Lagadeild Háskólans í Reykjavík

Lagadeild Háskólans í Reykjavík

Share

Fréttir og viðburðir tengd lögfræði á vegum lagadeildar Háskólans í Reykjavík.

Lagadeild HR leggur áherslu á gæði kennslu, fjölbreyttar kennsluaðferðir og námsmat og vandaða endurgjöf til nemenda. Grunnnám í lögfræði við lagadeild veitir traustan, fræðilegan grunn og með verkefnatengdu námi er leitast við að vinna með námsefnið og beita lögfræðilegri aðferðafræði. Nemendur sem hafa lokið grunngráðu í lögfræði geta að loknu ML-námi sótt um réttindi til að gegna störfum dómara

04/12/2025

Dr. Jur. Arnljótur Ástvaldsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur birt fræðigreinina: Ábyrgð hluthafa samkvæmt íslenskum hlutafélagarétti: um meginregluna um takmarkaða ábyrgð hluthafa og ábyrgð hluthafa samkvæmt lögfestum og ólögfestum reglum hlutafélagaréttar.

Nálgast má greinina, auk annarra á https://www.timaritlogrettu.is/

20/11/2025

Viðtal við Snjólaugu Árnadóttur um hafrétt, sem er einmitt kenndur núna á vorönn 2026! 🐳

Dr. Snjólaug Árnadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, er afkastamikill rannsakandi sem hefur sérhæft sig á sviði þjóðaréttar, hafréttar og umhverfisréttar.

Snjólaug brennur fyrir því að nýta lögfræðina náttúrunni og mannkyninu til góða og hefur verið áberandi í umræðunni um þjóð- og hafréttarmál hérlendis sem og erlendis.

Snjólaug segir skilning fyrir mikilvægi og fjölbreytileika hafsins ekki vera mikinn þrátt fyrir að hafið sé í raun mikilvægasti staðurinn á plánetunni þar sem lífið hafi kviknað.

Hún bendir á að við á Íslandi höfum einstakt tækifæri til að vera í forystu fyrir rannsóknir og þróun hugmynda gegn loftslagsvandanum og mikilvægt sé að nýta það tækifæri áður en önnur ríki grípa mögulega til örþrifaráða með því að ráðast í illa undirbúnar og afdrifaríkar aðgerðir.

Sjá nánar í athugasemd 👇

///

Dr Snjólaug Árnadóttir, Associate Professor at the Department of Law at Reykjavík University, has gained recognition both in Iceland and internationally for her research in international law, the law of the sea, and environmental law.

She believes that the law can be a powerful tool for protecting both nature and humanity.

Snjólaug points out that in Iceland, there is a unique opportunity to lead in research and solutions, tackling climate change. However, actions must be rapid before other states will possibly resort to desperate measures.

See more in the comment section 👇

06/11/2025

Við bjóðum Maríu Rún hjartanlega velkomna til starfa við HR!

Dr. María Rún Bjarnadóttir hefur gengið til liðs við Lagadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hún mun leiða enn aukna áherslu deildarinnar á rannsóknir og kennslu á sviði tækniréttar og stafrænna lagalegra álitaefna. Doktorsritgerð hennar ber heitið; Does the Internet Limit Human Rights Protection? Sexual Privacy and the Limits of the Law.

María Rún hefur sérhæft sig á mörkum mannréttinda- og tækniréttar og unnið ötullega að baráttu gegn stafrænu ofbeldi, sérstaklega í garð stúlkna og kvenna.

Við bjóðum Maríu Rún innilega velkomna til starfa við HR.

Sjá nánar í athugasemd 👇

///

Dr María Rún Bjarnadóttir has joined the Department of Law at Reykjavík University Lagadeild Háskólans í Reykjavík. Her doctoral thesis is titled Does the Internet Limit Human Rights Protection? Sexual Privacy and the Limits of the Law.

María Rún specialises in the intersection of human rights and technology law and has been an active advocate against digital violence, particularly towards girls and women. She will help lead the department’s increased focus on research and teaching in technology law and digital legal issues.

We warmly welcome María Rún to RU.

See more in the comment section👇

21/10/2025

Kynningarfundur – EES-málflutningskeppnin

Kynningarfundur fyrir EES-málflutningskeppnina verður haldinn miðvikudaginn 22. október 2025, kl. 15:15, í stofu M102. EES-málflutningskeppnin er skipulögð af Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í Brussel og í ár fer keppnin fram á Íslandi, í húsakynnum Hæstaréttar Íslands, dagana 14.-15. mars 2026. Hildur Hjörvar, lögfræðingur hjá ESA, verður á staðnum og segir nánar frá keppninni. Um er að ræða einstakt og spennandi tækifæri fyrir áhugasama nemendur við lagadeild HR til að öðlast alþjóðlega reynslu og þjálfun í úrlausn raunhæfra álitaefna á sviði Evrópu-/EES-réttar og í málflutningi. Lið lagadeildar HR sigraði keppnina fyrir tveimur árum eftir spennandi viðureignir við aðrar lagadeildir frá Noregi og Íslandi, auk þess að hljóta verðlaun fyrir bestu skriflegu greinargerðina og málflutningsmann keppninnar. Sigurvegarar keppninnar hljóta glæsileg verðlaun, sérstaka ferð til Brussel og Lúxemborgar þar sem helstu stofnanir eru heimsóttar.

