16/09/2026
Mögnuð saga í hávegum höfð á RÚV.
Við höfum hýst sýningunga Heimskautin heilla í 19 ár en sýningin fjallar um líf, störf og ævintýri Jean Baptiste Charcot og hræðileg örlög hans og áhafnar rannsóknarskipsins Porquoi-Pas? sem minnst er í dag á 90 ára afmæli þess. Í gærdag tókum við á móti sendiherra Frakklands, fjölskyldu og vinum Charcot í Les Amis de Jean-Baptiste Charcot auk aðstandenda sýningarinnar við hátíðlega athöfn í Þekkingarsetri Suðurnesja.
Hægt er að bóka heimsóknir á sýninguna utan hefðbundins opnunartíma með því að hafa samband við okkur hér á Facebook eða í tölvupósti eða einfaldlega með því að hringja í okkur.
90 ár eru síðan franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? strandaði í Straumfirði með franska vísindamanninn Jean Baptiste Charcot innanborðs. Franska sendiráðið minntist slyssins á strandstað í dag.