02/06/2026
Í dag útskrifuðust 42 börn úr Ársölum við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Að sjálfsögðu sáu þau sjálf um skemmtunina og sungu fjögur lög sem þau hafa æft af kappi síðustu vikur.
Lögin sem þau fluttu svo listilega vel voru skólasöngur Ársala, Vikivaki, Verum vinir og Furðuverk. Eftir mikið uppklapp tóku þau fimmta lagið Sól sól skín á mig.
Mikið erum við stolt af þessum flotta hópi sem leggur leið sína á næsta skólastig í haust.
Við þökkum fyrir allar stundirnar kæru börn, foreldrar og fjölskyldur ♡