknir fóru fram árið 1998 að samfelld byggð hefur verið í Firði allt frá 10. öld til þeirrar tuttugustu og gamli bæjarhóllinn er enn vel sýnilegur í landslaginu. Teigurinn með kumlunum fjórum er einungis um 100 metra frá bæjarstæðinu forna og þarna hlýtur því óhjákvæmilega að vera eitthvert samhengi. Erfitt er þó að meta sannleiksgildi Landnámufrásagna. Þar virðist oft greint rétt frá staðsetningu byggðra bóla en á hinn bóginn er mörgu sleppt og hafa stórbýli fundist hér á landi sem engar heimildir greina frá. Landnáma nefnir heldur ekki alla sem byggðu Ísland á landnámstímanum og er vert að að hafa í huga að hverjum höfðingja hefur fylgt stór hópur fólks af háum og lágum stigum: karlar, konur og börn.
5. SAMFELLD BYGGÐ Í FIRÐI FRÁ 10. ÖLD
Eftir að fyrsta kumlið fannst var tekinn könnunarskurður milli uppgraftarsvæðisins og gamla bæjarhólsins í Firði. Þar reyndust vera enn meiri mannvistarleifar nær Firði en áður voru þekktar og þó höfðu forkannanir sumarið 2020 þegar sýnt að bæjarhóllinn er miklu stærri en talið hafði verið. Í fyrra fundust búsetuminjar frá miðöldum vestan við áður skilgreindan bæjarhól undir skriðunni sem féll á bæjarstæðið um 1400 og miðaldaminjar fundust einnig norður af bæjarhólnum. Í bæjarhólnum leynast því umfangsmiklar mannvistarleifar allt aftur til landsnámstímans en hann verður samkvæmt áætlun grafinn upp næsta sumar.
6. ÁFRAM ER GRAFIÐ
Haustregnið hefur torveldað vinnu fornleifafræðinga á vettvangi síðustu vikur en framkvæmdir við varnargarðana hefjast þó bráðlega. Þótt þeir séu til varnar snjóflóðum undirstrika skriðurnar sem komið hafa í ljós við uppgröftinn einnig þörfina á öðrum skriðuvörnum fyrir byggðina á Seyðisfirði. Ljúka þarf uppgrefti á kumlum og minjum í nánasta umhverfi þeirra í haust. Fornleifarannsóknin fer fram á vegum Framkvæmdasýslu ríkisins og Múlaþings og annast fyrirtækið Antikva ehf. hana undir stjórn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Meðal annars hefur verið haft samstarf við jarðfræðinga og hóp norskra sérfræðinga sem gert hafa módel af rannsóknasvæðinu og einstökum gripum. störfuðu við rannsóknina í sumar en þar eð ekki var gert ráð fyrir uppgrefti fram í október var hópurinn á tímabili orðinn fámennur. Liðsauki barst þó frá Noregi og á síðustu dögum hefur einnig borist liðsauki frá Minjastofnun Íslands. Þessi áfangi uppgraftarins er nú á lokametrunum.