Íslenska æskulýðsrannsóknin

Íslenska æskulýðsrannsóknin

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Íslenska æskulýðsrannsóknin, College & University, Saga, Hagatorgi 1, Reykjavík.

Markmið Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun.

13/04/2026

Mennta- og barnamálaráðuneytið, Háskóli Íslands, Menntavísindasvið, Háskólinn í Reykjavík (HR) og Rannsóknir og greining (R&G) hafa undirritað nýjan samstarfssamning um þróun samstarfs og miðlun niðurstaðna grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) árið 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem samkomulag er gert við HR og R&G um miðlun niðurstaðna úr grunnskólakönnun ÍÆ, og markar það nýtt skref í auknu samstarfi þessara aðila sem nú standa þétt saman að verkefninu.

Háskóli Íslands er áfram framkvæmdaraðili ÍÆ og ber ábyrgð á framkvæmd rannsóknarinnar fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið. Nýtt hlutverk R&G felst í að styðja við miðlun og frekari nýtingu niðurstaðna, meðal annars með aukinni þjónustu við sveitarfélög, skóla og aðra hagaðila. Samningurinn gildir til loka árs 2026 og verður endurmetinn með hliðsjón af reynslu og árangri, með möguleika á framlengingu.

Íslenska æskulýðsrannsóknin er umfangsmesta rannsókn á velferð og viðhorfi barna sem framkvæmd er hér á landi. Markmið hennar er að safna reglubundnum og áreiðanlegum gögnum um velferð, líðan og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöðurnar aðgengilegar til að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku. Grunnskólakönnun ÍÆ er lögð fyrir á hverju vori og er leitast við að ná til allra nemenda í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins. Árið 2025 tóku 24.688 nemendur þátt í rannsókninni eða tæplega 73% nemenda í 4.-10. bekk á landinu öllu. Rannsókn ÍÆ var fyrst framkvæmd árið 2022 og hefur síðan verið í stöðugri þróun með það að markmiði að mæta þörfum hagaðila og styðja betur við farsæld barna.

Meginniðurstöður könnunarinnar fyrir landið í heild eru birtar í árlegum landsskýrslum. Auk þess eru unnar sérstakar sveitarfélaga- og skólaskýrslur fyrir þá aðila sem uppfylla ákveðin skilyrði um þátttöku. Sveitarfélög og skólar hafa þó í auknum mæli kallað eftir frekari greiningum, skýrari túlkun gagna og aukinni eftirfylgni.

Með nýjum samstarfssamningi er brugðist við þessu ákalli. R&G munu bjóða sveitarfélögum, skólum og öðrum hagaðilum viðbótarþjónustu gegn gjaldi, svo sem sértækar greiningar, kynningar og ráðgjöf um túlkun niðurstaðna. Jafnframt mun R&G taka þátt í áframhaldandi þróun skóla- og sveitarfélagsskýrslna með það að markmiði að þær nýtist sem best í starfi á vettvangi.

Samstarfið endurspeglar aukna áherslu stjórnvalda á að efla yfirsýn yfir stöðu barna og ungmenna í íslensku samfélagi, bæði hvað varðar menntun og líðan. Á undanförnum misserum hafa stjórnvöld kynnt ýmis verkefni og aðgerðir sem miða að því að styrkja gagnasöfnun, greiningu og miðlun upplýsinga um hag barna. Með þessu nýja samkomulagi er stigið mikilvægt skref til að tryggja að gögn ÍÆ nýtist enn betur til umbóta í skólastarfi og stefnumótun á öllum stjórnsýslustigum.

Mynd: Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt f.v. Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs HÍ, Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, Ingu Dóru Sigfúsdóttur, stofnanda Rannsókna og greininga, og Ragnýju Þóru Guðjohnsen, faglegum stjórnanda Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar við undirritun samnings í mennta- og barnamálaráðuneytinu í dag

Heilsan okkar: Fíknivandi ungmenna 06/03/2026

Upptaka af fundinum Heilsan okkar: Fíknivandi ungmenna sem var haldinn 27. febrúar sl.

Markmiðið með fundinum var að reyna að veita heildstæða mynd af stöðu barna og ungmenna á Íslandi í dag tengt fíknivanda. Fjallað var um þær áskoranir sem við er að etja og hvernig mismunandi aðilar vinna að því að bregðast við stöðunni og bæta hana.

Á meðal ræðumanna var Ragný Þóra Guðjohnsen sem fjallaði um vanlíðan ungmenna og notkun vímuefna út frá Íslensku æskulýðsrannsókninni.

Heilsan okkar: Fíknivandi ungmenna This is "Heilsan okkar: Fíknivandi ungmenna" by Háskóli Íslands on Vimeo, the home for high quality videos and the people who…

Önnur hver stelpa beðin um nektar­myndir og fær klám­fengin skila­boð - Vísir 05/03/2026

Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni, sem gerð var á síðasta ári, segir ein af hverjum átta stelpum í tíunda bekk annan ungling hafa haft samfarir eða munnmök við þær gegn eigin vilja. Þá hefur næstum helmingur stelpna í tíunda bekk verið beðinn að senda af sér nektarmynd og einn af hverjum s*x strákum.

Ofbeldi í nánum samböndum unglinga er risastórt mál að mati ungmenna sem komu saman á ungmennaþingi Barnaheilla í gær en samtökin standa fyrir s*x ungmennaþingum víðs vegar um land vegna vandans.

