28/08/2026
Smári Guðmundsson, tónlistarmaður og nýráðinn gítarkennari við Tónlistarskóla Sandgerðis var að gefa út nýtt lag í dag:
"Ég var að gefa út nýtt lag sem heitir Spy For Love ⚫️
Ég samdi Spy For Love þegar ég bjó í Berlín og er lagið innblásið af njósnasögum frá kalda stríðinu.
Meðan á Berlínardvölinni stóð vann ég meðal annars við að hljóðrita viðtöl. Eitt þeirra var við konu á mínum aldri sem hafði aldrei hitt föður sinn. Hann hafði flúið frá Austur-Berlín yfir til Vestur-Þýskalands og hún og móðir hennar sáu hann aldrei aftur.
Þetta viðtal snerti mig djúpt. Það að sitja þarna sem Íslendingur í Berlín og hlusta á manneskju segja frá því hvernig múrinn og skipting Þýskalands mótuðu allt hennar líf.
Á sama tíma heillaðist ég af sögum um svokallaða Rómeó-njósnara. Austurþýska leyniþjónustan sendi m.a. menn til Vestur-Þýskalands til að heilla konur sem höfðu aðgang að leynilegum upplýsingum og fengu þær síðan til að njósna fyrir sig og upp úr þeim pælingum varð Spy For Love til.
Lagið má finns á öllum helstu streymisveitum.
Upptökur og hljóðblöndun: Smári Guðmundsson, Smástirni
Hljómjöfnun: Sigurdór Guðmundsson, Skonrokk Mastering
Trommur: Halldór Lárusson
Önnur hljóðfæri: Smári Guðmundsson
Raddir: Fríða Dís Guðmundsdóttir og Smári Guðmundsson.
Teikning: Smári Guðmundsson"
Listen to Spy For Love on TIDAL