Tónlistardeild Listaháskóla Íslands

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands

Share

Music Department at Iceland University of the Arts
Skipholt 31

Instagram: @iceland_university_of_the_arts

Fram­þróun í tón­listar­námi á há­skóla­stigi á Ís­landi - Vísir 19/05/2026

Pétur Jónasson deildarforseti tónlistardeildar LHÍ er hér með áhugaverða grein um þróun tónlistarnáms á háskólastigi á Íslandi, nýjar námsleiðir og mikilvægi framsækinnar hugsunar í menntun tónlistarfólks framtíðarinnar.

Fram­þróun í tón­listar­námi á há­skóla­stigi á Ís­landi - Vísir Það eru spennandi tímar framundan í Tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskipulagning á bakkalárnámi deildarinnar. Ljóst var orðið að breytinga var þörf ef námið ætti að þróast til framtíðar í takt við þarfir nemenda og þá þr...

Photos from Tónlistardeild Listaháskóla Íslands's post 11/05/2026

Það verður nóg um að vera í tónlistardeild LHÍ í kvöld, hefjum leika kl. 17:00 á brautartónleikum fiðlu og kammer í Skriðu Stakkahlíð, þá kl. 19:00 taka við brautartónleikar flautu og píanós í Dynjanda, sal Tónlistardeildar í Skipholti og á sama tíma (19:00) fer fram TNT Showcase í Tónastöðinni 50 (hinum megin við götuna).

Að sjálfsögðu er frítt á alla viðburðina og öll hjartanlega velkomin.

Útskriftarviðburðir hjá Tónlistardeild LHÍ | Listaháskóli Íslands 05/05/2026

Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt mikla fagmennsku í lokaverkefnum sínum.

Útskriftarviðburðir hjá Tónlistardeild LHÍ | Listaháskóli Íslands Fjölbreytt útskriftarhátíð hefur staðið yfir hjá Tónlistardeild LHÍ undanfarnar vikur, þar sem nemendur hafa komið fram í öflugri dagskrá sem undirstrikar fjölbreytni og metnað deildarinnar. Tónlistardeild er afar stolt af útskriftarnemendum sínum sem hafa sýnt sterka listræna ...

Photos from Tónlistardeild Listaháskóla Íslands's post 29/04/2026

Fjórði útskriftartónleikadagurinn að baki og þvílík veisla af fjölbreyttum tónleikum!
Útskriftarnemendur í nýmiðlatónsmíðum stigu á svið með glæsibrag og sýndu ótrúlegan sköpunarkraft og hæfileika. Framtíð tónlistar er sannarlega björt!

Photos from Tónlistardeild Listaháskóla Íslands's post 28/04/2026

Þriðji tónleikadagurinn á baki í útskriftarröð LHÍ í Salurinn Tónlistarhús. Finnskir og færeyskir útskriftarnemar settu fallegan norrænan svip á daginn. Anna-Maria heillaði með einstökum flautuhljómi og Katrina og Ari í geggjaðri rytmískri sveiflu!

Photos from Tónlistardeild Listaháskóla Íslands's post 27/04/2026

Annar viðburðaríkur tónleikadagur í Salurinn Tónlistarhús að baki. Fjölbreyttur hljóðheimur hljóðfærasmíðanemenda í bland við rytmíska kvöldtóna. Ótrúlega öflugt tónlistarfólk sem við erum stolt af!

Photos from Tónlistardeild Listaháskóla Íslands's post 26/04/2026

Viðburðarríkur útskriftartónleikadagur að baki. Þrjár glæsilegar söngkonur, barnakór, karlakór, samsöngur með foreldrum og að lokum píanóleikari með glæsilegan Tsjaíkovskíj Píanókonsert nr. 1 í b-moll!
Útskriftarhátíðin er heldur betur farin af stað og heilmikil veisla framundan í Salurinn Tónlistarhús!

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Skipholti 31
Reykjavík
105