Önnur hver stelpa beðin um nektar­myndir og fær klám­fengin skila­boð - Vísir Ofbeldi í nánum samböndum unglinga er risastórt mál mati ungmenna sem komu saman í Hafnarfirði dag til að ræða málið og finna lausnir. Verkefnastýra hjá Barnaheillum segir birtingarmyndir ofbeldisins oft grófari í dag en áður. Brýnt sé sé að stjórnvöld bregðist við.

Morgunútvarpið - Spilari RÚV 04/03/2026

Fjárhættuspil eru að sækja í veðrið hjá ungu fólki á Íslandi enda beinist markaðssetning slíkra fyrirtækja sífellt meira að þeim. Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar ræddi um fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi ásamt Páli Heiðari Jónssyni, sálfræðingi hjá SÁÁ, í Morgunútvarpinu á Rás 2 síðastliðinn mánudag.

Morgunútvarpið - Spilari RÚV Ísrael og Bandaríkin réðust á skotmörk í Íran um helgina. Ali Khameini, æðstiklerkur Íran var drepinn í árásunum ásamt öðrum háttsettum leiðtogum. Íran réðist í kjölfarið á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum og heitir því að hefna árásanna grimmilega. Kjar...

Morgunvaktin - Spilari RÚV 02/03/2026

Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Menntavísindasvið HÍ og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar ræddi um fíknivanda ungmenna í Morgunvaktinni á Rás 1 fimmtudaginn 26. febrúar. Tilefni viðtalsins var fundurinn Heilsan okkar - fíknivandi ungmenna sem haldinn var 27. febrúar. Viðtalið hefst á mínútu 51:45.

Morgunvaktin - Spilari RÚV Erlend málefni voru á dagskrá þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Hann fór yfir ræðu Trumps Bandaríkjaforseta frá í fyrradag – State of the Union - ástand og horfur í landinu. Hann ræddi líka um Úkraínu og sýn Alexanders Stubb Finnlandsforseta á stríðið, og um a...

Fjárhættuspilahegðun og sjálfskaðahegðun ungmenna og ástæður brottfalls framahaldsskólanema til umfjöllunar í Netlu 24/02/2026

Út er komið nýtt sérrit á vegum Netlu – veftímarits um uppeldi og menntun sem að þessu sinni er helgað Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ). Í þessu fyrra riti af tveimur eru birtar fræðigreinar sem nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.

https://hi.is/frettir/fjarhaettuspilahegdun_og_sjalfskadahegdun_ungmenna_og_astaedur_brottfalls_framahaldsskolanema_til_umfjollunar_i_netlu?fbclid=IwY2xjawQKjKBleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBWNWxsMnNuSWY5c0J6ZGFhc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHrxMZVzGy_AodXQUcHqB0UMwHXMMed6ZQ9pKcSLigSCOwNlV7uV76WyaMY0k_aem_qB1Bpbxk7N7k2FY2gSqXwg

Fjárhættuspilahegðun og sjálfskaðahegðun ungmenna og ástæður brottfalls framahaldsskólanema til umfjöllunar í Netlu Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

27/01/2026

Þátttaka og félagsleg tengsl - nokkrar lykilniðurstöður úr grunnskólakönnun ÍÆ vorið 2025.
Hátt hlutfall nemenda (99%) í 4. og 5. bekk segist eiga góða vini og finnst gaman að fá vini heim (88%). Þá stunda 91% þeirra íþróttir og 31% listanám. Íþróttaiðkun hjá ungmennum í 6.-10. bekk lækkar niður í 65% sem og listnám niður í 19%.

12/01/2026

Hér eru nokkrar lykilniðurstöður úr grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2025 - sem varða heilsu og vellíðan barna og ungmenna. Það dregur úr lífsánægju nemenda með hækkandi aldri og á sama tíma minnkar dagleg hreyfing þeirra mikið. Um 80% þeirra telja þó andlega og líkamlega heilsu sína góða en á sama tíma segist verulegur hluti ungmennanna (33-45%) finna fyrir magaverk, kvíða, höfuðverk, svefnvandamálum eða depurð vikulega eða oftar.

21/12/2025

Grunnskólakönnun ÍÆ vorið 2025: Nokkrar lykilniðurstöður sem snúa að menntun barna og ungmenna.

25/11/2025

Við höfum orðið vör við misskilning meðal fjölmiðlamanna þegar kemur að óvissuþáttum í könnunum á borð við grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

Rétt er að könnun sem grunnskólabörn svara á skólatíma er líklegri til að vanmeta en ofmeta algengi áfengisneyslu og annarrar áhættuhegðunar þar sem hópurinn sem helst sýnir áhættuhegðun er líklegri til að vera fjarverandi á fyrirlagnardegi. Þetta er vel þekkt skekkja í spurningalistakönnunum á borð við ÍÆ.

Það hefur hins vegar ekki þau áhrif að fela verulega aukningu í áhættuhegðun yfir tíma. Til þess þyrfti skekkjan að vera að breytast mikið og hratt yfir tíma.

Veruleg aukning í áfengisnotkun eða annarri vímuefnanotkun meðal barna á unglingastigi myndi koma skýrt fram í niðurstöðum grunnskólakönnunar ÍÆ.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Saga, Hagatorgi 1
Reykjavík
101