RIKK Háskóli Íslands

RIKK Háskóli Íslands

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from RIKK Háskóli Íslands, College & University, Gimli, Sæmundargötu 2, 3. hæð, Reykjavík.

Photos from RIKK Háskóli Íslands's post 23/04/2026

Andrea Pető, prófessor í kynjafræði við Central European University í Vín hélt vel sóttan fyrirlestur á vegum RIKK og Kvenréttindafélags Íslands þriðjudaginn 21. apríl s.l. í Veröld. Við þökkum öllum þeim sem mættu og hlýddu á frábært erindi Pető.

Í fyrirlestri sínum, sem byggði á bók hennar og blaðakonunnar Zsuzsönnu Balázs, Viktor Orbán’s Affairs with Women, fjallaði Pető meðal annaras um það hvernig kyn skipar lykilstöðu í mótun og viðhaldi ófrjálslyndra stjórnarhátta. Hún lagði áherslu á að spurningar um kyn, fjölskyldu og félagslega mótun væru ekki jaðarviðfangsefni heldur meðal þeirra þátta sem móta vald, réttlæta það og festa það í sessi.

Að loknum fyrirlestri fór fram pallborð þar sem þessi viðfangsefni voru rædd í víðara samhengi. Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu RIKK:

https://rikk.hi.is/fyrirlestur-andreu-peto-hvernig-er-haegt-ad-grafa-undan-lydraedi-innan-fra-an-thess-ad-afnema-thad/

See information in English on RIKK's website here:

https://rikk.hi.is/en/gender-power-and-democratic-erosion-andrea-peto-at-rikk/

The Day After the Defeat of the Illiberal Party: on Academic Freedom and Gender Equality 19/04/2026

Við minnum á fyrirlestur Andreu Pető, prófessors við kynjafræðideild Central European University (CEU) í Vín í Veröld n.k. þriðjudag klukkan 16.

Fyrirlesturinn byggir Andrea Pető á nýlegri bók hennar og Zsuzsönnu Balázs, Viktor Orbán’s Affairs with Women. Þar er meðal annars geeind stjórnarstefna Viktors Orbáns, sem kennd er við „ófrjálslynt lýðræði“ (e. illiberal democracy) og sýnt hvernig hann hefur með markvissum hætti endurskilgreint og grafið undan bæði innlendum og alþjóðlegum viðmiðum um jafnrétti, inngildingu og bann við mismunun til að setja fram valkost við frjálslynd gildi.

Hvað hefur breyst að loknum kosningum og brotthvarfs Viktors Orbáns? Andrea Pető ræðir hér í meðfylgjandi pistli úrslit kosninga í Ungverjalandi, akademískt frelsi og kynjajafnrétti.

The Day After the Defeat of the Illiberal Party: on Academic Freedom and Gender Equality What has changed after the defeat of the illiberal FIDESZ Party as far as academic freedom and gender equality are concerned?

Decolonial practices in higher education: Student perspectives in Iceland | Kvinder, Køn & Forskning 06/02/2026

Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum, og Giti Chandra, rannsóknadósent við sömu stofnun, rituðu grein í sérrit Kvinder, Køn & Forskning sem ber heitið Decolonisation. Greinin nefnist „Decolonial practices in higher education“ og byggir á viðtölum sem tekin voru við nemendur á Hugvísinda-, Félagsvísinda og Menntavísindasviði um þátt nýlendusögu í námi þeirra. Greinin er í rafrænum og opnum aðgangi.

Decolonial practices in higher education: Student perspectives in Iceland | Kvinder, Køn & Forskning Decolonial practices in higher education Student perspectives in Iceland Forfattere Giti Chandra Research Specialist, University of Iceland https://orcid.org/0000-0002-3463-3469 Sólveig Sigurðardóttir Postdoctoral Researcher, University of Iceland https://orcid.org/0009-0004-3416-8626 DOI: https:...

01/12/2025

Minnum á fyrirlestur Dr. Julie Schamp um áfallamiðaða nálgun og konur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns í dag, mánudag kl. 12:00-14:00.

Frekari upplýsingar hér:

rikk.hi.is

27/11/2025

Dr. Julie Schamp heldur erindi um áfallamiðaða nálgun og konur mánudaginn 1. desember kl. 12:00–14:00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.

Fyrirlesturinn er í boði Evrópuverkefnisins INTERACT, sem RIKK og Rótin eru þátttakendur í, og er haldinn í samstarfi við Félagsvísindasvið/Félagsráðgjafardeild HÍ, Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.

Fyrirlesturinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðum RIKK og Rótarinnar:

rikk.hi.is

Lestin - Spilari RÚV 25/11/2025

Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur var gestur í Lestinni á Rás 1 í dag og sagði þar meðal annars frá baráttukonunni Maríu Þorsteinsdóttur. Rósa er fimmti gestur hádegisfyrirlestraraðar RIKK á þessu hausti og flytur erindið „Sá heimur spyr engan um kyn, bara mann" næsta fimmtudag í Þjóðminjasafninu klukkan 12.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir!

Hér má hlusta á stórskemmtilegt og áhugavert viðtal við Rósu sem hefst á mínútur 31.

Lestin - Spilari RÚV Platan West End Girl kom nánast fyrirvaralaust inn á streymisveitur. Fyrsta plata bresku söngkonunnar Lily Allen í 7 ár, sem hafði sögu að segja. Söguna af því hvernig hjónaband hennar og bandaríska leikarans David Harbour fór í vaskinn. Lovísa Lára var gegntekin af plötunni þegar...

Samfélagið - Spilari RÚV 07/11/2025

RIKK fyrir hönd Háskóla Íslands og Rótin eru þátttakendur í verkefninu Intersectional Approach to Combating Homelessness for Women (INTERACT) sem stendur yfir frá 1. október 2024 til 30. september 2027 og er styrkt af Félagsmálasjóði Evrópu (ESF+).

Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig s*x Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ísland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, nálgast málaflokk heimilislausra kvenna. Landsskýrsla – stutt úgáfa hefur einnig verið gerð aðgengileg. RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands og Rótin, félagasamtök, eru íslensku samstarfaðilarnir og leiddu þessa vinnu.

Sjá frekari upplýsingar og hlekk á skýrsluna hér:

https://rikk.hi.is/landsskyrsla-um-stodu-heimilislausra-kvenna-i-evropu-i-tengslum-vid-interact-verkefnid-birt/

Kristín Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri INTERACT hjá RIKK og Kristín I. Pálsdóttir framkvæmdastjóri Rótarinnar voru gestir í Samfélaginu á Rás 1 í dag og ræddu Interact verkefnið og Landsskýrsluna.

https://www.ruv.is/utvarp/spila/samfelagid/23617/b718cv

Samfélagið - Spilari RÚV Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig s*x Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, auk Íslands, nálgast málefni heimilislausra kvenna. Niðurstöðurnar sýna að víða skortir á samþætti...

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Culinary Team

Attire

Telephone

Address


Gimli, Sæmundargötu 2, 3. Hæð
Reykjavík
102