Miðja máls og læsis

Miðja máls og læsis Miðja máls og læsis hefur það markmið að styðja starfsfólks í skóla- og frístundastarfi.

Markmið Miðju máls og læsis er að efla fagmennsku kennara og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi með ráðgjöf, símenntun og stuðningi við markviss vinnubrögð með mál og læsi og að tryggja aðgengi alls stafsfólks og kennara í skóla- og frístundastarfi að ráðgjöf og stuðningi við fagleg vinnubrögð með mál og læsi.

📚🌍 Foreldrafræðsla fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna í HólabrekkuskólaÍ síðustu viku stóðu brúarsmiðir Miðju máls og...
22/09/2026

📚🌍 Foreldrafræðsla fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna í Hólabrekkuskóla

Í síðustu viku stóðu brúarsmiðir Miðju máls og læsis fyrir foreldrafræðslu fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna í samstarfi við Hólabrekkuskóla.

Við viljum þakka skólanum kærlega fyrir framúrskarandi samstarf, góðan undirbúning og faglegt skipulag sem lagði góðan grunn að vel heppnuðum fundi.

Frá fyrstu undirbúningsvinnu var vel hugað að öllum þeim þáttum sem skipta foreldra máli. Fundarboð voru send tímanlega, skráning var vel skipulögð og tekið var á móti foreldrum í hlýlegu og vel skipulögðu umhverfi. Skýrar merkingar, aðgengilegir fundarstaðir og veitingar sköpuðu notalegt andrúmsloft og góðar aðstæður fyrir samtal.

Á fundinum fengu foreldrar mikilvægar upplýsingar um skólastarfið og þá þjónustu sem stendur fjölskyldum til boða. Skólastjórnendur kynntu helstu áherslur og starfsemi skólans, auk þess sem starfsfólk skólans og fulltrúar foreldrafélagsins tóku virkan þátt í umræðum og svöruðu spurningum foreldra.

Slíkt samtal er afar mikilvægt til að efla samstarf heimila og skóla, byggja upp traust og styrkja þátttöku foreldra í skólasamfélaginu.

Hlutverk brúarsmiða er að byggja brú milli skóla og fjölbreyttra fjölskyldna, auðvelda samskipti og stuðla að betri upplýsingamiðlun. Með samstilltu átaki allra aðila skapast sterkari tengsl, aukið traust og betri aðstæður fyrir börnin okkar.

Við þökkum skólastjórnendum Hólabrekkuskóla innilega fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf og hlökkum til áframhaldandi verkefna sem styðja við fjölbreytt og inngildandi skólasamfélag. 💙

Endilega sendið okkur póst ef skólinn ykkar hefur áhuga á slíkri foreldrafræðslu.

📧 [[email protected]](mailto:[email protected])

11/09/2026

Vantar þig hugmyndir eða hagnýt verkfæri til að styðja við menntun og móttöku barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?

Á memm.mms.is er að finna fræðslu, verkefni og fjölbreyttar aðferðir fyrir starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla og frístundastarfs.

Kynntu þér efnið á 👉 https://memm.mms.is

05/09/2026
Undanfarna fimm daga hafa fulltrúar Miðju máls og læsis hjá Reykjavíkurborg, Dröfn og Dagbjört og Magdalena, verið í Rze...
05/09/2026

Undanfarna fimm daga hafa fulltrúar Miðju máls og læsis hjá Reykjavíkurborg, Dröfn og Dagbjört og Magdalena, verið í Rzeszów í Póllandi í boði Podkarpackie Stowarzyszenie dla Aktywnych Rodzin.

Dagskráin var afar þétt og gaf þeim einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreyttum verkefnum sem styðja við börn, ungmenni og fjölskyldur. Þær heimsóttum meðal annars menningarmiðstöðvar, bókasöfn, ungmennasetur, Space4Youth, félagasamtök eldri kvenna og Centrum Rodziny TUTU, sem veitir mikilvægan stuðning, meðal annars fyrir flóttafólk frá Úkraínu.

