Bataskóli Íslands

Bataskóli Íslands Unnið er út frá batahugmyndfræði.

Skóli fyrir fólk sem glímt hefur við geðrænar áskoranir og aðstandendur þar sem kennd eru fjölbreytileg námskeið sem öll fjalla um bata á einhvern hátt nemendum að kostnaðarlausu.

Á morgun er tíminn "Velkominn í Bataskólann". Hann er öllum opinn. Farið verður yfir skipulag skólans, hugmyndafræðina o...
07/09/2026

Á morgun er tíminn "Velkominn í Bataskólann". Hann er öllum opinn.

Farið verður yfir skipulag skólans, hugmyndafræðina og annað efni.

Frábært tækifæri til að hitta aðra nemendur og kynnast skólanum.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig sérstaklega!

📌Borgartún 20, þriðja hæð
🕑13:20-15:20
📅þriðjudagur, 8. september

01/09/2026

Bataskóli Íslands verður í Háskólanum í Reykjavík milli 14 og 16 á opnunarhátíð fyrir Gulan september. Hlökkum til að sjá ykkur! 💛💛

⏰ Ert þú búinn að skrá þig?Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig fyrir haustönn Bataskóla Íslands! Fjölbreytt og spe...
31/08/2026

⏰ Ert þú búinn að skrá þig?

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig fyrir haustönn Bataskóla Íslands! Fjölbreytt og spennandi námskeið eru í boði, meðal annars:

🔸 Virkni í samfélaginu
🔸 Sköpun í lífi og listum
🔸 Þekktu þunglyndið, taktu í tauminn
🔸 Sjálfstraust og samskipti
🔸 Kulnunarnámskeið — NÝTT

…og mörg fleiri.

💛 Ókeypis og opið öllum — engin greining eða tilvísun þarf.

Skoðaðu stundaskrána í heild sinni á www.bataskoli.is

📚 Skráning á haustönn er hafin!Nú er komið að því að skoða úrvalið af námskeiðum Bataskóla Íslands í vetur. Fjölbreytt n...
24/08/2026

📚 Skráning á haustönn er hafin!

Nú er komið að því að skoða úrvalið af námskeiðum Bataskóla Íslands í vetur. Fjölbreytt námskeið, kennd af notendum og fagfólki saman, þar sem áherslan er á bata, sköpun og að læra hvert af öðru.

💛 Öll námskeið eru þér að kostnaðarlausu og opin öllum — engin greining eða tilvísun þarf.

Smelltu á www.bataskoli.is til að skrá þig eða skoða stundaskrána í heild sinni.

Verður þú með okkur í Bataskólanum í haust?🍂Opnað hefur verið fyrir umsóknir á vetrarönn sem hefst þann 8. september næs...
18/08/2026

Verður þú með okkur í Bataskólanum í haust?🍂

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á vetrarönn sem hefst þann 8. september næstkomandi. Allar upplýsingar um skólann og lýsingar á námskeiðum er að finna á bataskoli.is en þar er einnig hægt að sækja um með því að smella á hnappinn "Sækja um".

Við hvetjum áhugasöm til þess að sækja um en Bataskólinn er nemendum að kostnaðarlausu. Þess má geta að skólinn er aðallega hugsaður fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir en er líka opinn aðstandendum þeirra ásamt starfsfólki á heilbrigðis- og velferðarsviði.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um skólann í gegnum skilaboð hér á facebook eða í gegnum tölvupóst [email protected]

"Hvað er þetta ADHD?"Á morgun  hefst námskeiðið Hvað er þetta ADHD? sem verður kennt af þeim Ösp og Áslaugu Maríu. Á nám...
20/05/2026

"Hvað er þetta ADHD?"

Á morgun hefst námskeiðið Hvað er þetta ADHD? sem verður kennt af þeim Ösp og Áslaugu Maríu. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu einkenni ADHD og mikilvægar mismunagreiningar.

Farið verður yfir af hverju greining er mikilvæg og hvar er hægt að fá greiningu en nemendur læra auk þess minnisaðferðir en rætt verður um gagnleg forrit og leiki til að efla minnisgetu.

Má ég hætta að reyna svona mikið?Sóley Eiríksdóttir er fyrirlesari og markþjálfi sem lifði af snjóflóðið á Flateyri árið...
13/05/2026

Má ég hætta að reyna svona mikið?

