25/08/2024
Viltu verða hluti af hóp sem styður þig í hverju skrefi ?
Við bjóðum upp á góða æfingastöðu og lokaðan æfingahóp í Reykjavík MMA. 🥊🥊🥊
Við byrjum haustið á nýjum æfingartíma , allir sem skrá sig fá gúddíbag með hluta af mínum uppáhaldsvörum og eftir fyrstu æfingu mánaðarins þann 3 september býð ég upp á létt nasl eftir æfingu með markmiðaspjalli.
Við ætlum að boxa , lyfta lóðum og ketilbjöllum, kynnast stönginni og nota æfingar með eigin líkamsþyngd.
Námskeiðið er fyrir fólk á öllum aldri. Ég er einkaþjálfari og ketilbjöllukennari og mun á námskeiðinu nota æfingar með eigin líkamsþyngd, boxæfingar auk þess sem ég mun kenna undirstöðuæfingar með ketilbjöllur , stangir og lóð.
Námskeiðið hefur verið rúllandi undanfarin 7 ár og hentar sérstaklega þeim sem eru með kvíða / þunglyndi / félagsfælni , þeim sem finnst óþæginlegt að æfa í stóru líkamsræktarstöðvunum eða þeim sem vilja taka þátt í lokuðu námskeiði.
Næsta námskeið byrjar 3 september
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:15 - 18:15 auk þess sem boðið verður upp á eina sunnudagsæfingu kl 11-12.
Verð fyrir mánuðinn er 9000 kr.
Skráningar fara fram á netfanginu [email protected] eða í PM.
Hlakka til að heyra frá ykkur