Fab Lab Sauðárkrókur

Fab Lab Sauðárkrókur Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum til að búa til nánast hvað sem er. Hann er einnig hægt að nýta til að skera út mjúkar rafrásir.

Fab Lab smiðjan gefur einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og láta hugmyndir verða að veruleika. Í smiðjunni eru fimm tölvustýrðar (cnc) vélar sem hægt er að nýta til ýmiskonar sköpunar. Roland Modela Fínfræsari, er lítill yfirfræsari með mikla nákvæmni. Hann er notaður til að fræsa út fíngerða smíði svo sem rafrásir í tvívídd, plastmót og gifsmót í þrívídd og fleira. Við höfum einnig nýtt hann til að skanna litla þrívíða hluti inn. Vinnuflötur fræsarans er 203X152X60 mm

Roland Vínilskeri er tölvustýrður dúkaskeri sem er mikið notaður til að skera út límmiða og gluggafilmur. Vinnuborð dúkaskerans er 120cm á breidd og eins langt og dúkrúllan leyfir. Epilog 40w laserskeri er laserskurðarvél sem getur skorið með mikilli nákvæmni efni eins og acrylplast, þunnan krossvið, balsavið, pappír, leður og fleira. Skerann er einnig hægt að nýta til að grafa í þau efni sem áður hafa verið nefnd sem og gler og húðaða málma. Vinnuborð skerans er 30x60cm, en einnig er hægt að setja í hann sívala hluti allt að 50cm langa og 20cm í þvermál. Þetta hefur til dæmis verið nýtt til að skera í glös og blómavasa. Shopbot fræsari er stór fræsari sem hefur vinnuflöt uppá 150x300cm. Þessi fræsari er mikið notaður til að skera út húsgögn úr tré, stór mót fyrir plastsmíði og fleira. hann vinnur á þrem ásum þannig að hægt er að fræsa út í 180° þrívídd í honum. Önnur efni sem þessi fræsari hefur verið nýttur í eru ýmiskonar plastefni og þunnir málmar. Cube þrívíddarprentari prentar hluti úr ABS plasti. Vinnusvæði prentarans er 15x15x15 cm og hann nýtist til að smíða flókna smáhluti sem erfitt er að fræsa eða skera út. Þar sem erfitt er að skilja að hægt sé að prenta þrívíða hluti (við trúðum þessu varla sjálfir) þá ætlum við að setja myndband hérna á síðuna sem sýnir hvernig tækið vinnur. Að auki eru í Fab Lab á Sauðárkróki fullkomið rafeindaverkstæði og saumavél. Við stefnum að því á næstunni að bæta inn beygju og mótunarvélum fyrir plastvinnslu. Allar vélar í Fab Lab eru valdar með einfaldleika að leiðarljósi og í flestum tilvikum eru hlutirnir sem búnir eru til, prentaðir frá PDF skjali. Teikningar að hlut sem gerður er í Fab Lab má gera í hvaða teikniforriti sem er, Autocad, Inventor, Corell, en við bendum þeim sem ekki hafa aðgengi að dýrum teikniforritum á ókeypis hugbúnað svo sem Inkscape (www.inkscape.org) fyrir tvívíddar teikningar og Google sketchup (sketchup.google.com) eða Autodesk 123D (www.123dapp.com) fyrir þrívíddarteikningar. Við bjóðum ekki uppá námskeið að svo stöddu, en allir sem koma í Fab lab fá handleiðslu á staðnum og aðstoð við að komast í gang með verkefnin sín. Við aðstoðum einnig við teikningavinnu og gefum góð ráð um efnisval og hönnun. Við mælum eindregið með að þeir sem ekki hafa reynslu af tölvuteikningu nýti sér kennsluefnið sem Fab Lab á Íslandi er búið að koma á vefinn, en mikið af kennsluefni liggur nú þegar fyrir á www.fablab.is/wiki . Veljið íslensku sem tungumál til að komast í íslenska hlutann. Fyrir þá sem vilja formlegri kennslu er hægt að snúa sér til Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, sem býður uppá áfanga í Fab Lab í dagskóla og kvöldskóla.

29/09/2026
27/08/2026

Hægt er að sjá opnunartíma á fablabskr.is

24/08/2026

Loksins loksins, við byrjum á morgun þriðjudag :)

Nú er dagatal haustsins að skríða saman. Hér má sjá hvenær er hægt að panta tíma, hvenær er opið hús fyrir almenning (þr...
17/08/2026

Nú er dagatal haustsins að skríða saman. Hér má sjá hvenær er hægt að panta tíma, hvenær er opið hús fyrir almenning (þriðjudagar á milli 14-19), hvenær eldri borgara fá sérstaka aðstoð og hvenær er komin kennsla. Við munum svo uppfæra dagatalið eftir því sem líður á. Einnig munum við senda út fljótlega dagskrá fyrir námskeið á önninni.

Opið hús hefst í næstu viku eða þriðjudaginn 24. ágúst😊

Nú er SumarTím lokið hjá okkur að sinni. Við fengum fullt af frábærum krökkum frá 1.-7. bekk sem lærðu meðal annars að n...
02/07/2026

Nú er SumarTím lokið hjá okkur að sinni. Við fengum fullt af frábærum krökkum frá 1.-7. bekk sem lærðu meðal annars að nota vínylskera, laser, 3D prentun og teikningu, mictobit forritun. Krakkarnir bjuggu til stuðbox, myndir á boli, microbit glímubíl, jesmonite munagerð og súkkulaði mót.

Þetta var mikið fjör og gaman hjá okkur og hlökkum til að sjá ykkur sem flest og foreldra í haust þegar við opnum aftur.

Gleðilegt sumar og njótið vel, Sjáumst svo hress í ágúst en opnunartímar verða auglýsir síðar.

Address

Sæmundarhlíð
Sauðárkrókur
00550

Opening Hours

Tuesday 08:15 - 11:30
Wednesday 14:00 - 19:00
Thursday 08:15 - 11:30

Telephone

+3548650619

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fab Lab Sauðárkrókur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fab Lab Sauðárkrókur:

Shortcuts

Share

Category