Kóder eru samtök sem vilja kynna forritun fyrir ungmennum á aldrinum 9-16 ára í sínu hverfi. Kóder.is er skráð sem frjáls félagasamtök (4. tl. 2. gr.
Kóder eru félagasamtök sem stefna að því að gera forritun aðgengilega fyrir börn og unglinga úr öllum þjóðfélagsstigum. Með því að kynna forritun fyrir börnum og unglingum er verið að opna þeim nýjar dyr innan tölvuheimsins. Í stað þess að vera einungis neytendur á afþreyingarefni og tölvuleikjum efla þau eigin rökvísi, sköpunargáfu og læra vandamálagreiningu frá unga aldri. Samtökin vilja einnig
fóstra gerðu-það-sjálf/ur (DIY) kúltúr og notast við það afgangshráefni (stundum kallað rusl) sem til fellur frá samfélaginu. Með því að rífa í sundur raftæki sem annars lenda á haugunum er hægt að endurnýta mikið af íhlutum aftur. Sem stendur er ekki boðið upp á heildstæða forritunarkennslu í grunnskólum en börn og unglingar hafa átt þess kost að sækja sér slíka kennslu hjá einkafyrirtækjum. Evrópusambandið hefur skilgreint færni í upplýsingatækni, þar á meðal forritun, sem lykilfærni framtíðarinnar. Samkvæmt könnun sem sambandið gerði á meðal 27 Evrópuríkja kemur í ljós að 95% af þeim eru annaðhvort byrjuð á að setja forritun á námsskrá eða ætla að gera þá á næstunni. Ísland er ekki þar á meðal (sjá heimild). Vegna kostnaðar er hætt við að það reynist einungis mögulegt fyrir börn og unglinga frá betur stæðum heimilum. Þó mögulegt sé að nýta frístundaávísanir upp í verðið þá þýðir það að fórna þurfi öðrum tómstundum í staðinn. Ein birtingarmynd efnahagslegs ójöfnuðar er skortur á tækifærum fyrir ungmenni frá tekjulágum heimilum. Hér á landi er kostnaðarsamt að eiga ungmenni sem stunda fleiri en eitt tómstundarstarf og því hafa tekjulágir foreldrar ekki sama möguleika og tekjuháir á því að borga tómstundir barna sinna. Hugmyndin á bak við Kóder er að brúa þetta bil milli tekjuhópa og veita með því börnum frá tekjulágum heimilum möguleika á þekkingu sem verður æ verðmætari með hverju árinu. Markmið Kóder er að bjóða upp á námskeið sem allir hafa aðgang að óháð tekjum. Boðið verður upp á tilraunanámskeið í tekjulægri hverfum Reykjavíkur á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016. Með tíð og tíma er stefnt að því að halda námskeiðið víðar og bjóða upp á námskeið á öðrum tungumálum en íslensku. Hugsjón samtakanna nær einnig út fyrir landsteinana og verður vonandi boðið upp á námskeið erlendis í framtíðinni.
Í kennslunni verður notast við frjálsan hugbúnað og 6.000 króna tölvu (Raspberry Pi). Samtökin munu kappkosta að fá fyrirtæki til að styrkja verkefnið svo hægt sé að bjóða upp á námskeiðið gegn lágmarksgjaldi eða frítt ef nægir styrkir berast.
Á Íslandi ríkir skortur á forriturum og öðru tæknimenntuðu fólki. Það er því bæði hagur fyrirtækja og samfélagsins alls að búa sem best að yngstu kynslóðinni og veita öllum sömu tækifæri. laga nr. 17/2003), svo hægt sé að taka við greiðslum. Hinsvegar, þá hagnast meðlimir Kóder.is ekki á verkefninu, né höfum við áhuga á því.