Nefndina skipa skólaárið 2024-2025 eftirtalin:
- Héðinn Þór Gunnarsson - formaður, [email protected]
- Hákon Garðar Þorvaldsson - varaformaður, [email protected]
- Dagný Hróbjartsdóttir - gjaldkeri, [email protected]
- Guðmunda Ólafsdóttir - ritari, [email protected]
- Sunna Kristín Óladóttir - meðstjórnandi, [email protected]
- Gísli Viðar Oddsson - meðstjórnandi, [email protected]
- Benedikt Rafnsson - meðstjórnandi, [email protected]
- Katla Steinþórsdóttir - meðstjórnandi, [email protected]
Öflugt foreldrastarf og sterk samstaða um grundvallarviðmið er ein öflugasta forvörnin. Ef foreldrar og forráðamenn nemenda í bekk eða skóla ná að stilla saman strengi hvað varðar megin gildi í uppeldismálum aukast líkur á árangri í skólastarfinu, bæði hvað varðar námsárangur og almenna velferð nemenda. (Úr aðalnámskrá grunnskóla)
Markmið félagsins eru að:
- Styðja skólastarfið og efla tengsl heimilis og skóla
- Að efla samstarf og samstöðu foreldra innbyrðis
- Koma á umræðu og fræðslufundum um uppeldis- og fræðslumál
- Vinna að heill og hamingju nemenda Sunnulækjarskóla
- Koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi starfsemi Sunnulækjarskóla
- Styðja félags- og menningarstarf innan Sunnulækjarskóla
Foreldrasamstarf er órjúfanlegur hluti af skólabrag og menningu sem við viljum standa vörð um og styrkja í Sunnulækjarskóla. Við foreldrar og forráðamenn erum öll foreldrafélagið, stjórnin heldur utan um starfsemina, en án ykkar þátttöku og framlags væri ekkert foreldrafélag.