Árskóli

Árskóli Í Árskóla er starfað samkvæmt einkunnarorðunum lifa – leika – læra.

Ólympíuhlaup ÍSÍ var hlaupið í Árskóla miðvikudaginn 23. september. Allir bekkir tóku þátt, unglingastigið hljóp 4,5 km,...
23/09/2026

Ólympíuhlaup ÍSÍ var hlaupið í Árskóla miðvikudaginn 23. september. Allir bekkir tóku þátt, unglingastigið hljóp 4,5 km, miðstigið g*t valið milli 4,5 km og 2,5 km Yngsta stigið fór 2,5 km og nokkrir völdu 1 km leið.

Ræst var við fyrsta teig Frisbígolfvallarins, hlaupið upp Litla Skóg, eftir Nöfunum og endamarkið var loks neðst í Grænaklauf þar
sem tekið var á móti hlaupurum með stuði og eplasafa. Ekki var um formlega tímamælingu að ræða en hraðasti hlauparinn kom í mark undir 18 mínútum í 4,5 km hlaupinu.

Starfsfólk Árskóla sá um brautargæslu í hlaupinu eða hljóp með. Hlaupið tókst vel og veðrið var þokkalegt, þurrt en smá vindur.

Heilsueflandi teymi við skólann hafði yfirumsjón með framkvæmd hlaupsins.
Ólympíuhlaup ÍSÍ var áður Norræna skólahlaupið og hefur verið haldið frá árinu 1984.
Hlaupið lá í dvala í nokkur ár í Árskóla en eftir vel heppnað hlaup í fyrra var ákveðið að endurtaka leikinn.

Formenn 10. bekkjar Árskóla:
16/09/2026

Formenn 10. bekkjar Árskóla:

Nemendur í 6. bekk í Árskóla hafa undanfarnar vikur fræðst um Njálu. Efnið er notað til að kenna bókmenntahugtök og ritu...
15/09/2026

Nemendur í 6. bekk í Árskóla hafa undanfarnar vikur fræðst um Njálu. Efnið er notað til að kenna bókmenntahugtök og ritun en þar gefst líka tækifæri til að æfa sig í að horfa eftir styrkleikum annarra.
Styrkleiki september mánaðar í Árskóla er samkennd.

Í verkefni sem nemendur unnu í síðustu viku völdu þau sér eina persónu, þ.e. Gunnar eða Hallgerði á Hlíðarenda og Njál eða Bergþóru á Bergþórshvoli.

Þau gáfu persónunni 0-4 stjörnur ⭐️fyrir styrkleikana samkennd, félagsfærni, sjálfstjórn og góðvild. Flest voru þau sammála um að Hallgerður fengi ekki margar stjörnur fyrir sjálfstjórn en Njáll fengi aftur á móti nokkrar stjörnur fyrir félagsfærni.

Þau teiknuðu mynd af persónunni sinni og á bakhlið spjaldsins svöruðu þau spurningum um kosti og galla persónunnar og sögðu frá því af hverju þau völdu þessa persónu. Fyrirmyndin að spjöldunum eru m.a. Pokémon-spjöldin vinsælu þar sem verurnar búa yfir mismunandi styrkleikum sem nýtast þeim í lífinu. Hér má sjá brot af þessari skemmtilegu vinnu nemendanna í 6.bekk.

08/09/2026

GULUR DAGUR Í ÁRSKÓLA
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er fimmtudaginn 10. september. Klæðumst einhverju gulu í tilefni dagsins.

Verkefnið Göngum í skólann var sett formlega í Árskóla í morgun. Athöfnin fór fram á íþróttavellinum í blíðskaparveðri a...
04/09/2026

Verkefnið Göngum í skólann var sett formlega í Árskóla í morgun. Athöfnin fór fram á íþróttavellinum í blíðskaparveðri að viðstöddum öllum nemendum og starfsmönnum, ásamt fulltrúum ÍSÍ, sveitarfélagsins og lögreglunnar. Hér eru nokkrar myndir frá athöfninni.

Föstudagurinn 4. september er treyjudagur í Árskóla.Á treyjudeginum klæðum við okkur í íþróttatreyju og sýnum börnum með...
02/09/2026

Föstudagurinn 4. september er treyjudagur í Árskóla.
Á treyjudeginum klæðum við okkur í íþróttatreyju og sýnum börnum með krabbamein stuðning. Treyjan getur verið hestatreyja, fimleikatreyja, fótboltatreyja eða bara þín uppáhalds treyja.

Sjá nánar um treyjudaginn hér:

Fyrir börn með krabbamein.

Fræðsluferð til Berlínar.
09/06/2026

Fræðsluferð til Berlínar.

Áfram sumarlestur🌞
02/06/2026

Áfram sumarlestur🌞

Starf stuðningsfulltrúa skólaárið 2026-2027
20/05/2026

Starf stuðningsfulltrúa skólaárið 2026-2027

Hjá sveitarfélaginu Skagafirði starfa um 490 starfsmenn og er fjölbreytileikinn mikill. Lögð er áhersla á að sveitarfélagið hafi ávallt á að skipa hæfum og áhugasömum einstaklingum sem mynda eina heild. Þeir sem hafa áhuga á að starfa hjá okkur eru hvattir til að sækja um.

Á þessu skólaári unnum við áfram að innleiðingu verkefnisins „See the Good!“, eða „Sjáðu styrkleikann!“ eins og það kall...
20/05/2026

Á þessu skólaári unnum við áfram að innleiðingu verkefnisins „See the Good!“, eða „Sjáðu styrkleikann!“ eins og það kallast á íslensku. Verkefnið snýst um að innleiða aðferðafræði sem byggir á jákvæðri sálfræði sem var þróuð í Finnlandi og hjálpar nemendum að átta sig á hvar styrkleikar þeirra liggja.
Styrkleikarnir sem við unnum með á þessu skólaári voru:
Bjartsýni ☀️

Hugrekki 🦁

Húmor 😂

Lærdómsfús 📚

Sköpunargleði🎨

Sjálfsstjórn 🧭

Nemendur á mið- og unglingastigi fengu það hlutverk að kjósa um styrkleika mars, apríl og maí. Fyrir valinu urðu sköpunargleði í mars og sjálfsstjórn í apríl og maí. Hér koma nokkrar myndir af verkefnum nemenda á þessu skólaári 🌟

Address

Skagfirðingabraut
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Árskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Árskóli:

Shortcuts

Share