Á hverjum degi fengum þær að kynnast nýjum leiðum til þátttöku, samþættingar, inngildingar og samfélagsuppbyggingar. Samræður, reynslumiðlun og hlýjar móttökur voru sérstaklega dýrmætar. Þær stöllur vorum djúpt snortnar af gestrisni, eldmóði og þeirri mikilvægu vinnu sem einstaklingar, félagasamtök og stofnanir leggja af mörkum í þágu barna, fjölskyldna og samfélagsins alls. Öll verkefni þeirra eru styrkt og þar á meðal af ríkjum EFTA.

Miðja máls og læsis þakkar kærlega fyrir frábærar móttökur, innblástur og lærdómsríkar heimsóknir. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og vináttu. ❤️🤝🇮🇸

26/08/2026

Einhver misskilningur hefur verið í gangi varðandi það að netfang Miðju máls og læsis sé ekki virkt lengur. Við erum enn með sama netfangið [email protected] svo ykkur er óhætt að senda okkur línu.

Hæ,Ég vona að þið hafið átt yndislegt sumar.Borgarbókasafnið býður reglulega upp á ókeypis viðburði þar sem fólk getur h...
25/08/2026

Hæ,
Ég vona að þið hafið átt yndislegt sumar.
Borgarbókasafnið býður reglulega upp á ókeypis viðburði þar sem fólk getur hist og æft sig í íslensku í öruggu umhverfi með fjölbreyttri afþreyingu. Dagskráin hefst aftur 4. september og stendur til desember, á báðum borgarbókasöfnunum; Groffin og Gerdubergi. Vinsamlegast deilið þessum upplýsingum með þeim sem gætu haft áhuga. 😊
• Gerdoberg, föstudagur: Samvera – náttúrugöngur, lestur og fréttir
• Groffin, laugardagar: Spjöllum með hreim – spil, leshópar og safnaheimsóknir
• Groffin, miðvikudagur: Samljóða– Skapandi skrif
Ókeypis aðgangur, allir velkomnir, engin skráning nauðsynleg, bara mæta!
bestu kveðjur,
مرحباً،
أتمنى أن تكونوا قد استمتعتم بصيف رائع.
تُقيم مكتبة المدينة بانتظام فعاليات مجانية تتيح للناس فرصة الالتقاء وممارسة اللغة الأيسلندية في بيئة آمنة من خلال مجموعة متنوعة من الأنشطة. تُستأنف البرامج في 4 سبتمبر وتستمر حتى ديسمبر، في مكتبتي المدينة: گروفين وگيرذوبيرگ. يُرجى مشاركة هذه المعلومات مع من قد يكون مهتماً. 😊
• جيردوبيرغ، الجمعة: لقاءات ودية - جولات في الطبيعة، قراءة، وأخبار
• غروفين، السبت: لقاءات ودية - ألعاب ورق، حلقات قراءة، وزيارات للمتاحف
• غروفين، الأربعاء: شعر - كتابة إبداعية
الحضور مجاني، جميع المستويات مرحب بها، لا حاجة للتسجيل، تفضلوا بالحضور!
مع أطيب التحيات،
سڵاوتان لێبێت. هیوادارم هاوینێکی خۆشتان بەسەر بردبێت.
کتێبخانەی شار بە بەردەوامی بۆنە و ئاهەنگی بێبەرامبەر پێشکەش دەکات کە خەڵک دەتوانن لە ژینگەیەکی سەلامەتدا لە ڕێگەی چالاکییە جۆراوجۆرەکانەوە کۆببنەوە و مەشق بکەن لەسەر زمانی ئایسلەندی. بەرنامەکان لە ٤ی ئەیلول دەست پێدەکاتەوە و تا مانگی کانوونی دووەم بەردەوام دەبێت، لە هەردووکتێبخانەی شار؛ گرۆفین و گێردوبێرگ. تکایە ئەم زانیاریانە لەگەڵ ئەو کەسانەدا بەشی بکەن کە لەوانەیە ئارەزووی بکەن. 😊
• گێردۆبێرگ، هەینی: پێکەوەیی – پیاسەی ناو سروشت و خوێندنەوە وهەواڵ
• گرۆفین، ڕۆژانی شەممە: Spjöllum með hreim – یاری وەرەقە، گروپی خوێندنەوە و سەردانی مۆزەخانەکان
• گرۆفین، چوارشەممە: شیعر و هۆنراوە – نووسینی داهێنەرانە
بەشداریکردن بێ بەرامبەرە، هەموو ئاستەکان بەخێرهاتن دەکرێن، پێویست بە ناو تۆمارکردن ناکات، هەر وەرن!
لەگەڵ ڕێز،
Silav,
Ez hêvî dikim ku havînek xweş derbas kiribe.
Pirtûkxaneya Bajêr bi rêkûpêk çalakiyên belaş pêşkêş d**e ku mirov dikarin bi hev re bicivin û bi rêya çalakiyên cûrbecûr di hawîrdorek ewle de bi zimanê Îslendî pratîk bikin. Bername di 4ê Îlonê de ji nû ve dest pê dikin û heta Kanûnê berdewam dikin, li her du pirtûkxaneyên bajêr; Groffin û Gerduberg. Ji kerema xwe vê agahiyê bi kesên ku dibe ku eleqedar bibin re parve bikin. 😊
• Gerdoberg, În: Hevgirtin - meşên xwezayî, xwendin û nûçe
• Groffin, Şemî: Spjöllum með hreim - lîstikên kartan, komên xwendinê û serdanên muzeyan
• Groffin, Çarşem: Helbest - Nivîsandina Afirîner
Beşdarbûn belaş e, hemî ast bi xêr hatin, qeydkirin ne hewce ye, tenê werin!
bi rêzdarî,