//

Introductory meeting – The EEA Moot Court Competition

Introductory meeting for the EEA Moot Court Competition will be held on 22 October 2025, at 15:15, in room M102. The EEA Moot Court is organised by the EFTA Surveillance Authority (ESA) in Brussels, and this year the competition takes place in Iceland, and will be hosted at the Supreme Court of Iceland, on 14-15 March 2026. Hildur Hjörvar, Legal Adviser at ESA, will be present and tell us more about the competition. This is a unique opportunity for motivated students to gain international experience and deal with topical legal issues in EU/EEA law, as well as experience in litigation. Two years ago, the team from Reykjavik University won the competition, and also received prizes for the best speaker and the best written pleadings The winners of the moot court will receive a fantastic prize: a VIP trip to Luxembourg and Brussels, where institutions such as the Court of Justice of the European Union, the EFTA Court and the EFTA Surveillance Authority will be visited.

30/09/2025

Nemendur í ML námskeiði um Alþjóðlegan refsirétt nutu gestrisni utanríkisráðuneytisins í dag þar sem þau fengu ítarlega kynningu á stefnu Íslands á því sviði. Meðal umræðu var stuðningur Íslands við Alþjóðlega sakamáladómstólinn, yfirstandandi samningaviðræður um breytingar á lögsögu dómstólsins varðandi glæpinn árás, stofnun nýs sérstaks dómstóls fyrir glæpinn árás gegn Úkraínu og nýleg greinargerð Íslands til Alþjóðadómstólsins í Haag vegna ráðgefandi álits um m.a. skyldur Ísraels gagnvart viðveru Sameinuðu þjóðanna og UNRWA í Palestínu. Kærar þakkir og sérstaklega til Hendriks Daða Jónssonar fyrir greinargott erindi. Á myndinni eru Hendrik frá utanríkisráðuneytinu, Þórdís Ingadóttir prófessor og kennari námskeiðsins ásamt nemendum.

A group of students in International Criminal Law visited the Ministry of Foreign Affairs today where they were briefed on International Criminal Law in Iceland´s Foreign Policy. Topics discussed included the government´s support for the ICC, negotiations on amendments to the ICC´s jurisdiction with respect to the crime of aggression, new Special Tribunal for the crime of aggression against Ukraine, and Iceland´s recent submission to the the International Court of Justice on the obligations of Israel in relation to the presence and activities of the UN, UNRWA and third states in relation to Palestine. On the picture is Hendrik Daði Jónsson (far left), legal advisor at the Ministry, dr. Thordis Ingadottir (far right), professor at RU, and students. Many thanks!

16/09/2025

Nemendur í meistaranámi í lagadeild fóru í vettvangsferð í námskeiðinu Skipulögð glæpastarfsemi á Keflavíkurflugvöll undir yfirskriftinni: „Alþjóðaflugvöllur sem brotavettvangur“. Starfsmenn lögreglustjóraembættisins (Lögreglan á Suðurnesjum), með Öldu Hrönn Jóhannsdóttur yfirlögfræðing í fararbroddi, tóku afar vel á móti hópnum. Svo sannarlega lærdómsrík og áhugaverð heimsókn.

28/08/2025

Svala Davíðsdóttir frá Lagadeild HR hlýtur verðlaun fyrir meistararitgerð sína og hlýtur sem viðurkenningu starfsþjálfun við Mannréttindadómstólinn MDE.

Það var að frumkvæði dr. Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, fyrrum prófessors við Lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands, sem lagadeildir HR og HÍ undirrituðu í fyrra samning við Mannréttindadómstólinn um starfsþjálfun. Býðst hún einum brautskráðum kandídat árlega frá hvorri deild sem viðurkenning fyrir framúrskarandi meistararitgerð um Mannréttindasáttmála Evrópu.

🔗 Sjá nánar í athugasemd 👇

///

Svala Davíðsdóttir, graduate of the Department of Law at Reykjavík University, has been awarded for her master’s thesis, Human Rights and Climate Change: An Analysis of the European Court of Human Rights’ Judgment in Verein KlimaSeniorinnen v. Switzerland. As part of the recognition, she will take up a traineeship at the European Court of Human Rights (ECHR).

The traineeship programme is the result of an agreement between the law faculties of Reykjavík University and the University of Iceland with the ECHR, initiated by former professor at RU and HÍ, Dr. Oddný Mjöll Arnardóttir.

🔗 See more in the comment section below 👇

08/08/2025

Málstofa um mannréttindi: Viðurkenning fyrir bestu meistararitgerðir um Mannréttindasáttmála Evrópu og áhrif hans á landsrétt

Að frumkvæði Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, dómara við Mannréttindadómstól Evrópu, og fyrrum prófessors við Lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, hafa lagadeildirnar undirritað samning við Mannréttindadómstólinn um starfsþjálfun. Starfsþjálfun við dómstólinn býðst einum brautskráðum kandídat árlega frá hvorri deild sem viðurkenning fyrir framúrskarandi meistararitgerð um Mannréttindasáttmála Evrópu.

Árið 2025 hljóta þessa viðurkenningu Birta Steinunn Ragnarsdóttir frá Lagadeild HÍ fyrir ritgerðina Má ég segja frá? Tjáningarfrelsi í tengslum við kynferðisofbeldi með hliðsjón af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu og íslenskra dómstóla og Svala Davíðsdóttir frá Lagadeild HR fyrir ritgerðina Mannréttindi og loftslagsbreytingar: greining á dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Verein KlimaSeniorinnen gegn Sviss.

Á málstofunni mun Oddný Mjöll kynna starfsþjálfunina. Þá munu Birta Steinunn og Svala taka við viðurkenningum og fjalla um efni ritgerða sinna.

Málstofan verður haldin í Lögbergi, stofu L101, miðvikudaginn 20. ágúst frá kl. 12:00 til 13:00.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Menntavegur 1
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00