Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki býður upp á fjölbreytt námsframboð, bæði bóknám og iðnnám. Hagkvæm og heimilisleg heimavist i boði.

Heimasíða www.fnv.is

17/06/2026

Vissir þú að Edduverðlaunin eru smíðuð í FNV? 🎬

Skólaheimsókn til Portúgal Starfsfólk FNV lagði nýverið land undir fót og kynnti sér starfsemi tveggja skóla í Lissabon....
16/06/2026

Skólaheimsókn til Portúgal
Starfsfólk FNV lagði nýverið land undir fót og kynnti sér starfsemi tveggja skóla í Lissabon.
Heimsóknirnar voru afskaplega áhugaverðar og starfsfólk fékk innsýn inn í kennslu, skólastarf, skipulag náms og uppbyggingu skólakerfisins í Portúgal.
Það er gott að fá tækifæri til að sjá hvernig hlutirnir eru gerðir annars staðar, fá nýjar hugmyndir og samanburð við skólakerfið hér á landi.
Auk skólaheimsókna gafst starfsfólki einnig tækifæri til að upplifa sögu, mannlíf og matarmenningu Lissabon í yndislegu veðri.

04/06/2026
Frumkvöðlafræði Í FNVÍ vetur stofnuðu nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði fyrirtækið Brodd, sem þróað hefur fæðubótaref...
03/06/2026

Frumkvöðlafræði Í FNV
Í vetur stofnuðu nemendur í áfanganum Frumkvöðlafræði fyrirtækið Brodd, sem þróað hefur fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Fyrirtækið vakti athygli á Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind og var í kjölfarið boðið að taka þátt í Arctic Youth Championship í Tromsø í Noregi.
Þar kynntu nemendurnir hugmynd sína fyrir dómnefndum og öðrum ungum frumkvöðlum frá Íslandi, Noregi og Finnlandi og stóðu sig með miklum sóma 👏

Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með þessum öflugu nemendum vaxa í verkefninu, þróa hugmyndina sína og öðlast reynslu sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni.

📸 Hér eru myndir frá verkefninu og ferðunum.

👇 Lesið fréttina í fyrstu athugasemd.

Árni Gunnarsson er hér í skemmtilegu viðtali í nýjasta tölublaði Feykis um kvikmyndagerðarbraut FNV. Umsóknarfrestur nýn...
02/06/2026

Árni Gunnarsson er hér í skemmtilegu viðtali í nýjasta tölublaði Feykis um kvikmyndagerðarbraut FNV.
Umsóknarfrestur nýnema er til 10. júní nk.

Það er mikið gleðiefni að undirrituð hafi verið viljayfirlýsing um stækkun verknámshúss FNV, en Inga Sæland mennta- og b...
01/06/2026

Það er mikið gleðiefni að undirrituð hafi verið viljayfirlýsing um stækkun verknámshúss FNV, en Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal Reynisdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undirrituðu viljayfirlýsingu í síðustu viku.

Traust og öflugt bakland skólans verður seint fullþakkað.

Ánægjulegt er að greina frá því að í vikunni skrifuðu Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal Reynisdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Fj...

Brautskráning og skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra fór fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 29. maí...
01/06/2026

Brautskráning og skólaslit Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra fór fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 29. maí sl.

Við óskum brautskráningarnemum innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir samfylgdina. Það var ánægjulegt að fagna þessum tímamótum með nemendum, aðstandendum, starfsfólki og velunnurum skólans.

📸 Hér má sjá myndir frá brautskráningunni.

👇 Frétt um brautskráninguna má finna í fyrstu athugasemd.

Praktískar upplýsingar vegna brautskráningar FNV á morgun, föstudaginn 29. maí.Bílastæði eru við heimavist, Árskóla/íþró...
28/05/2026

Praktískar upplýsingar vegna brautskráningar FNV á morgun, föstudaginn 29. maí.
Bílastæði eru við heimavist, Árskóla/íþróttahús en einnig eru bílastæði við bók- og verknámshús FNV og hjá Skagfirðingabúð
🔴 Má ekki leggja
🔵 Stæði fyrir hreyfihamlaða

Address

Sæmundarhlíð
Sauðárkrókur
550

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 14:00

Telephone

+3544558000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra:

Shortcuts

Share

Category