Fjölbrautaskóli Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurlands Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fjölbrautaskóli Suðurlands, School, Tryggvagata 25, Selfoss.

21/09/2026

Lotuvika 2 í garðyrkjunáminu 🥰

UMHVERFIÐ EINS FALLEGT OG ÞAÐ GETUR ORÐIÐÍ byrjun september mánaðar síðastliðinn gengu þrjátíu og fjórir FSu nemendur og...
21/09/2026

UMHVERFIÐ EINS FALLEGT OG ÞAÐ GETUR ORÐIÐ

Í byrjun september mánaðar síðastliðinn gengu þrjátíu og fjórir FSu nemendur og nokkrir kennarar undir stjórn íþróttakennarans og göngugarpsins Ásdísar Bjargar Ingvarsdóttur um hið stórkostlega svæði Landmannalauga.

Gengið var um Halldórsgil að Grænahrygg, þaðan yfir í Jökulgil, um Uppgönguhrygg á Skalla og síðan sem leið lá aftur í Landmannalaugar. Um það bil 20 km með rúmlega 1000 metra hækkun. Að sögn Ásdísar gekk ferðin í alla staði mjög vel, veðrið var yndislegt, nemendur stóðu sig með stakri prýði og umhverfið eins fallegt og það getur verið.

ábi / jöz

Náms- og starfsráðgjafar skólans luma á ýmsum góðum ráðum!
18/09/2026

Náms- og starfsráðgjafar skólans luma á ýmsum góðum ráðum!

Ekki missa af frábærri myndlistarsýningu nemenda FSu í Sundhöll Selfoss. Sýningin stendur til 13. október 🥰
18/09/2026

Ekki missa af frábærri myndlistarsýningu nemenda FSu í Sundhöll Selfoss. Sýningin stendur til 13. október 🥰

Myndlistarnemar við Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa sett upp sýninguna Með blýant að vopni í Sundhöll Selfoss. Í áfanganum, sem er framhaldsáfangi í teikningu, er eingöngu unnið með blýant eins og …

💛💛💛
16/09/2026

💛💛💛

SKÓLASTARF Í 45 ÁRFjölbrautaskóli Suðurlands á afmæli 13. september ár hvert. Og í dag eru því 45 ár frá stofnun hans ár...
13/09/2026

SKÓLASTARF Í 45 ÁR

Fjölbrautaskóli Suðurlands á afmæli 13. september ár hvert. Og í dag eru því 45 ár frá stofnun hans árið 1981. Þá var öðruvísi umhorfs á skólalóðinni við Tryggvagötu og Engjaveg og engar varanlegar skólabyggingar til staðar. Allt starf var frumkvöðlastarf og kennsla fór fram í húsnæði víða um Selfoss. Í tilefni af afmælinu héldu núverandi og fyrrverandi starfsmenn ofurlítið hóf á sal skólans – Gaulverjabæ – eftir kennslu föstudaginn 11. september. Þar voru flutt stutt ávörp og saga skólans rifjuð upp í gegnum myndasýningu og frásögn. Kaffi var framborið og bakkelsi af bestu gerð.

Heimir Pálsson fyrsti skólameistari FSu ávarpaði meðal annarra samkomuna og kom skýrt fram í máli hans hversu mikla samheldni meðal Sunnlendinga – framsýni og undirbúning - hefði þurft á sínum tíma til að skólastarf í FSu yrði að veruleika. Þá var í reiknilíkani ráðuneytisins í mesta lagi gert ráð fyrir 400 nemenda skóla sem nú er orðinn að 1100 nemenda skóla sem gegnir lykilhlutverki í gjörbreyttu sunnlensku samfélagi.

Eins og áður hefur verið sagt á þessum vettvangi geta myndir sagt meira en mörg orð og birtast hér nokkrar þeirra sem teknar voru í starfsmanna hófinu 11. september síðastliðinn.

jöz.

VEL HEPPNAÐUR KYNNINGARFUNDURSíðdegis þann 1. september síðastliðinn var haldinn kynningarfundur á sal skólans fyrir for...
07/09/2026

VEL HEPPNAÐUR KYNNINGARFUNDUR

Síðdegis þann 1. september síðastliðinn var haldinn kynningarfundur á sal skólans fyrir foreldra og forsjáraðila nýnema í FSu. Afar vel heppnuð og skipulögð kynning sem ríflega 200 foreldrar sóttu og má fullyrða að þessi árlegu kynningarkvöld eru hvort tveggja í senn að sanna sig og festa sig í sessi.

Eftir opnum og ávarp skólameistara tók við kynning áfangastjóra á náms- og áfangakerfi skólans. Þá kynntu náms- og starfsráðgjafar ásamt skólafélagsráðgjafa hlutverk sitt og mikilvægi í skólastarfinu ásamt því að bjóða upp á samtal við þá foreldra sem það vildu. Formaður nemendaráðs ávarpaði samkomuna og kynnti félagsstarfið framundan og að lokum röðuðu umsjónarkennarar nýnema sig í flestar kennslustofur á annarri hæð og fóru ítarlegar í efnið og svöruðu fyrirspurnum.

Jafnhliða var boðið upp á kaffi og súkkulaðikex og mátti heyra á viðstöddum að vel og faglega hafi verið að verki staðið. Kynningarfundurinn er einn af þremur liðum í móttöku nýnema í FSu. Hinir eru nýnemadagur sem hóf hið formlega skólastarf 18. ágúst síðastliðinn og nýnemaferð sem farin verður niður í Flóa þriðjudaginn 8. september undir leiðsögn BRAGA kennara en það kallast umsjónarkennarar skólans. Heitið vísar til þess að skapa farsælan SKÓLABRAG með einkunnarorð FSu - fjölbreytni – sköpun og upplýsingu - að leiðarljósi.

jöz.

🐈‍⬛💛 Sá grái var á ferðinni 🐈‍⬛ 💛
03/09/2026

🐈‍⬛💛 Sá grái var á ferðinni 🐈‍⬛ 💛

Við erum virkilega stolt af Hrafnhildi Ýr Steinsdóttur, nemanda úr FSu og dúx skólans á vorönn 2025, sem hlaut styrk.
01/09/2026

Við erum virkilega stolt af Hrafnhildi Ýr Steinsdóttur, nemanda úr FSu og dúx skólans á vorönn 2025, sem hlaut styrk.

Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær. Styrkþegar úr sjóðnum ...

31/08/2026

Address

Tryggvagata 25
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:30
Friday 08:00 - 16:30

Telephone

+3544808100

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjölbrautaskóli Suðurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category