Háskólinn á Hólum

Háskólinn á Hólum

Share

Háskólastofnun á Norðurlandi

12/06/2026

Áhugaverð grein eftir Gústaf Gústafsson aðjunkt við ferðamáladeild Háskólans á Hólum.

"Fyrir bændur og aðra sem byggja afkomu sína á landinu sjálfu getur ferðaþjónustan verið nauðsynleg björg til að styrkja búreksturinn, dreifa áhættu og skapa nýjar tekjur til viðbótar við hefðbundna framleiðslu. Spurningin snýst ekki um hvort ferðamenn hafi áhuga á sveit, menningu og náttúru. Miklu fremur er spurningin hvernig hægt er að umbreyta þeim áhuga í öruggar, stöðugar, arðbærar og sjálfbærar viðbótartekjur fyrir býlin landið um kring," segir Gústaf Gústafsson í aðsendri grein.

Hlekkur hér að neðan.

12/06/2026

🎤 Kynnum fyrsta fyrirlesarann á námskeiðinu Full Circle: Endurhugsun nýtingar úrgangs í fiskeldi

Sven-Ole Meiske er fiskeldisfræðingur með meistaragráðu í fiskeldi og hefur sérhæft sig í hagnýtum lausnum sem styðja við hringrásarhagkerfið.

Á námskeiðinu mun hann fjalla um hvernig hægt er að umbreyta næringarríkum úrgangsstraumum frá fiskeldi í verðmætar auðlindir fyrir landbúnað og gróðurhúsarækt. Erindi hans byggir á raunverulegum áskorunum atvinnugreinarinnar og þeim tækifærum sem felast í aukinni nýtingu auðlinda og minni sóun.

♻️ Frá úrgangi til verðmæta
🐟 Sjálfbærara fiskeldi
🌱 Nýting næringarefna í matvælaframleiðslu

📅 18. júní 2026
📍 Háskólinn á Hólum

Skráning er þátttakendum að kostnaðarlausu en nauðsynleg.
Frekari upplýsingar - https://fb.me/e/9kv7wypDX

11/06/2026

♻️ Hvað ef úrgangur væri í raun vannýtt auðlind?

Á námskeiðinu Full Circle: Endurhugsun nýtingar úrgangs í fiskeldi verður fjallað um nýjar leiðir til að skapa verðmæti úr aukaafurðum fiskeldis og matvælaframleiðslu.

🌱 Hringrásarhagkerfi
🐟 Sjálfbært fiskeldi
🤖 Nýsköpun og tækni
💡 Lausnir framtíðarinnar

📅 18. júní
📍 Háskólinn á Hólum

Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg.

👉 Skráning og nánari upplýsingar:
https://fb.me/e/9kv7wypDX

Photos from Háskólinn á Hólum's post 11/06/2026

🎓 Þann 5. júní fór fram hátíðleg brautskráning við Ferðamáladeild og Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum.

Alls brautskráðust 20 kandidatar úr fjölbreyttum námsleiðum deildanna. Við athöfnina var einnig minnst þess að 30 ár eru liðin frá því fyrstu nemendurnir hófu nám í ferðamálafræði á Hólum, sem lagði grunninn að því öfluga námi sem boðið er upp á í dag.

Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og velfarnaðar á nýjum vettvangi. 🌷👏

👉 Nánari frétt á holar.is

Photos from Háskólinn á Hólum's post 07/06/2026

🌷 Starfslok við Háskólann á Hólum

Edda Matthíasdóttir lét af störfum við Háskólann á Hólum í vor eftir að hafa starfað við skólann frá haustinu 2021, fyrst sem sviðsstjóri mannauðs, gæða og reksturs og síðar sem framkvæmdastjóri háskólans.

Edda kom til starfa með víðtæka stjórnunarreynslu og gegndi mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og þróun skólans á tímum mikilla breytinga. Framlag hennar til starfseminnar mun án efa skila sér áfram inn í framtíðina.

Við þökkum Eddu fyrir samstarfið og fagmennskuna sem einkenndi störf hennar við Háskólann á Hólum.

💐 Við óskum Eddu velfarnaðar og farsældar á nýjum vettvangi.

Frétt á holar.is

06/06/2026

🐴🧬 Litaerfðir hrossa – fræðsluerindi á Hólum

Sögusetur íslenska hestsins býður til fræðsluerindis með Dr. Moniku Reißmann frá Humboldt-háskólanum í Berlín sunnudaginn 7. júní kl. 16:00.

Erindið fjallar um erfðafræðina á bak við liti og litamynstur hrossa og hentar jafnt hestafólki, ræktendum, nemendum og öðrum áhugasömum.

📍 Sögusetur íslenska hestsins á Hólum
🕓 7. júní kl. 16:00
💳 Aðgangseyrir 1.500 kr.

🎟️ Frítt fyrir gesti sem hafa heimsótt Sögusetur íslenska hestsins á árinu.

Við hvetjum áhugasama til að mæta á fróðlegt og áhugavert erindi.

Photos from Háskólinn á Hólum's post 06/06/2026

🎓 Til hamingju, Kelsey Stansberry!

Kelsey varði meistararitgerð sína við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum þann 5. maí síðastliðinn.

🐟 Ritgerðin fjallar um áhrif dreifingar fæðu á hegðun, fæðuleit og vöxt bleikju í straumvötnum og er mikilvægt framlag til rannsókna á vistfræði ferskvatnsfiska.

Við óskum Kelsey innilega til hamingju með glæsilegan árangur og óskum henni velfarnaðar á næstu skrefum í námi og starfi. 👏

📖 Ritgerðina má nálgast á Skemmunni:
https://skemman.is/handle/1946/53362

05/06/2026

🎓 Í dag er brautskráning við Háskólann á Hólum!

Við hlökkum til að fagna í dag með útskriftarnemum okkar úr Fiskeldis- og fiskalíffræðideild og Ferðamáladeild og óskum þeim til hamingju með glæsilegan árangur.

📍 Aðalbygging Háskólans á Hólum
🕑 Brautskráningarathöfn hefst kl. 14:00

Við óskum öllum útskriftarnemum velfarnaðar í framtíðinni og hlökkum til að sjá hvert leið þeirra liggur næst. 🌷👏

04/06/2026

📚 Háskólaráð Háskólans á Hólum samþykkti á fundi sínum 21. maí endurskoðaða gæðastefnu og rannsóknarstefnu skólans.

Stefnurnar marka mikilvægar áherslur fyrir framtíð náms, kennslu og rannsókna við háskólann og styðja við áframhaldandi þróun öflugs og ábyrgs háskólasamfélags.

🔹 Gæðastefna
🔹 Rannsóknarstefna
🔹 Stöðugar umbætur
🔹 Öflugt rannsóknarumhverfi

Nánari upplýsingar og stefnurnar í heild sinni má finna á heimasíðu Háskólans á Hólum.

13/05/2026

🌿 Næst kynnum við Susanne Lintermann

Susanne er stofnandi Hugarró – Goats and Nature og vinnur með tengsl manna, dýra og náttúru með sérstakri áherslu á vellíðan og tengslamyndun 🐐💚

Á ráðstefnunni mun hún kynna starf sitt og reynslu af því að vinna með geitur í náttúru- og dýratengdri þjónustu.

📱

🎤 Fyrirlesari á ráðstefnu 15.–16. maí

👉 Skráning í gangi hér -
https://www.holar.is/is/vefverslun/stjornun-og-rekstur/index/radstefna-15-16-mai-2026

Want your school to be the top-listed School/college in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hólum í Hjaltadal
Sauðárkrókur
551

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 13:00