Tónskólinn í Reykjavík

Tónskólinn í Reykjavík Tónskólinn í Reykjavík býður upp á fjölbreytta tónlistarkennslu á ýmis hljóðfæri og söng. Skólinn er staðsettur í Hverafold 5, 112 Reykjavík.

Skólinn hefur starfað í yfir 30 ár með starfstöðvar í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og Fossvogi.

28/07/2026
Metfjöldi nemenda tók áfangapróf við skólann í ár. Ekki vildu allir deila mynd en aðrir voru spenntir að deila stóru stu...
23/05/2026

Metfjöldi nemenda tók áfangapróf við skólann í ár. Ekki vildu allir deila mynd en aðrir voru spenntir að deila stóru stundinni. Það er gefandi að sjá hvað nemendur eflast og vaxa við að setja sér markmið og ná þeim. Til hamingju með árangurinn!

Nótan fór fram með pompi og prakt í Ráðhúsinu þann 18. apríl. Hér má sjá nemendur skólans leika listir sínar. Dagurinn v...
13/05/2026

Nótan fór fram með pompi og prakt í Ráðhúsinu þann 18. apríl. Hér má sjá nemendur skólans leika listir sínar. Dagurinn var ákaflega eftirminnilegur í alla staði.

Hér eru nokkrar myndir frá glæsilegum tónleikum skólans í Grafarvogskirkju um helgina. Efnisskráin var einstaklega fjölb...
11/05/2026

Hér eru nokkrar myndir frá glæsilegum tónleikum skólans í Grafarvogskirkju um helgina. Efnisskráin var einstaklega fjölbreytt og skemmtileg.

Vortónleikar skólans í Grafarvogskirkju fara fram nú á laugardag, 9. maí kl. 11:00, 12:30 og 14:00. Á tónleikunum verða ...
06/05/2026

Vortónleikar skólans í Grafarvogskirkju fara fram nú á laugardag, 9. maí kl. 11:00, 12:30 og 14:00. Á tónleikunum verða leikin mörg samleiksverkefni sem nemendur hafa unnið að á árinu sem og önnur einleiksverk. Framundan er fjöldinn allur af tónleikum skólans. Forskólinn kemur fram á vorhátíðum í sínum hverfum en einnig verða margir tónleikar í sal skólans.

Vortónleikar skólans í Grafarvogskirkju fara fram nú á laugardag, 9. maí kl. 11:00, 12:30 og 14:00. Á tónleikunum verða leikin mörg samleiksverkefni sem nemendur hafa unnið að á árinu sem og önnur einleiksverk. Framundan er fjöldinn allur af tónleikum skólans. Forskólinn kemur fra...

Matthías Stefánsson fiðlukennari við skólann og sjónvarpsstjarna með meiru, fagnaði stórafmæli í mars. Hér er hann hress...
06/05/2026

Matthías Stefánsson fiðlukennari við skólann og sjónvarpsstjarna með meiru, fagnaði stórafmæli í mars. Hér er hann hress og kátur að vanda með nemanda. Kennarar glöddu hann með gjafabréfi og köku af tilefninu.

❤️1.300 leikskólabörn syngja, fimm tónlistarskólar, 117 tónlistarnemar og 73 hljómsveitarnemar flytja tónlist eftir Dr. ...
21/04/2026

❤️1.300 leikskólabörn syngja, fimm tónlistarskólar, 117 tónlistarnemar og 73 hljómsveitarnemar flytja tónlist eftir Dr. Gunna - Gunnar Hjálmarsson í útsetningum Haraldar Vignis Sveinbjörnssonar í Eldborg í Hörpu í dag.

🤩Börnin eru búin að vera að æfa lög Dr. Gunna í vetur og syngja nokkur vel valin lög eftir hann í Eldborgarsalnum. Það er mikil eftirvænting meðal barnanna og þau voru mjög prúð og stillt á meðan á atriðinu stóð og sungu fullum hálsi.

💕Tónleikarnir eru meðal fastra dagskrárliða á Barnamenningarhátíð og alveg einstakt að sjá börnin, sem eru á sjötta ári, syngja af innlifun á sviðinu og unga tónlistarfólkið sér um undirspil. Og Eldborgarsalurinn er þéttsetinn af foreldrum, ömmum, öfum, frænkum og frændum.

🤝Söngvavor er samvinnuverkefni Tónskóla Sigursveins, Tónskólans í Reykjavík, Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Allegro Suzukitónlistarskóla, Tónskóla Eddu Borg, 62 leikskóla í Reykjavík og Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu.

🙌Ungu söngvararnir, tónlistarfólkið, starfsfólk leikskóla og tónlistarskóla og skipuleggjendur eiga öll hrós skilið fyrir frábæra dagskrá!

Barnamenningarhátíð í Reykjavík

21/04/2026

Útsýnið af 2. svölum Hörpu í dag

Nótan 18. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hvílíkur dagur af tónlist, gleði og hæfileikum. Takk fyrir okkur 🎶
18/04/2026

Nótan 18. apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hvílíkur dagur af tónlist, gleði og hæfileikum. Takk fyrir okkur 🎶

Komið og kíkið á Nótuna í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Tónleikar skólans eru kl. 14:30. Listsmiðjur fyrir börnin fram til ...
18/04/2026

Komið og kíkið á Nótuna í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Tónleikar skólans eru kl. 14:30. Listsmiðjur fyrir börnin fram til kl. 15:30.

Address

Hverafold 5
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónskólinn í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Tónskólinn í Reykjavík:

Shortcuts

Share

Category