18/12/2025
Samtal í morgunútvarpinu við Jón Ólafsson: Stuðningur við Úkraínu snýst um öryggistryggingar og fjármagn og stóra spurningin nú er sú hvort Evrópuleiðtogum (grísunum) tekst að losa um þá 210 milljarða evra sem Rússar eiga en hafa verið frystar – aðallega í Belgíu. Á sama tíma lýsa Rússar yfir hverjum sigrinum á fætur öðrum (þótt innistæðurnar séu ekki alltaf fyrir hendi) og segjast munu ná sínu fram með góðu eða illu. ( Byrjar á 26:40 https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunvaktin/23614/ave185 ).
17/12/2025
„Það vorum ekki við sem hófum þetta stríð heldur Úkraínskir öfgamenn með stuðningi Evrópuríkja. Það eina sem við höfum gert að reyna að stöðva það og koma á friði“ Svo mælti Vladimir Pútín í dag á löngum fundi með lykilstjórnendum varnarmála (Коллегия Министерства Обороны). Rússneskir fjölmiðlar hafa í dag farið hörðum orðum um ræðu Ursulu van der Leyen á Evrópuþinginu sem þeir herskástu segja jaðra við stríðsyfirlýsingu. „Evrópsku grísirnir“ (подсвинки) segir Pútin „vilja nærast á hrundu Rússlandi“. Hann er ekki fyrsti rússneski ráðamaðurinn til að líkja meintum féndum sínum við svín. Þessi teikning frá 1938 sem hér fylgir bregður upp myndinni sem Pútín kann að hafa haft í huga – og um leið ljósi á örvæntinguna sem afstaða Evrópu kallar fram í Kreml.
17/12/2025
Þessi síða verður aflögð og innihaldi hennar eytt ekki síðar en 31.12. 2025.
Við bendum á þessa síðu hér sem tekur við hlutverki hennar: https://www.facebook.com/ukrainusetur/
Úkraínuverkefnið
Úkraínuverkefni Háskóla Íslands heyrir undir EDDU rannsóknasetur
20/05/2025
Sérfræðingar segja allt óbreytt eftir símtal forsetanna í gær - RÚV.is
Sérfræðingur í málefnum Rússlands og hernaðararsagnfræðingur segja samtal Bandaríkja- og Rússlandsforseta í gær um vopnahlé í Úkraínu fyrst og fremst vináttuhjal. Ekkert bendi til samningsvilja Rússa. Staðan sé óbreytt.
02/05/2025
Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna - Vísir
Rússar tóku úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna höndum sumarið 2023 nærri kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia í Úkraínu.
18/02/2025
New Blood: Putin is Setting Up Russian Veterans to Take Center Stage in Moscow - War on the Rocks
As the battlefields of Ukraine are covered in the blood of young men, the halls of the Kremlin may soon play host to an infusion of young blood, hardened