20/09/2026
Er líður á september er lag að huga að kartöfluuppskerunni. Mig langar að nefna vegna nokkurra fyrirspurna um hvort megi borða kartöflur með grænt hnýði. Þegar kartöflur verða fyrir ljósi mynda þær blaðgrænu og verða grænar þar sem sólargeislarnir skynu. Hafa verður í huga að ljósið getur líka aukið magn glýkóalkalóíða, einkum sólaníns og chakóníns, sem geta verið eitruð í hærri skömmtum. En hvenær er óhætt að borða þær?
Yfirleitt má skera græna hlutann vel burt ásamt hýðinu og nota restina. Mikið sólargrænka gerir kartöfluna bitra og er þá er best að henda henni. Biturt bragð er oft merki um hærra magn glýkóalkalóíða. Grænar kartöflur má nota sem útsæðiskartöflur.