Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík

Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík Lögrétta starfar sem nemenda- og hagsmunafélag nemenda lagadeildar Háskólans í Reykjavík. All

Stéttarfélag Lögfræðinga er nú stoltur styrktaraðili Lögréttu!Auður Bjarnadóttir, formaður, og Bjarki Snær Sigurðsson, g...
13/04/2026

Stéttarfélag Lögfræðinga er nú stoltur styrktaraðili Lögréttu!

Auður Bjarnadóttir, formaður, og Bjarki Snær Sigurðsson, gjaldkeri, undirrituðu nýlega samstarfsamning við Stéttarfélag Lögfræðinga, en í tilkynningu þeirra kemur eftirfarandi fram:

Við erum afar ánægð með að hefja þetta samstarf og hlökkum til að styrkja tengslin við laganema strax á námsárunum.

Markmið samstarfsins er að kynna starfsemi Stéttarfélags lögfræðinga fyrir nemum og veita þeim innsýn í þau réttindi og þá þjónustu sem standa þeim til boða þegar þau hefja störf á vinnumarkaði.

Félagið veitir m.a. ráðgjöf:
– við fyrstu ráðningar
– um ráðningasamninga
– fyrir launa- og starfsþróunarviðtöl
– um túlkun kjarasamninga

Nemar eru hjartanlega velkomnir í félagið, sama hvar þeir starfa – og geta strax byrjað að ávinna sér réttindi í sjóðum félagsins. Við hlökkum til samstarfsins við Lögréttu.

Á myndinni má sjá Bjarka Snæ, gjaldkera, og Auði Bjarnadóttur, formann Lögréttu, ásamt Jóhanni Gunnari Þórarinssyni, formanni SL, og Önnu Margréti Steingrímsdóttur, leiðtoga stafrænnar þjónustu, félags- og markaðsmála Stéttarfélags Lögfræðinga.

Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor við lagadeild HR birti í dag Selecta-greinina: Leiðir regluna í H 7/2026 (áfrý...
09/04/2026

Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, prófessor við lagadeild HR birti í dag Selecta-greinina: Leiðir regluna í H 7/2026 (áfrýjunarfrestur) af eðli máls?

Þann 17. mars var lagabreytingafundur Lögréttu haldinn. Um var að ræða fyrsta lagabreytingafund í tæp 11 ár, en seinasti...
18/03/2026

Þann 17. mars var lagabreytingafundur Lögréttu haldinn. Um var að ræða fyrsta lagabreytingafund í tæp 11 ár, en seinasti fundur var haldinn 27. mars 2015.

Alls voru 29 breytingartillögur lagðar fram á fundinum og allar tillögur voru samþykktar að undanskildum fimm tillögum, en þær voru samþykktar eftir breytingartillögur frá félagsmönnum.
Helstu breytingarnar voru þær að embætti markaðsstjóra Lögréttu bættist við stjórn félagsins og lögfest var frekari fyrirhyggja í fjármálum félagsins í tengslum við embætti gjaldkera. Nýju lögin má finna í heild sinni á heimasíðu félagsins undir flipanum „Um Lögréttu“ og „Lögin“.

Boðun til lagabreytingafundarins og framkvæmd fundarins fór eftir þágildandi 49. gr. laga Lögréttu (núgildandi 50. gr.).

Við þökkum þeim félagsmönnum sem sóttu fundinn kærlega fyrir komuna og fyrir vel heppnaðan fund!

Skattadagur Lögfræðiþjónustu Lögréttu fór fram 8. mars sl. og heppnaðist einstaklega vel. Fjölmargir mættu og fengu ókey...
09/03/2026

Skattadagur Lögfræðiþjónustu Lögréttu fór fram 8. mars sl. og heppnaðist einstaklega vel. Fjölmargir mættu og fengu ókeypis aðstoð frá laganemum við gerð skattframtala. Við viljum færa Grant Thornton endurskoðun ehf. okkar bestu þakkir fyrir dýrmæta aðstoð, sem og öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við framkvæmd dagsins.
Við hlökkum til að sjá ykkur aftur á næsta ári!

Framkvæmdastýrur Lögfræðiþjónustu Lögréttu, Elísabet Kristjánsdóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir var boðið í viðtal hjá Rá...
05/03/2026

Framkvæmdastýrur Lögfræðiþjónustu Lögréttu, Elísabet Kristjánsdóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir var boðið í viðtal hjá Rás 2 í morgun til þess að ræða gerð skattframtala í tilefni af Skattadegi Lögfræðiþjónustu Lögréttu sem er framundan. Takk kærlega fyrir boðið og sjáumst á sunnudaginn!

https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunutvarpid/23822/bilibd/logretta-hjalpar-med-skattframtalid?fbclid=IwY2xjawQWb7VleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZAEwAAEeDEBQ-lz7Ml_yAxO7TvBzn4AZ0-4IqgqS5J00cZY_r878RhlmuAiazRB-WTA_aem_q4EzOcJ_Ln8Z8KHSFF0i6A

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Lögrétta hitti nýverið ELSA Westminster og ELSA Queen Mary til að skapa tækifæri til tengslamyndunar milli breskra og ís...
04/03/2026

Lögrétta hitti nýverið ELSA Westminster og ELSA Queen Mary til að skapa tækifæri til tengslamyndunar milli breskra og íslenskra laganema. Viðburðurinn var haldinn á háskólasvæði Westminster-háskóla, þar sem hvor hópur fyrir sig hélt kynningu um háskólalíf og réttarkerfi heimalands síns.
Kærar þakkir fyrir að taka svona vel á móti okkur og sýna okkur hlýjar móttökur! Við hlökkum til framtíðarviðburða.

Áhugaverð frétt um málþing Málfundafélags Lögréttu “Umbrotatímar í Norðri, alþjóðalög og Ísland” 💙
25/02/2026

Áhugaverð frétt um málþing Málfundafélags Lögréttu “Umbrotatímar í Norðri, alþjóðalög og Ísland” 💙

Address

Menntavegi 1
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category