Hjá FranklinCovey umbreytum við vinnustöðum með því að virkja framúrskarandi leiðtoga, teymi og menningu til aukins árangurs. Í öflugu samstarfi við fagfólk okkar breytir starfsfólk viðhorfum sínum og athöfnum– bæði einstaklingshegðun og sameiginlegri hegðun – á farsælli vegferð sem hefur varanleg áhrif á hag allra. Efni okkar, sem byggir á tímalausum lögmálum um mannlegan árangur, er hannað til að hjálpa fólki að breyta bæði hugarfari sínu og hegðun. Við sameinum áhrifaríkt námsefni við öflugt teymi sérfræðinga, og sköpum kraftmikinn vettvang til breytinga á hegðun og lykilmælikvörðum sem skilar framúrskarandi árangri, aftur og aftur. Sérhæfing okkar liggur á sjö sviðum:
FORYSTA
Þróum árangursríka stjórnendur og leiðtoga sem virkja fólk, ferli og framtíðarsýn til framúrskarandi árangurs. FRAMKVÆMD
Gerum vinnustöðum kleift að hrinda í framkvæmd stefnu og snúa orðum í athafnir. FRAMLEIÐNI
Leiðbeinum fólki við að stjórna ákvörðunum sínum, athygli og orku til að uppskera í lífi og starfi. TRAUST
Byggjum vinnustaðamenningu á grunni trausts, samstarfs og helgunar sem leiðir af sér aukin afköst og minni kostnað. SALA
Umbreytum sambandi seljenda og kaupenda með kerfisbundinni nálgun og því hugarfari að hjálpa viðskiptavinum að skara framúr. VERKEFNASTJÓRNUN
Virkjum framlag allra með hagnýtri nálgun við stjórnun fólks, ferla og árangursríkra verkefna. MENNTUN
Aðstoðum skóla til bættrar frammistöðu með því að leysa úr læðingi einstakt framlag allra nemenda og kennara. VIð erum alltaf tilbúin að sækja ykkur heim og rýna með þér og þínu stjórnendateymi tækifæri til aukins árangurs með lausnum FranklinCovey. Sláðu á þráðinn 775-7070, sendu okkur línu á [email protected] eða kíktu á áhrifaríka valkosti á þinni vegferð: www.franklincovey.is og www.franklincovey.com