Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ

Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindastofnunar HÍ

Share

Tölfræðiráðgjöf veitir rannsakendum við HVS ráðgjöf varðandi tölfræði

Bóka ráðgjöf 07/08/2020

Nú fer sumarfríi okkar að ljúka og tölfræðiráðgjöfin fer aftur í gang þann 10. ágúst. Í ljósi aðstæðna þá mun ráðgjöfin næstu vikurnar fara fram í gegnum netið. Ráðgjöfin er bókuð í gegnum vefinn http://trhvs.hi.is/bokaradgjof/.

Bóka ráðgjöf Veldu staðsetningu, dagsetningu og tíma, og skráðu svo viðeigandi upplýsingar.

01/07/2020

Tölfræðiráðgjöfin fer í sumarfrí!

Frá og með 13. júlí til og með 9. ágúst verður ráðgjöfin lokuð. Starfsmenn munu þó ekki sitja á auðum höndum því ráðgjöfin er með nokkur spennandi verkefni framundan.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur í ágúst!

Tölfræðiráðgjöf Heilbrigðisvísindasviðs

27/05/2020

Í byrjun maímánaðar hóf Sigurbjörg Anna Guðnadóttir, doktorsnemi í líftölfræði við Háskóla Íslands, störf hjá Tölfræðiráðgjöfinni.

Eftir útskrift úr stærðfræði við Háskóla Íslands fyrir 2 áratugum síðan hefur Anna unnið við gagnaúrvinnslu, tölfræði og framhaldsskólakennslu. Ásamt því að vinna í tölfræðiráðgjöfinni mun hún vinna í verkefnum í samstarfi við Áfallasögu kvenna þar sem áherslan verður m.a. á tengsl áfalla, erfða og lifunar.
Anna mun taka að sér að hitta skjólstæðinga í viðtöl tvo daga í viku og aðstoða við frekari úrvinnslu ef þörf er á. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.

14/05/2020

Það er þétt dagskrá fræðslu á internetinu í dag!

Kl 17:00: MIDAS COVID-19 Special Seminar Series: Jon Zelner, “If the outbreak ended, does that mean the interventions worked?”

https://midas.umich.edu/event/midas-covid-19-special-seminar-series-jon-zelner-predicting-covid-19-transmission/

Kl 19:00: COVID-19 Data Forum, í boði R-Consortium og Stanford Data Science Institute. Fyrirlesarar eru Orhun Aydin, Ryan Hafen, Alison L. Hill, Noam Ross.

https://covid19-data-forum.org/

24/04/2020

Í nýjustu útgáfu af COVID19 mælaborði Heilbrigðisvísindastofnunar Háskóla Íslands má sjá þróun fjöldatalna fyrir dauðsföll auk þróunar dánartíðni á fjölda greindra COVID19 smita eftir löndum.

Vert er að taka fram að dánartíðnin vegna COVID19 í Evrópu er næst lægst hér á landi (0.56%), en einungis Færeyjar hafa lægri dánartíðni (0.00%).

Hér ber að nefna að mismikið er skimað fyrir COVID19 í löndum og slíkt hefur mikil áhrif á dánartíðni sem reiknast út frá í gögnum. Til dæmis er ekki jafnmikið skimað í Svíþjóð og hér, en skráð dánartíðni miðað við fjölda greindra tilfella er þar 12%.

covid.rhi.hi.is

Bóka ráðgjöf 20/04/2020

Aukið framboð viðtalstíma! Nú er hægt að bóka tölfræðiviðtöl á þriðjudögum milli 09 - 14. Öll viðtöl fara fram með fjarfundahugbúnaðinum Teams. Bókið sem áður á vefsíðunni

Bóka ráðgjöf Veldu staðsetningu, dagsetningu og tíma, og skráðu svo viðeigandi upplýsingar.

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Læknagarður, HÍ, Stofa 331
Reykjavík
101