Sandgerðisskóli

Sandgerðisskóli VÖXTUR - VIRÐING - VILJI - VINÁTTA

Sandgerðisskóli vill færa Foreldrafélagi Sandgerðisskóla okkar bestu þakkir fyrir veglegan styrk sem gerði okkur kleift ...
25/09/2026

Sandgerðisskóli vill færa Foreldrafélagi Sandgerðisskóla okkar bestu þakkir fyrir veglegan styrk sem gerði okkur kleift að bæta við afþreyingu fyrir nemendur í frímínútum eftir að Símafriður tók gildi í skólanum. ❤

Það er ánægjulegt að sjá nemendur nýta frímínúturnar til samveru, leikja og útiveru. Við erum sannfærð um að þessi viðbót við afþreyingu nemenda hafi jákvæð áhrif á félagslíf og vellíðan þeirra í skólanum.

Sandgerðisskóli vill færa Foreldrafélagi Sandgerðisskóla okkar bestu þakkir fyrir veglegan styrk sem gerði okkur kleift að bæta við afþreyingu fyrir nemendur í frímínútum eftir að Símafriður tók gildi í skólanum.

Sandgerðisskóli tekur þátt í Heilsuviku Suðurnesjabæjar dagana 28. september til 2. október.Á meðan á heilsuvikunni sten...
24/09/2026

Sandgerðisskóli tekur þátt í Heilsuviku Suðurnesjabæjar dagana 28. september til 2. október.

Á meðan á heilsuvikunni stendur verða ýmis verkefni og viðburðir á dagskrá sem miða að því að efla hreyfingu, heilbrigða lífshætti og andlega og líkamlega vellíðan nemenda og starfsfólks.

Nemendur í 7. bekk dvöldu í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði dagana 14.–17. september. Hópurinn var skólanum til sóma o...
22/09/2026

Nemendur í 7. bekk dvöldu í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði dagana 14.–17. september. Hópurinn var skólanum til sóma og átti góða daga í samveru með nemendum frá Gerðaskóla og Öldutúnsskóla. 🫶

Sjá myndir úr ferðinni í meðfylgjandi frétt á heimasíðu skólans.📷

Nemendur í 7. bekk dvöldu í skólabúðum á Reykjum í Hrútafirði dagana 14.–17. september. Hópurinn var skólanum til sóma og átti góða daga í samveru með nemendum frá Gerðaskóla og Öldutúnsskóla.

Sigurður Gunnar eða Siggi eins og hann er jafnan kallaður, heimsótti Sandgerðisskóla á dögunum og kynnti stærðfræðileiki...
18/09/2026

Sigurður Gunnar eða Siggi eins og hann er jafnan kallaður, heimsótti Sandgerðisskóla á dögunum og kynnti stærðfræðileikinn Evolytes fyrir nemendum í 3.–5. bekk.

Nemendur fengu að kynnast leiknum og þeim fjölbreyttu verkefnum sem þar er að finna. Mikill áhugi var meðal nemenda og tóku þeir virkan þátt í kynningunni.

Markmiðið er að gera stærðfræðiþjálfunina fjölbreytta og skemmtilega og gefa nemendum tækifæri til að efla færni sína í gegnum leik.

Við þökkum Sigga kærlega fyrir skemmtilega og fróðlega kynningu og samfélagsverkefninu Andvara fyrir stuðninginn. Við hlökkum til að fylgjast með nemendum takast á við verkefnin í Evolytes í vetur.
Evolytes Ísland

Fimmtudaginn 10. september þreyttu nemendur í 7. bekk námsmaraþon til að safna fyrir ferð sinni í Skólabúðirnar að Reykj...
18/09/2026

Fimmtudaginn 10. september þreyttu nemendur í 7. bekk námsmaraþon til að safna fyrir ferð sinni í Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði, sem þau fóru í nú í vikunni. Nemendur stóðu sig frábærlega í öllum þeim verkefnum sem þau tóku sér fyrir hendur.🥰

Kærar þakkir til allra sem styrktu nemendurna 🫶

Fimmtudaginn 10. september þreyttu nemendur í 7. bekk námsmaraþon til að safna fyrir ferð sinni í Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði, sem þau fóru í nú í vikunni. Nemendur stóðu sig frábærlega í öllum þeim verkefnum sem þau tóku sér fyrir hendur. Sjá fleiri myndir h....

