Fisktækniskóli Íslands

Fisktækniskóli Íslands

Share

Fisktækniskólinn býður upp á fjölbreitt nám sem hentar bæði körlum og konum. Námið er í

21/07/2026

Sjávarútvegsskóla unga fólksins lokið í Reykjavík sumarið 2026
Nú er Sjávarútvegsskóla unga fólksins í Reykjavík lokið þetta sumarið og viljum við hjá Fisktækniskóla Íslands þakka öllum þeim sem komu að verkefninu fyrir frábært samstarf.

Fisktækniskóli Íslands tók við umsjón verkefnisins á þessu ári. Sjávarútvegsskóli unga fólksins var áður hýstur hjá Háskólanum á Akureyri undir stjórn Guðrúnar Arndísar Jónsdóttur, sem byggði upp öflugt og mikilvægt starf. Við erum afar þakklát fyrir að fá tækifæri til að halda þessu verðmæta verkefni áfram.

Sjávarútvegsskóli unga fólksins er sumarskóli fyrir 14–16 ára ungmenni og er starfræktur í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur, Vinnuskóla Kópavogs, Vinnuskóla Seltjarnarness og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tengd sjávarútvegi. Markmið skólans er að kynna nemendum fjölbreytta starfsemi greinarinnar, menntunarleiðir og atvinnumöguleika.

Í sumar fengu nemendur meðal annars að heimsækja eða fræðast um starfsemi hjá Íslenska sjávarklasanum, Kerecis, Slysavarnaskóla sjómanna – Sæbjörgu, Björgunarsveitinni Ársæli, Sjóminjasafninu og Fiskmarkaði Íslands.
Áhuginn á skólanum var mikill en alls bárust um 145 umsóknir áður en loka þurfti fyrir skráningu. Að þessu sinni voru aðeins 65 pláss í boði sem skiptust á fjórar vikur. Það sýnir vel þann mikla áhuga sem ungt fólk hefur á sjávarútvegi og vonum við að geta fjölgað plássum á næsta ári.

Við viljum jafnframt þakka styrktaraðilum verkefnisins fyrir ómetanlegan stuðning. Brim hf.. er stærsti styrktaraðili verkefnisins ásamt Útgerðarfélagi Reykjavíkur, Faxaflóahafnir og JBT Marel á Íslandi
Takk fyrir sumarið – við hlökkum til að taka á móti nýjum hópi nemenda á næsta ári.

Fá styrk til að skapa meira verðmæti úr saltfiski 16/07/2026

Fá styrk til að skapa meira verðmæti úr saltfiski „Þetta er mikilvægt skref í að auka verðmætasköpun úr íslensku hráefni, efla nýsköpun í matvælaiðnaði og styrkja stöðu íslensks saltfisks á alþjóðlegum sérvörumörkuðum,“ segir Baldvin Steinar Ingimarsson hjá F-61 s/f. sem fær 17 milljóna króna styrk úr Matvælasj....

07/07/2026

Brim hf.

Umsjónarmaður fiskvinnsluvéla/baadermaður á frystitogara hjá Brim

Brim óskar eftir að ráða Baader/Marinemann á frystitogara. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með Baader/Marine fiskvinnsluvélum ofl.

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð reynsla af samskonar eða sambærilegu starfi

Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Útsjónarsemi og lausnamiðaður hugsunarháttur.

Umsóknir berist á netfangið.

[email protected]

Fisktækniskólinn aftur heim til Grindavíkur 06/06/2026

Fisktækniskólinn aftur heim til Grindavíkur Fisktækniskóli Íslands tekur á ný til starfa í Grindavík frá og með haustönn 2026. Skólinn flytur þá starfsemi sína úr Suðnesjabæ þar sem hann hefur verið í tvö ár.

28/05/2026
28/05/2026

Fisktækniskólinn flytur heim

Það er er alltaf í nógu að snúast hjá Fisktækniskólanum, nýbúið að útskrifa 45 flotta nemendur og nú er komið að því að flytja skólann aftur heim í Grindavíkina okkar kæru.

Grindavíkurbær er stærsti eigandi skólans og nú hefur samið um að Fisktækniskólinn leigi glæsilegt skólahúsnæði í eigu bæjarins, Hópskóla eftir tvö góð ár í Suðurnesjabæ.

Skólinn mun taka formlega til starfa í Grindavík á haustönn 2026 en fram að því verður ekki hægt að ná í starfsfólk á staðnum en á meðan verður aðeins hægt að ná í okkur í síma eða með tölvupósti.

Innritun nýnema er í fullum gangi og fer vel af stað en skráning fer fram á island.is

Klemenz Sæmundsson, skólameistari – 864 7171 [email protected]

Ásdís V. Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari – 895 7105 [email protected]

Þórdís Daníelsdóttir, skrifstofustjóri – 895 9299 [email protected]

Sjá einnig frekari upplýsingar um starfsfólk á heimasíðu skólans hér: https://www.fiskt.is/um-okkur

Photos from Fisktækniskóli Íslands's post 14/05/2026

Hjá okkur hafa verið góðir gestir síðustu daga þau Kalle Heikkinen og Waltteri Immonen frá Finnlandi og þær stöllur Dorien Meulendiikjs og Verrle Verhoeven frá Hollandi.

Þau heimsóttu Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Háaleitisskóla upp á Ásbrú en einnig heimsóttu þau Nesfisk í Garði, Samherja og AG Seafood í Sandgerði og svo starfsstöðvar Visis í Grindavík. Fannst þeim mikið til koma enda höfðu þau aldrei stigið fæti inn í fiskvinnslur á ævinni og var ánægjulegt að geta sagt frá þeirri miklu þróun og framförum sem átt hafa sér stað í sjávarútvegi hér á Íslandi síðustu áratugina.

Þau fylgdust einnig með þegar að stórkafteinninn Eiríkur Dagbjartsson landaði dagskammti sínum í Grindavíkurhöfn. Að lokum fengu þau ítarlega leiðsögn um Grindavík og eyðileggingu sem þar átti sér stað en einnig sáu þau þá uppbyggingu sem nú er í fullum gangi og dáðust þau af krafti og þrautseigju atvinnurekenda og þeirra íbúa sem flutt hafa heim aftur.

Að sjálfsögðu voru þeim svo sýnt Reykjanesið og sú starfsemi sem þar fer fram í sjávarútvegi og rafmagnsframleiðslu ásamt helstu ferðamannastöðum svæðisins.

Virkilega ánægjuleg heimsókn góðra gesta og voru þau alveg í skýjunum með hana.

Photos from Fisktækniskóli Íslands's post 13/05/2026

Í dag kvöddum við Eva Lanzas frá Bermeo vinaskóla okkar í Baskalandi, sem hefur verið skiptinemi í vinnustaðanámi hjá Andra og meistaraflokknum hans á vélaverkstæði Brim hf.
Þessir þrír mánuðir flugu hjá með nýju ævintýri í hverri viku.
Þetta var tilraun sem hefði getað endað í tómu klúðri en þegar allir eru lausnamiðaðir og jákvæðir þá gengur stundum bara allt upp 🤩🏆
Við færðum Evi lítið brot af Íslenska hrauninu, svo hún geti kveikt á reykelsi og hugsað “heim” til Íslands 🔥
Þúsund þakkir fyrir að gera þetta að veruleika fyrir Evu kæru Pálmi, Andri og teymið, Viktoría, Kristín, Þórður vélstjóri og þið öll ❤️

Want your school to be the top-listed School/college in Sandgerði?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Suðurhóp 2
Sandgerði
240

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 13:00