Jarðvísindastofnun Háskólans

Jarðvísindastofnun Háskólans Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Jarðvísindastofnun Háskólans, Reykjavík.

Á dögunum fóru Steffen Mischke, Mikael Blær Eyjólfsson, Joana Wagner og Peter Frenzel í sýnatökuferð við Hóp á norðvestu...
09/07/2026

Á dögunum fóru Steffen Mischke, Mikael Blær Eyjólfsson, Joana Wagner og Peter Frenzel í sýnatökuferð við Hóp á norðvesturlandi. Verkefnið er samstarf vísindamanna frá Íslandi og Þýskalandi og er styrkt af Háskóla Íslands. Markmið þess er að kanna dreifingu skelkrabba og götunga við strandsvæði landsins. Þessar lífverur gefa vísbendingar um ástand og heilbrigði þessara svæða og segja til um umhverfisbreytingar m.a. vegna loftslagsbreytinga.
📸 Joana Wagner
Mynd 6: skelkrabbi, F. angulata úr Fossvogi.
Mynd 7: götungur, C.williamsoni úr Fossvogi.

Á hverju ári kemur nokkur fjöldi erlendra aðila til Íslands sem vinna að þáttagerð og öðru fræðsluefni. Hér er Freystein...
01/07/2026

Á hverju ári kemur nokkur fjöldi erlendra aðila til Íslands sem vinna að þáttagerð og öðru fræðsluefni. Hér er Freysteinn Sigmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Sólheimajökul í viðtali hjá aðilum sem vinna að sjónvarpsþætti um eldfjöll fyrir Asíumarkað. Auk umbrotanna á Reykjanesskaga, þá komu þau sérstaklega til Íslands til að segja frá því hvernig hopandi jöklar á eldfjöllum hafa áhrif á kvikuframleiðslu og stöðugleika kvikusöfnunarsvæða í jarðskorpunni. Eldfjallið Katla undir Mýrdalsjökli er eitt af áherslusvæðum í rannsóknarverkefninu ISVOLC (https://jardvis.hi.is/is/isvolc) sem fjallar um þessi áhrif.

Á Reykjanesi eru um 30 síritandi GPS stöðvar sem safna gögnum um jarðskorpuhreyfingar og landris. Jarðvísindastofnun og ...
28/05/2026

Á Reykjanesi eru um 30 síritandi GPS stöðvar sem safna gögnum um jarðskorpuhreyfingar og landris. Jarðvísindastofnun og Veðurstofa Íslands sjá um eftirlit þessara stöðva. Hér er Sveinbjörn okkar að sinna viðhaldi á tveim þeirra, HS02 og Skipastígshrauni, enda mikilvægt að fylgjast vel með stöðu mála á þessu svæði.

Gervihnattamælingar veita nýja innsýn í eðli jökulhlaupa - Ný grein í tímaritinu Nature Communications
16/04/2026

Gervihnattamælingar veita nýja innsýn í eðli jökulhlaupa - Ný grein í tímaritinu Nature Communications

Ný kenning um jökulhlaup birtist í tímaritinu Nature Communications (https://doi.org/10.1038/s41467-026-70428-w) Grímsvötn í Vatnajökli í mars 2026. Í forgrunni er Eystri Svíahnúkur með skálum Jöklarannsókna–félags Íslands (mynd: Eyjólfur Magnússon).   Jökulhlaup í Skeiðar....

Hægt að binda koltvíoxíð í bergi án utanaðkomandi ferskvatns
01/04/2026

Hægt að binda koltvíoxíð í bergi án utanaðkomandi ferskvatns

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Athugið að umsóknarfrestur fyrir VOLCOM er 11. mars 2026.
18/03/2026

Athugið að umsóknarfrestur fyrir VOLCOM er 11. mars 2026.

Jarðsjár æfingar fræðinga framtíðar. Future generation applying GPR
11/03/2026

Jarðsjár æfingar fræðinga framtíðar. Future generation applying GPR

Alexandra K. Hafsteinsdóttir, MS nemi í jarðfræði við Háskóla Íslands, hlaut í vikunni Nýsköpunarverðlaun forseta Ísland...
21/01/2026

Alexandra K. Hafsteinsdóttir, MS nemi í jarðfræði við Háskóla Íslands, hlaut í vikunni Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga.
Verkefnið var unnið hjá Íslenskum orkurannsóknum og í samstarfi við vísindamenn Háskóla Íslands. Markmið þess var að kortleggja grunnvatnsstrauma á Reykjanesskaga með leiðni- og efnagreiningum, samhliða þróun nýrrar, rafknúinnar vatnsdælu sem auðveldar sýnatöku úr grunnum ferskvatnsholum.
Niðurstöðurnar sýna skýr skil milli vatnasvæða og eru í góðu samræmi við fyrri rannsóknir. Jafnframt var fylgst með mögulegum áhrifum eldgoss í Sundhnúkagígaröðinni, en niðurstöður benda ekki til marktækra breytinga á efnasamsetningu grunnvatnsins.
Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi verkefni styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2025.
Við óskum Alexöndru til hamingju með viðurkenninguna.

Guðrún Larsen hlaut heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, 1. janúar 2026.
06/01/2026

Guðrún Larsen hlaut heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, 1. janúar 2026.

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Address

Reykjavík

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jarðvísindastofnun Háskólans posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share