11/04/2023
STÓRT VERK! NÝTT NÁMSEFNI UM FYRRI HEIMSSTYRJÖLDINA
https://framhaldsskoli.is
---
https://nytt.skolavefurinn.is/islenska/unglingastig/fyrri-heimsstyrjoldin-frh
---
Nú bjóðum á glænýtt efni um fyrri heimstyrjöldina í aðgengilegum búningi fyrir framhaldsskóla.
Fyrri heimsstyrjöldin var ásamt með síðari heimstyrjöldinni sá atburður sem hvað mest mótaði tuttugustu öldina og þann veruleika sem við búum við í dag. Til að skilja betur samtímann er nauðsynlegt að kunna á henni skil.
-Fimm stuttar bækur
Efnið skiptist í fimm stuttar bækur og má segja að fyrstu tvær bækurnar séu heildstætt efni þar sem farið er yfir aðdraganda styrjaldarinnar, gang hennar og niðurstöður. Hinar þrjár bækurnar eru ítarefni fyrir þá sem vilja fræðast enn frekar um meginmálið.
-Uppsetning
Efnið er hægt að prenta út en svo er efnið einnig aðgengilegt á góðri vefsíðu þar sem hægt er að hlusta á það upplesið og glíma við gagnvirkar fjölvalsspurningar.
Þá munum við innan skamms bjóða upp á myndbandsviðtöl við nokkra einstaklinga sem upplifðu átökin á eigin skinni.
-Síðari heimsstyrjöldin væntanleg
Samskonar efni um síðari heimsstyrjöldina væntanlegt innan skamms.
https://framhaldsskoli.is/
---
https://nytt.skolavefurinn.is/islenska/unglingastig/fyrri-heimsstyrjoldin-frh
---
22/01/2020
Hákarlalegur og hákarlamenn
- Theódór friðriksson
Bókina 'Hákarlalegur og hákarlamenn' skrifaði Theódór að beiðni ýmissa framámanna sem vildu að sú þekking sem hann hafði á þessum atvinnuvegi, þessum stórmerka þætti í atvinnusögu okkar Íslendinga, glataðist ekki. Var hann m.a. kostaður af Sigurði Nordal þegar hann skrifaði bókina.
Er hér um að ræða ómetanlega heimild um líf sem Theódór þekkti vel af eigin raun, þar sem dauðinn var sífellt nálægur og lífsbaráttan hörð. Theódór segir okkur hér frá því hvernig menn sóttu hákarl, hvaða nytjar var hægt að hafa af honum, frá mönnunum sem sóttu hann í hyldýpi hafsins og öðru sem þessu tengdist. Og hann segir okkur það á sinn ótrúlega látlausa og einfalda hátt þannig að við verðum næstum því þátttakendur í öllu saman. Slíkt geta bara snillingar.
Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941, og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli.
--------------------
Þjóðlegur fróðleikur
-------------------
https://hlusta.is/stafsrofsrod/h%C3%A1karlalegur-og-h%C3%A1karlamenn
01/12/2017
NÝIR TÍMAR / 27 nýjar spurningar
--------------------------------
Í dag bjóðum við upp á nýjan skammt af þjálfunarspurningum í spyrlinum okkar sem tengjast kennslubókinni Nýir tímar eftir þá Gunnar Karlsson og Sigurð Ragnarsson. Nefnist kaflinn Jón Sigurðsson, Alþingi og lok einveldis. Spurningarnar úr þeim kafla eru 27.
http://framhaldsskoli.is/fhs/spyrill
01/12/2017
HRAFNKELS SAGA FREYSGOÐA Í HEILDSTÆÐUM KENNSLUBÚNINGI
-----------------------------------------------------
Hrafnkels saga Freysgoða er Íslendingasaga og jafnframt frægust allra Austfirðinga sagna. Hefur hún löngum verið mönnum hugleikin, sem m. a. má sjá af því að um enga aðra Íslendingasögu hefur verið skrifað meira nema ef væri Njála. Þrátt fyrir að hún sé heldur knöpp í samanburði við margar aðrar Íslendingasögur skipa listræn efnistök og bygging henni á bekk með þeim bestu. Er hún hér boðin í rafrænni útgáfu og auðvitað er einnig hægt að prenta hana út. Sögunni fylgja orðskýringar, spurningar um innihald og svör, leiðbeiningar til kennara (umræðuefni) og upplestur.
http://framhaldsskoli.is/namsgreinar/islenska-islenska-1/hrafnkels-saga-freysgoda
15/11/2017
Að margfalda í kross (1-8) - Jöfnur - STÆRÐFRÆÐI 105 – NÝ MYNDBÖND
---------------------------------------
http://framhaldsskoli.is/fhs/staerdfraediskyringar
---------------------------------------
Þegar leysa þarf jöfnu með almennum brotum er snilldar aðferð að margfalda í kross. Framhaldsskoli.is er með átta ný myndbönd þar sem aðferðin að margfalda íkross er útskýrð.
09/11/2017
ALMENN SÁLFRÆÐI - HUGUR, HEILI OG HÁTTERNI - 3. KAFLI
---------------------------------------
http://framhaldsskoli.is/fhs/spyrill
---------------------------------------
Það er komið að þriðja skammtinum af þjálfunarspurningum úr bókinni Almenn sálfræði – Hugur, heili og hátterni eftir þau Aldísi Guðmundsdóttur og Jörgen Pind. Í þessum skammti bjóðum við upp á 53 spurningar úr 3. kaflanum.
09/11/2017
NÝTT - TÍMALÍNUR
---------------------------------------
http://framhaldsskoli.is/
---------------------------------------
Tímalínur eru aðgengileg og forvitnileg leið til að læra söguna og sjá hana í samhengi við aðra hluti. Því förum við nú af stað með safn tímalína sem hægt er að vafra um sér til fróðleiks og skemmtunar. Þá henta þær vel á skjávarpa í kennslustofu og er tilvalið að enda kennslustundir með því að skoða eitthvað sem gerðist á einhverjum tilteknum tíma. Nú þegar eru tímalínurnar orðnar sjö. Þær bera yfirheitið: Ísland og Noregur á 10. öld, Heimurinn á 10. öld, Ísland á 11. öld, Heimurinn á 11. öld, Jón Sigurðsson (19. öld), Sjálfstæðisbaráttan (19. öld) og Heimurinn á 19. öld.
09/11/2017
NÝIR TÍMAR - 3. ÞJÓÐERNISHYGGJA, RÓMANTÍK OG LÝÐRÆÐISSTEFNA (25 NÝJAR SPURNINGAR)
---------------------------------------
http://framhaldsskoli.is/fhs/spyrill
---------------------------------------
Í dag bjóðum við upp á nýjan skammt af þjálfunarspurningum í spyrlinum okkar sem tengjast kennslubókinni Nýir tímar eftir þá Gunnar Karlsson og Sigurð Ragnarsson. Við erum stödd í þriðja undirkafla annars kafla. Nefnist hann Þjóðernishyggja, rómantík og lýðræðisstefna. Spurningarnar eru 25.
09/11/2017
SCÉNARIO 1 (NÝJAR ORÐAFORÐASPURNINGAR) - 13. SKAMMTUR
---------------------------------------
http://framhaldsskoli.is/fhs/spyrill
---------------------------------------
Í dag er það skammtur númer 13. Eins og fyrri daginn getið þið valið um að reyna ykkur við frönsk orð og einnig snúið því við og glímt við íslensk orð yfir á frönsku. Frábær leið til að efla orðaforðann í frönsku.