Matís

Matís Hjá Matís er unnið að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu.

Verkefnin eru unnin í samvinnu við matvælaframleiðendur, háskóla og öll þau sem með einhverjum hætti veita matvælaiðnaði þjónustu. Matís focuses on research and development in the food and biotechnology industries and supports companies from all over the globe.

📣Oddur Már Gunnarsson, forstjóri Matís, er hér í skemmtilegu viðtali við Fiskifréttir um hlutverk Matís og vegferð íslen...
29/09/2026

📣Oddur Már Gunnarsson, forstjóri Matís, er hér í skemmtilegu viðtali við Fiskifréttir um hlutverk Matís og vegferð íslensks sjávarútvegs síðastliðna áratugi.

💡„Þekkingin er það eina sem eyðist ekki þó af henni sé tekið. Hún bara vex og vex eftir því sem fleiri koma að henni.“

👉Lestu viðtalið í heild sinni hér: https://loom.ly/z7yXBZ4

Oddur Már Gunnarsson, forstjóri Matís, rekur tveggja áratuga vegferð íslensks sjávarútvegs, frá því að makríll varð að súpu í lestinni til þess að verða að eftirsóttri hágæðavöru

🌿 Nýtt verkefni um sjálfbærar áburðarlausnir úr íslenskum sjávarþörungumMatís, Isea ehf og Landbúnaðarháskóli Íslands vi...
28/09/2026

🌿 Nýtt verkefni um sjálfbærar áburðarlausnir úr íslenskum sjávarþörungum

Matís, Isea ehf og Landbúnaðarháskóli Íslands vinna saman að þróun hágæða, umhverfisvottaðra áburðarafurða úr íslensku klóþangi úr Breiðafirði.

Markmið verkefnisins er að þróa og besta framleiðsluferla, kanna áhrif og virkni afurðanna á plöntur og leggja grunn að uppskölun framleiðslu. Verkefnið byggir á fyrri rannsóknum sem sýndu fram á möguleika til fullnýtingar klóþangs.

💡Kynntu þér verkefnið nánar hér: https://loom.ly/HDYr088

Verkefnið Fullvinnsla umhverfisvottaðra áburðarafurða úr sjávarþörungum er samstarfsverkefni milli Matís ohf, Isea ehf og Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ). Verkefnið snýr að […]

📣 Sjáumst á Vísindavökunni í Laugardalshöll á morgun, 26. september, kl. 12:00–17:00!Á bás Matís verður líf og fjör fyri...
25/09/2026

📣 Sjáumst á Vísindavökunni í Laugardalshöll á morgun, 26. september, kl. 12:00–17:00!

Á bás Matís verður líf og fjör fyrir alla fjölskylduna. Þar verður meðal annars teiknisamkeppni í boði BioProtect verkefnisins og kynning á MarineGuardian verkefninu 🌊🐟

Komdu við, spjallaðu við okkur og taktu þátt í skemmtilegri teiknisamkeppni!

Við hlökkum til að sjá ykkur í Laugardalshöll!

📣Matís á ICEFISH 2026🐟🤝Komdu og hittu okkur á ICEFISH í Fífunni dagana 22.–24. september. Matís verður á sameiginlegum b...
23/09/2026

📣Matís á ICEFISH 2026🐟

🤝Komdu og hittu okkur á ICEFISH í Fífunni dagana 22.–24. september. Matís verður á sameiginlegum bás með Atvinnuvegaráðuneytið, Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun og Matvælastofnun .

👉Á básnum okkar, P24, getur þú tekið þátt í skemmtilegum leik og reynt á þekkinguna á því hver gerir hvað? Svaraðu laufléttum spurningum og þú átt möguleika á að vinna glæsilegt gjafabréf í Reykjaböðin í Hveragerði.

Við hlökkum til að sjá þig!

📣Benedek Rogoczi og Lalit Rane frá Havdis komu í heimsókn í Matís, en þessir stórhuga frumkvöðlar eru að þróa PDRN (poly...
22/09/2026

📣Benedek Rogoczi og Lalit Rane frá Havdis komu í heimsókn í Matís, en þessir stórhuga frumkvöðlar eru að þróa PDRN (polydeoxyribonocleotide) sem unnið er úr þorsksvilum.
🐟Þorsksvil eru lítið nýtt og því er hér um mikið tækifæri til að auka nýtingu og verðmætasköpun í hliðarstraumum þorsks enn frekar.
💡PDRN hefur sannað sig sem áhrifamikið lífvirkt efni sem nýtist í snyrti- og húðlækningavörur.

