Vinir Karmels

Vinir Karmels Vinir Karmelreglunnar

„Iðrun er ekki sjálfsfyrirlitning, heldur opin leið að náð og nýju upphafi.“ Sjá pistil á kirkjunetinu um heilagan Grego...
27/02/2026

„Iðrun er ekki sjálfsfyrirlitning, heldur opin leið að náð og nýju upphafi.“ Sjá pistil á kirkjunetinu um heilagan Gregoríus frá Narek í fyrstu athugasemd.

Kæri lesandi, heilinn á þér gæti litið út eins og ryksugupoki að innan þegar þú deyrð, en ef hugurinn er stilltur á rétt...
23/02/2026

Kæri lesandi, heilinn á þér gæti litið út eins og ryksugupoki að innan þegar þú deyrð, en ef hugurinn er stilltur á rétta tíðni virðist það engu skipta. Spurningin er bara hvaða „útvarpsstöð“ þú ert að hlusta á í dag, sjá pistil á kirkjunetinu um langtímarannsókn á heilum nunna í fyrstu athugasemd.

Líf heilags Péturs Damíanusar minnir okkur á að umbætur í kirkjunni byrja í hjartanu. Hann óttaðist ekki að tala skýrt þ...
21/02/2026

Líf heilags Péturs Damíanusar minnir okkur á að umbætur í kirkjunni byrja í hjartanu. Hann óttaðist ekki að tala skýrt þegar siðferðisleg hnignun ógnaði trúverðugleika kirkjunnar, en hann vissi jafnframt að sannar umbætur verða aðeins til þar sem auðmýkt og iðrun búa. Hann sameinaði hugrekki og meinlæti, fræðimennsku og bæn. Í samtíma okkar, þar sem traust og ábyrgð eru sífellt til umræðu, talar vitnisburður hans enn: að heilagleiki og siðferðileg festa eru ekki aukaatriði heldur grunnur kirkjunnar.

Í samtíma þar sem klofningur, menningarátök og tortryggni eru áberandi, talar arfleifð hinna heilögu Kýrils og Meþódíusa...
14/02/2026

Í samtíma þar sem klofningur, menningarátök og tortryggni eru áberandi, talar arfleifð hinna heilögu Kýrils og Meþódíusar með sérstökum krafti. Eining verður ekki til með yfirburðum heldur með virðingu, hlustun og vilja til að miðla boðskapnum á þann hátt að hann verði skiljanlegur og lifandi.

Í heimi þar sem tíminn er sundraður og sunnudagurinn er oft orðinn að almennum frítíma án andlegrar merkingar, hljómar v...
12/02/2026

Í heimi þar sem tíminn er sundraður og sunnudagurinn er oft orðinn að almennum frítíma án andlegrar merkingar, hljómar vitnisburður þeirra sem áskorun. Hvað er það í okkar lífi sem við segjum um: „Án þessa getum við ekki lifað“? Er sunnudagurinn enn hjarta vikunnar, sá dagur sem gefur hinum dögunum merkingu og stefnu?

Lourdes minnir okkur á að þjáningin er ekki jaðarfyrirbæri í kristnu lífi. Sjúkir og veikburða eru ekki gestir á jaðri s...
11/02/2026

Lourdes minnir okkur á að þjáningin er ekki jaðarfyrirbæri í kristnu lífi. Sjúkir og veikburða eru ekki gestir á jaðri samfélagsins heldur í miðju þess. María í Kana sá að vín skorti; María í Lourdes sér að von skortir. Hún bendir á Son sinn og segir enn: „Gerið það sem hann segir yður.“ Þannig er Lourdes ekki fyrst og fremst staður kraftaverka heldur skóli traustsins – þar sem við lærum að leggja veikleika okkar í hendur Krists og trúa því að hann geti breytt vatni daglegs lífs í vín náðarinnar.

Heilög Skolastika boðar ekki uppreisn gegn reglufestu heldur dýpri skilning á anda hennar. Benediktsreglan er byggð á hl...
10/02/2026

Heilög Skolastika boðar ekki uppreisn gegn reglufestu heldur dýpri skilning á anda hennar. Benediktsreglan er byggð á hlýðni og aga, en einnig á kærleika. Þegar reglan og kærleikurinn mætast, þá er það kærleikurinn sem opinberar vilja Guðs.

Hvort sem um er að ræða slæðu meyjar sem borin er fram gegn hraunstraumi í Cataníu á 3. öld eða messu prests í Skaftártu...
05/02/2026

Hvort sem um er að ræða slæðu meyjar sem borin er fram gegn hraunstraumi í Cataníu á 3. öld eða messu prests í Skaftártungu á 18. öld, er merkingin hin sama: þegar mannlegt máttleysi stendur frammi fyrir frumöflum jarðar leitar hjartað til Guðs. Slíkir atburðir verða ekki aðeins sögur um kraftaverk heldur hluti af sjálfsmynd samfélagsins. Þeir segja að mannlegt samfélag standi ekki eitt gagnvart eyðingaröflunum, heldur megi finna vernd, von og samstöðu í bæninni.

Líf heilags Jóhannesar Bosco sýnir að kristið uppeldi byrjar ekki á reglunum heldur í elskulegu sambandi barnsins við fo...
31/01/2026

Líf heilags Jóhannesar Bosco sýnir að kristið uppeldi byrjar ekki á reglunum heldur í elskulegu sambandi barnsins við foreldra og uppalendur. Mildi er ekki veikleiki heldur andlegt afl sem ávinnur hjörtu. Kirkjan verður trúverðug þegar hún líkist heimili þar sem leiðrétting sprettur af kærleika. Þar sem samfélagið sundrast er köllun kirkjunnar að skapa samfélag.

Í hinum heilögu Tímóteusi og Títusi sjáum við að kirkjan byggist ekki aðeins á stórum persónum heldur á trúföstum samver...
29/01/2026

Í hinum heilögu Tímóteusi og Títusi sjáum við að kirkjan byggist ekki aðeins á stórum persónum heldur á trúföstum samverkamönnum. Þeir stóðu í skugga Páls – en án þeirra hefði starf hans ekki borið þann ávöxt sem við þekkjum.

Heilagur Tómas frá Aquino er sá kirkjufræðingur sem best tókst að sameina gríska heimspeki og kristna opinberun. Oft er ...
28/01/2026

Heilagur Tómas frá Aquino er sá kirkjufræðingur sem best tókst að sameina gríska heimspeki og kristna opinberun. Oft er sagt að hann hafi byggt á Aristótelesi, og það er rétt að því leyti að hann notaði aðferðafræði hans og frumspekileg hugtök á borð við veru, eðli, orsök og markmið. Frá Aristótelesi fékk hann það tæki sem gerði honum kleift að tala um veruleikann með skýrleika og á rökfastan hátt, og þannig g*t hann sett guðfræðina fram með áður óþekktri nákvæmni. En Aristóteles gaf honum formið, ekki innihald trúarinnar.

„Guð neyðir engan; hann kallar og sannfærir.“ Heilög Angela Merici kennir að kristin menntun er kærleiksverk. Kennsla er...
27/01/2026

„Guð neyðir engan; hann kallar og sannfærir.“ Heilög Angela Merici kennir að kristin menntun er kærleiksverk. Kennsla er að taka ábyrgð á sál. Hún minnir á mildi fremur en valdboð og sýnir að heilagleiki getur þrifist mitt í samfélaginu.

Address

Selfoss
IS800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vinir Karmels posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Vinir Karmels:

Shortcuts

Share