Sóley Eiríksdóttir er fyrirlesari og markþjálfi sem lifði af snjóflóðið á Flateyri árið 1995 þar sem systir hennar lést.

Í fyrirlestrinum segir hún einlæga sögu um sorg, survival mode, sjálfsefa og það hvernig hún lærði smám saman að vera mýkri við sjálfa sig og hætta að reyna svona mikið.

Fyrirlesturinn fjallar um sjálfsmildi, sjálfsfyrirgefningu og það að leyfa sér að vera mannlegur.

Sóley ætlar að vera með gestafyrirlestur næsta miðvikudag, 20. maí klukkan 13:20-15:20.

13/04/2026

Ert þú til í að prófa ókeypis geðræktar-appið HappApp og gefa endurgjöf sem hjálpar okkur að þróa appið áfram?

Þú finnur appið hér:
iPhone: https://apps.apple.com/is/app/happapp/id6736366027
Android: https://play.google.com/store/apps/details?id=is.happApp.app&pcampaignid=web_share
(Ef þú ert í tölvu, geturðu skannað QR-kóðann á myndinni)

Hvernig fer prófunin fram?

📱 Þú sækir appið og byrjar strax að nota það.
🤳 Þú prófar eins margar æfingar og þú vilt gera.
📝 Eftir u.þ.b. 2 vikur færðu hlekk á nafnlausan spurningalista þar sem spurt er út í upplifun þína af appinu.

Við mælum með að kveikja á áminningum svo þú munir eftir því að nota appið. Það er alltaf hægt að slökkva á þeim.

✨Endurgjöf þín hjálpar okkur að þróa og bæta appið áfram✨

Þróun HappApp er hluti af evrópska samstarfsverkefninu MENTOR (Joint Action Mental Health Together). Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á: https://ja-mentor.eu/
Appið er einnig þróað í samstarfi við Embætti landlæknis, sem er þátttakandi í MENTOR-verkefninu.

Takk fyrir að leggja þitt af mörkum 💛

Fyrsti tíminn í kvíðanámskeiðinu okkar er að hefjast á morgun þar sem þau Kristján og Rakel munu fjalla um einkenni og e...
08/04/2026

Fyrsti tíminn í kvíðanámskeiðinu okkar er að hefjast á morgun þar sem þau Kristján og Rakel munu fjalla um einkenni og eðli kvíða og hvernig hægt er að finna leiðir til þess að láta kvíðann ekki stjórna lífi sínu og ákvörðunum.

Með jákvæðni og opnu hugarfari er okkur ekkert ómögulegt. Tilgangur námskeiðsins er að nemendur öðlist betri skilning á kvíða og að hann sé eðlilegur og geti jafnvel verið hjálplegur 💛

Á morgun fer svo fram fyrsti tíminn í Batahugmyndafræðinni þar sem þau Helga og Bergþór munu fjalla um meginhugtök batahugmyndafræðinnar, réttindi og samfélagsúrræði ásamt því að nemendur skilji væntingar sínar og stöðu gagnvart batahugmyndafræðinni.

Í dag, 13. mars, er Alþjóðlegur svefndagur. 😴Þema dagsins þetta árið er Sofðu vel, það auðveldar lífið! Í Bataskólanum k...
13/03/2026

Í dag, 13. mars, er Alþjóðlegur svefndagur. 😴

Þema dagsins þetta árið er Sofðu vel, það auðveldar lífið!

Í Bataskólanum kennum við einstaklega skemmtilegt námskeið um svefn og mikilvægi þess að ná góðum svefn.

Góð atriði til að hafa í huga þegar kemur að svefn er t.d. að hafa reglu á svefninum, hvenær maður vaknar og sofnar. Gott er að draga úr skjánotkun tveimur tímum fyrir svefn og hafa dimmt og hljóðlátt í herberginu.

Skráning á næstu önn í Bataskólann er í fullum gangi á bataskoli.is

Sofið vel í nótt! 😴😴

Address

Borgartún 20, 3. Hæð
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 13:00 - 16:00
Tuesday 13:00 - 16:00
Wednesday 13:00 - 16:00
Thursday 13:00 - 16:00
Friday 13:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bataskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Bataskóli Íslands:

Shortcuts

Share

Category