Slysavarnaskóli sjómanna

Slysavarnaskóli sjómanna Nánari upplýsingar er að finna í síma 562-4884 milli 0800-1600 eða senda póst á [email protected] Flestir nemendur skólans eru starfandi á fiskiskipum.

Slysavarnaskóli sjómanna tók til starfa árið 1985, en markmið skólans er samkvæmt lögum að efla öryggisfræðslu sjómanna með öflugum skóla sem uppfyllir íslenskar og alþjóðlegar kröfur um þjálfun sjómanna og að auka þjónustu við sjómenn og fleiri aðila í tengslum við sjó og vötn. Samkvæmt íslenskum lögum ber öllum sem starfa á sjó að hafa farið í gegnum öryggisfræðslu. Einnig eru gerðar kröfur um að öryggisfræðsla skipverja sé endurnýjuð eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.

Íslenskir kaupskipasjómenn sækja einnig námskeið við skólann þótt skip þeirra sigli ekki undir íslenskum fána eða íslenskum lögum. Alþjóðlegar kröfur kveða á um þjálfun þeirra, þ.e.a.s. STCW-samþykktin sem Ísland er aðili að. Skólinn uppfyllir kröfur um þjálfun í samræmi við STCW samþykktina. Um borð í skólaskipinu Sæbjörgu er fullkomin kennsluaðstaða bæði til bóklegrar kennslu og verklegra æfinga. Á grunnnámskeiði eru kennd undirstöðuatriði í skyndihjálp, sjóbjörgun, eldvörnum og öryggismálum. Meðal þess sem kennt er á námskeiðum skólans er meðferð björgunarfara, björgunarbúninga, búnaðar til að bjarga fólki úr sjó, flugelda og blysa og hverskonar persónulegs björgunarbúnaðar. Eldur um borð í skipi er það sem flestir sjómenn óttast. Kennd er notkun hvers konar búnaðar til slökkvistarfa og notkun hans æfð. Verklegar eldvarnaræfingar eru einkum haldnar á þar til gerðu æfingasvæði rétt utan við Reykjavík. Um borð í Sæbjörgu er einnig fullkomin aðstaða til reykköfunaræfinga. Fólk getur farið í hjarta- og/eða öndunarstopp hvar og hvenær sem er. Því er nauðsynlegt að allir í áhöfn skips kunni endurlífgun. Til að auka líkur á að það takist að endurlífga mann þarf að hafa til taks besta mögulega búnað til endurlífgunar og einnig þarf að kunna á búnaðinn. Kennsla á hjartarafstuðtæki (AED) var tekin upp í endurlífgunarkennslu skólans í byrjun ársins 2004.

Þyrlur Landhelgisgæslunnar taka þátt í verklegum sjóæfingum á STCW grunnnámskeiði skólans. Þar hafa sjómenn æft móttöku á sjúkrabörum, flutning á fólki frá skipi og gúmmíbjörgunarbátum ásamt því að hífa menn úr sjó. Frá 2002 hefur skólinn annast kennslu í sjóbjörgun fyrir björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Helstu námskeið þar eru slöngubátur 2, harðbotna björgunarbátar, Atlantic 21 ásamt áhafna- og bátastjóranámskeiðum fyrir björgunarskip félagsins. Björgunarskip félagsins, þá einkum Ásgrímur S. Björnsson, taka þátt í þyrluæfingum skólans. Námskeið í Slysavarnaskóla sjómanna skiptir sköpum ef eitthvað óvænt og ófyrirséð gerist um borð í skipi. Láttu ekki þína vanþekkingu valda þér og skipsfélögum þínum erfiðleikum.

VÍS færir Slysavarnaskóla sjómanna flotbjörgunarbúninga sextánda árið í röð 🤝⚓VÍS hefur fært Slysavarnaskóla sjómanna tí...
03/09/2026

VÍS færir Slysavarnaskóla sjómanna flotbjörgunarbúninga sextánda árið í röð 🤝⚓

VÍS hefur fært Slysavarnaskóla sjómanna tíu nýja flotbjörgunarbúninga að gjöf, sextánda árið í röð. Búningarnir eru mikilvægur hluti af verklegri þjálfun við skólann og eru meðal annars notaðir við æfingar í björgun og viðbrögðum við neyðartilvikum á sjó.

Samstarfið við VÍS hefur því staðið samfellt í 16 ár og stuðlað að því að nemendur skólans hafi ávallt aðgang að öruggum og vel viðhöldnum búnaði við þjálfun sína.

„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa flotbjörgunarbúninga sem eru í fullkomnu lagi. Nemendur okkar nota búningana við verklega þjálfun og við erum afar þakklát VÍS fyrir þennan mikilvæga stuðning, ár eftir ár,“ segir Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.

Við þökkum VÍS kærlega fyrir traust og farsælt samstarf undanfarin 16 ár og mikilvægan stuðning við öryggisfræðslu sjómanna.

Í dag fagnar Slysavarnaskóli sjómanna 41 árs afmæli.Í rúma fjóra áratugi hefur skólinn unnið að auknu öryggi sjómanna me...
29/05/2026

Í dag fagnar Slysavarnaskóli sjómanna 41 árs afmæli.

Í rúma fjóra áratugi hefur skólinn unnið að auknu öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun. Á myndunum má sjá brot af starfi skólans í dag, fjarnám smábátasjómanna, þjálfun í siglingahermum og verklegar æfingar í notkun líf- og léttbáta.

Við þökkum öllum nemendum, kennurum og samstarfsaðilum fyrir samfylgdina.

27/05/2026

Kíkt um borð í Sæbjörgina⚓🛟

Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður árið 1985 með það að markmiði að draga úr alvarlegum slysum á sjó. Frá þeim tíma hefur gríðarlegur árangur náðst í öryggisfræðslu og forvörnum fyrir sjómenn og einstaklinga sem starfa í haftengdri starfsemi.

Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, tók á móti okkur um borð í skólaskipinu og sagði frá fjölbreyttu starfi skólans. Um 2000 nemendur sækja námskeið skólans á hverju ári.

Lengra spjall við Boga má heyra í hlaðvarpi Landsbjargar, Út í óvissuna.

05/05/2026
Vorfundur smábátasjómanna fer fram á eftir.VIð minnum á fundinn kl 17:00 í dag en að honum standa Landssamband smábátaei...
09/04/2026

Vorfundur smábátasjómanna fer fram á eftir.

VIð minnum á fundinn kl 17:00 í dag en að honum standa Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna.

Fundurinn fer fram á netinu en hann verður einnig sýndur í húsakynnum Slysavarnafélagsins Landsbjargar víða um land. Þar gefst tækifæri til að hitta mann og annan yfir kaffibolla og fylgjast með fundinum.

Dagskrá fundarins, staðsetningar og hlekkur á streymi má finna á vefsíðunni island.is/vorfundur

Address

Bótarbryggja
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:30
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 15:30

Telephone

+3545624884

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slysavarnaskóli sjómanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category