Reykholtsskóli

Reykholtsskóli Reykholtsskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk.

17/09/2026
Skólasetning Reykholtsskóla verður fimmtudaginn 20. ágúst kl.14. Enginn skólaakstur þann dag, nemendur mæta með aðstande...
13/08/2026

Skólasetning Reykholtsskóla verður fimmtudaginn 20. ágúst kl.14. Enginn skólaakstur þann dag, nemendur mæta með aðstandendum í skólann. Kennsla hefst föstudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu.

PEERS® – félagsfærninámskeið fyrir  börn og foreldra/forsjáraðilaVið fengum sendar þessar upplýsinar sem er hér með komi...
11/08/2026

PEERS® – félagsfærninámskeið fyrir börn og foreldra/forsjáraðila

Við fengum sendar þessar upplýsinar sem er hér með komið á framfæri.
PEERS®, gagnreyndu félagsfærninámskeiði fyrir börn sem vilja efla færni sína í félagslegum samskiptum og vinatengslum.

Á námskeiðinu læra börnin meðal annars leiðir til að eignast vini, viðhalda vinatengslum, taka þátt í samtölum og takast á við ýmsar félagslegar aðstæður. Foreldrar/forsjáraðilar taka virkan þátt og fá verkfæri til að styðja barnið áfram í daglegu lífi.

Námskeiðið fer fram í fjarkennslu og rannsóknir sýna að PEERS® í fjarnámi skilar sambærilegum árangri og staðnám.

Nánari upplýsingar og skráning:

Námskeið Archive - Lífsbrunnur

Þessar gömlu bækur hafa þjónað tilgangi sínum hjá okkur og leita eftir hilluplássi annarsstaðar. Ykkur er velkomið að ko...
12/06/2026

Þessar gömlu bækur hafa þjónað tilgangi sínum hjá okkur og leita eftir hilluplássi annarsstaðar.
Ykkur er velkomið að koma til okkar í dag, 12. júní til kl. 14 og eftir helgina og velja ykkur eintök.

Skólaárinu lauk formlega í dag með skólaslitum og útskrift 10. bekkjar.Útskriftarathöfnin fór fram í Aratungu að viðstöd...
09/06/2026

Skólaárinu lauk formlega í dag með skólaslitum og útskrift 10. bekkjar.
Útskriftarathöfnin fór fram í Aratungu að viðstöddum fjölskyldum útskriftarnema og starfsfólki skólans. Umsjónarkennari útskriftarbekkjarins á síðasta skólaári var Katrín Guðjónsdóttir.
Við athöfnina flutti Agla Snorradóttir kveðjuræðu en hún lætur nú af störfum eftir 27 ára starf við Reykholtsskóla og 43 ára farsælan starfsferil sem grunnskólakennari.
Maggý í Hrosshaga steig í pontu fyrir hönd Kvenfélags Biskupstungna og afhenti útskriftarnemum gjöf sem mun nýtast þeim vel á nýjum tímamótum.
Nemendur fluttu einstaklega fallegt sameiginlegt ávarp þar sem þeir þökkuðu starfsfólki skólans fyrir samfylgdina, stuðninginn og veganestið út í lífið.
Takk fyrir þitt ómetanlega framlag, Agla, og gangi þér vel á nýjum vettvangi.
Til hamingju með áfangann, kæru 10. bekkingar og fjölskyldur. 🎓

Myndir úr fjallgöngum dagsins... Miðstigið fór upp á Kerhól og skoðaði námuna þar einnig... Unglingastigið fór upp á Vör...
05/06/2026

Myndir úr fjallgöngum dagsins... Miðstigið fór upp á Kerhól og skoðaði námuna þar einnig... Unglingastigið fór upp á Vörðufell.

Skólaslit og útskrift þriðjudaginn 9. júní...
03/06/2026

Skólaslit og útskrift þriðjudaginn 9. júní...

Undirbúningur haustuppskeru er hafinn þar sem 3. bekkur gróðursetti og sáði fyrir kartöflum, gulrótum, radísum og káli.
22/05/2026

Undirbúningur haustuppskeru er hafinn þar sem 3. bekkur gróðursetti og sáði fyrir kartöflum, gulrótum, radísum og káli.

Address

Reykholti
Selfoss
806

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3544803020

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Reykholtsskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share