Við hjá Matís fylgjumst spennt með vegferð þessara frumkvöðla og hlökkum til að styðja við vegferð þeirra á komandi árum

18/09/2026

📣Hjá Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði stunda Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir lífræna ræktun á korni og grænmeti. Þau hafa verið frumkvöðlar í hagnýtingu byggs til manneldis og má í því sambandi nefna bankabygg og perlubygg, hvort tveggja fæst í verslunum og nýtur vaxandi vinsælda.

🌾Sumarið 2025 var einstaklega gott til kornræktar í Vallanesi. Hveiti náði góðum þroska og hafa bakarí sóst eftir því til brauðframleiðslu en magnið er takmarkað. Stærsta fréttin er þó sú að Eymundi tókst að malta hveitið og fyrsti austfirski hveitibjórinn var framleiddur.🍺

🍻Eymundi hafði áður tekist að malta eigið bygg og það var nýtt til framleiðslu á austfirskum bjór. Þetta er frábært dæmi um frumkvöðlastarf og verðmætaaukningu í héraði. Ekkert innflutt malt var notað við framleiðsluna en það er flutt inn í mjög miklu magni til bjórgerðar.

🎬Myndbandið er frá Móður Jörð, höfundur Karl Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður.

📣Þróun fjörugrasagels fyrir íslenskan markaðNýtt samstarfsverkefni Matís og Arctic Algae er að hefjast þar sem þróaðar v...
16/09/2026

📣Þróun fjörugrasagels fyrir íslenskan markað

Nýtt samstarfsverkefni Matís og Arctic Algae er að hefjast þar sem þróaðar verða nýjar afurðir úr fjörugrösum í fromi gels. Fjörugrös eru rík af steinefnum, trefjum og ýmsum lífvirkum efnum.

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir fjörugrasagelum aukist og varan verið markaðssett sem náttúrulegt fæðubótarefni sem styður við meltingu, ónæmiskerfi og almenna vellíðan.

👉Fylgstu með gangi verkefnisins, hér: https://loom.ly/WZ3fv-I
Arctical

Verkefnið snýr að þróun nýrrar afurðar úr fjörugrösum (e. sea moss) í formi gels. Fjörugrös eru rauðþörungar sem hafa lengi […]

📣 Matís er á   ! Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýssköpunar, og Sophie Jensen, verkefnastjóri, eru þar stö...
15/09/2026

📣 Matís er á ! Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýssköpunar, og Sophie Jensen, verkefnastjóri, eru þar stödd fyrir hönd Matís.

Jónas R. Viðarsson stýrir málstofur um tækni til að draga úr meðafla, í dag 15. september.

👉 Auk þess eru kynningar og básar fyrir verkefnin MarineGuardian, , og -WATER

Fiskifréttir fjallar hér um verkefnið CLEAR- WATER sem Matís leiðir. 💡Verkefnið vinnur að því að þróa samræmdar og hagkv...
15/09/2026

Fiskifréttir fjallar hér um verkefnið CLEAR- WATER sem Matís leiðir.

💡Verkefnið vinnur að því að þróa samræmdar og hagkvæmar aðferðir til vöktunar á rusli í vatnsumhverf.🌊

👉Við mælum með að lesa fréttina hér:

CLEAR-WATER verkefnið svokallaða miðar að því að þróa samræmdar og hagkvæmar aðferðir til vöktunar á rusli í vatnsumhverfi, allt frá ferskvatni til strand- og hafsvæða, frá uppruna ruslsins til hafsins og frá stórum úrgangshlutum niður í nanóplast. Matís leiðir verkefnið...

📣Natasa Desnica, fagstjóri efnamælinga hjá Matís, er hér í viðtali við RÚV um varnarefni, hvaða tilgangi þau þjóna og hv...
14/09/2026

📣Natasa Desnica, fagstjóri efnamælinga hjá Matís, er hér í viðtali við RÚV um varnarefni, hvaða tilgangi þau þjóna og hvers vegna mikilvægt sé að þau séu ekki í of miklu magni í matvælum. 🍎

Innflutningur á ávöxtum og grænmeti frá ólíkum heimshlutum hefur aukist og reglur um notkun varnarefna og eftirlit með þeim geta verið mismunandi eftir löndum.

👉„Öflugt eftirlit með varnarefnaleifum og öðrum mengandi efnum í matvælum er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr til að tryggja öryggi matvæla og vernda heilsu neytenda. Ég vil því nota tækifærið og ítreka mikilvægi þess að auka fjölda sýna til mælinga á varnarefnaleifum frekar en að draga úr þeim.“ - útskýrir Natasa

💡Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér: https://loom.ly/Y6aRNWw

Varnarefni eru í fjölda matvæla sem við borðum. Þau þjóna mikilvægum tilgangi en mega á sama tíma ekki vera í of miklu magni í matarræði okkar. En hvað eru varnarefni og hvað gera þau?

Address

Vínlandsleið 12
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544225000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Matís posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Matís:

Shortcuts

Share