Öflug þátttaka foreldra á fræðslu- og kynningarkvöldiÞann 15. september kom Haukur Brynjarsson frá Netvís í Sandgerðissk...
17/09/2026

Öflug þátttaka foreldra á fræðslu- og kynningarkvöldi

Þann 15. september kom Haukur Brynjarsson frá Netvís í Sandgerðisskóla og hélt fróðlegan fyrirlestur fyrir foreldra og forráðamenn undir yfirskriftinni Stolin athygli leitar eiganda síns.

Að loknum fyrirlestrinum var foreldrum boðið í heimastofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar fóru yfir skipulag, nám og verkefni vetrarins.

Mætingin var frábær og bæði fyrirlesturinn og heimsóknirnar í heimastofurnar voru áhugaverðar og gagnlegar. Við þökkum Hauki kærlega fyrir komuna og foreldrum og forráðamönnum fyrir góða þátttöku. 🫶

Þann 15. september kom Haukur Brynjarsson frá Netvís í Sandgerðisskóla og hélt fróðlegan fyrirlestur fyrir foreldra og forráðamenn undir yfirskriftinni Stolin athygli leitar eiganda síns.

Sandgerðisskóli fékk á dögunum glæsilegan snjallsjónauka að gjöf frá Reykjanes jarðvangi. Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verk...
11/09/2026

Sandgerðisskóli fékk á dögunum glæsilegan snjallsjónauka að gjöf frá Reykjanes jarðvangi. Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi í samstarfi við GeoCamp Iceland, afhenti sjónaukann. Við í Sandgerðisskóla erum afar þakklát fyrir þessa frábæru gjöf og hlökkum til að nýta sjónaukann með nemendum okkar. 🔭🫶
Reykjanes Unesco Global Geopark - Iceland

Sandgerðisskóli fékk á dögunum glæsilegan snjallsjónauka að gjöf frá Reykjanes jarðvangi. Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi í samstarfi við GeoCamp Iceland, afhenti sjónaukann. Hann er einn af ellefu sjónaukum sem gefnir verða grunn...

Í góða veðrinu í dag nýttum við fjöruna til útikennslu.🌞 Nemendur í 3. bekk tóku með sér greiningarlykilinn Smádýr – FJA...
08/09/2026

Í góða veðrinu í dag nýttum við fjöruna til útikennslu.🌞 Nemendur í 3. bekk tóku með sér greiningarlykilinn Smádýr – FJARAN, þar sem finna má myndir og upplýsingar um ýmis smádýr. Þeir notuðu lykilinn til að leita að smádýrum í fjörunni og reyndu að finna sömu tegundir og sýndar eru í greiningarlyklinum. 🦀 Sjá myndir frá útikennslunni í meðfylgjandi frétt. 📸🌊

Göngum í skólann í okkar skóla🚶‍♀️🚶‍♂️Sandgerðisskóli hefur nú þegar verið skráður til leiks í verkefninu, Göngum í skól...
08/09/2026

Göngum í skólann í okkar skóla🚶‍♀️🚶‍♂️

Sandgerðisskóli hefur nú þegar verið skráður til leiks í verkefninu, Göngum í skólann sem sett verður miðvikudaginn 9. september. Við hvetjum alla til þess að taka þátt.

Vonandi gengur þetta vel hjá okkur. Verum endilega opin fyrir þessu og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is /
Gangi ykkur vel!

Sandgerðisskóli hefur nú þegar verið skráður til leiks í verkefninu, Göngum í skólann sem sett verður á morgun miðvikudaginn 9. september og lýkur formlega miðvikudaginn 7. október. Við hvetjum alla til þess að taka þátt. Hugmyndin er að vera með ýmsar uppákomur þann mánu...

02/09/2026

Með haustinu styttist útivistartími barna og unglinga. Reglurnar eru lögfestar í barnaverndarlögum og eru fyrst og fremst hugsaðar með öryggi, heilsu og velferð barna að leiðarljósi.

Ein mikilvæg ástæða reglnanna er að börn og unglingar fái nægan svefn. Góður nætursvefn hefur meðal annars jákvæð áhrif á líðan, einbeitingu, minni og námsgetu og er mikilvægur fyrir vöxt og þroska. Unglingar þurfa almennt um 8-10 klukkustunda svefn á nóttu.

Útivistartíminn segir til um hversu lengi börn mega vera úti - ekki hversu lengi þau eiga að vera úti. Foreldrum er því að sjálfsögðu heimilt að setja börnum sínum styttri útivistartíma.

Góðar venjur, skýr mörk og nægur svefn skiptir máli. 💙

Address

Skólastræti
Sandgerði
245

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:30
Tuesday 07:45 - 15:30
Wednesday 07:45 - 15:30
Thursday 07:45 - 15:30
Friday 07:45 - 14:00

Telephone

+3544253100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sandgerðisskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share