10/10/2025
Kæra félagsfólk Kennarafélags Suðurlands, aðrir gestir
og fyrirlesarar haustþings 2025
Þá er haustþingi ársins 2025 lokið. Stjórn er ákaflega stolt af þeim mikla mannauði og þeirri grósku sem við sjáum hjá félagsfólki. Í dag voru 25 erindi flutt ásamt fjölmörgum kynningum frá skólunum á viðburðinum Líttu þér nær. Um 430 manns sóttu þingið í ár og enn og aftur segjum við hér frá því að þetta hafi verið stærsta þing sem Kennarafélag Suðurlands hefur haldið.
Þingið var sett í gær klukkan 14:15 og þar á eftir hlýddum við á erindi flutt af þeim Skúla Braga Geirdal og Hauki Brynjarssyni frá Netvís. Erindið hét Stolin athygli leitar eiganda síns og vakti áheyrendur sannarlega til umhugsunar um gervigreind, samfélagmiðla og skjátækjanotkun barna og ungmenna. Aðalfundur félagsins var vel sóttur og stóð Íris Árný Magnúsdóttir sig vel sem fundarstjóri. Á fundinum voru stjórnar-, varastjórnar- og formannskosningar sem gengu vel fyrir sig. Að loknum aðalfundi tók Mjöll Matthíasdóttir til máls og ræddi meðal annars um virðismatsvegferðina.
Á haustþingi fögnum við starfi sem skiptir sköpum. Kennarastarfið byggir brú milli drauma og veruleika. Kennarar eru draumasmiðir og hjálpa börnum og ungmennum að sjá það sem þau geta orðið, móta hæfni þeirra til að hugsa gagnrýnið, vinna saman og sýna hugrekki. Kennarar halda uppi jöfnuði, lýðræði og menningu sem við erum öll stolt af. Á þessu haustþingi höfum við ræktað forvitni og sköpun í öllu starfi, við höfum styrkt lærdómssamfélög skólanna og á svæðinu, deilt hugmyndum og lært fullt nýtt.
Árshátíð félagsins var svo haldin í gærkvöldi með pompi og prakt þar sem 180 félagsmenn komu saman og skemmtu sér konunglega. Skólarnir lögðu hendur á plóg í myndbandagerð og varð útkoman stórskemmtileg og uppskar hlátur og lófaklapp. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem komu að því að gera myndbandið okkar svona frábært. Mannskapurinn steig svo trylltan en penan dans við undirspil þeirra bræðra Hlyns og Bessa og virtust allir skemmta sér eins og best var á kosið.
Við þökkum trúnaðarmönnum kærlega og sérstaklega fyrir gott samstarf og þeirra framlags til utanumhalds en við viljum einnig senda þakkir til alls félagsfólks og þeirra sem sóttu þingið, því án ykkar væri KS ekki það blómlega svæðafélag eins og raun ber vitni. Einnig sendum við þakkir til Flúðaskóla, íþróttahússins og þeirra starfsfólks sem og starfsfólks Félagsheimilis Hrunamanna, fyrir samstarfsviljann og frábærar móttökur.
Þið eruð ómissandi — lykillinn að því að gera góðar hugmyndir að góðu skólastarfi. Takk fyrir fagmennsku, dug og að mæta svona vel. Megi þetta skólaár verða ár samstöðu, gleði og vaxtar.
Stjórn Kennarafélags Suðurlands þakkar fyrir sig.
Bestu kveðjur
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Elsie Kristinsdóttir,
Karen Heimisdóttir,
Leifur Viðarsson,
Már Ingólfur Másson