Aðstoð við heimanám fyrir börn í grunnskólumSamtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og  bjóð...
25/08/2026

Aðstoð við heimanám fyrir börn í grunnskólum
Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi skólaárið 2026-2027.

Homework help for primary school children
Reykjavík City and Home and School - the National Association of Parents are partnering to offer homework help for primary school children at the Reykjavík City Library branches in Kringlan and Gerðuberg.

ستتعاون جمعية أولياء الأمور والمعلمين ومدينة ريكيافيك لتقديم المساعدة في الواجبات المنزلية لأطفال المدارس الابتدائية في مكتبة المدينة في كرينگلان Kringlan ومكتبة المدينة في گيرذوبيرگ Gerðuberg خلال العام الدراسي 2026-2027.
https://reykjavik.is/.../adstod-vid-heimanam-fyrir-born-i...
Komeleya Dêûbav û Mamosteyan û Şaredariya Reykjavikê dê di sala xwendinê ya 2026-2027an de li Pirtûkxaneya Bajêr a li Kringlan û Pirtûkxaneya Bajêr a li Gerðubergê alîkariya karên malê bidin zarokên dibistana seretayî.
کۆمەڵەی دایکان و باوکان و مامۆستایانی شاری ڕەیکیاڤیک هاوکاری دەکەن بۆ پێشکەشکردنی یارمەتیدانی ئەرکی ماڵەوە بۆ منداڵانی قوتابخانەی سەرەتایی لە کتێبخانەی شار لە Kringlan کرینگلان و کتێبخانەی شار لە Gerðuberg گێردوبێرگ لە ماوەی ساڵی خوێندنی ٢٠٢٦-٢٠٢٧. See less

https://reykjavik.is/frettir/2026/adstod-vid-heimanam-fyrir-born-i-grunnskolum

Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi skólaárið 2026-2027.

MML vekur athygli á eftirfarandi námstilboðum hjá HÍ.https://hi.is/menntavisindasvid/islenska_sem_annad_tungumalKENNSLA ...
29/05/2026

MML vekur athygli á eftirfarandi námstilboðum hjá HÍ.

https://hi.is/menntavisindasvid/islenska_sem_annad_tungumal

KENNSLA ÍSLENSKU OG LÆSIS

KENNSLA BARNA MEÐ FJÖLBREYTTAN BAKGRUNN

KJÖRSVIÐ ÍSLENSKA SEM ANNAÐ MÁL, VIÐBÓTARDIPLÓMA Á MEISTARASTIGI (umsóknarfrestur 5. júní)

SÉRHÆFING Í KENNSLU ÍSLENSKU SEM ANNARS MÁLS FYRIR KENNARA MEÐ LEYFISBRÉF (umsóknarfrestur 5. júní)

SÉRHÆFING Í KENNSLU ÍSLENSKU SEM ANNARS MÁLS Í FIMM ÁRA KENNARANÁMI (umsóknarfrestur 5. júní)

ÍSLENSKUSTOÐ

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Address

Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Miðja máls og læsis posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category