28/04/2022
Krakkarnir í rauða hóp á leikskólanum Krílakoti á Ólafsvík tóku þátt í umferðarskólanum á dögunum. Þar fengu elstu nemendurnir fræðslu um öryggi barna í bílum, hvernig fara eigi yfir götu og hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Þá var reiðhjólahjálmur skoðaður og börnunum kennt að stilla hann rétt á höfði. Þórey Úlfarsdóttir, deildarstjóri á Krílakoti, sendi okkur þessar fínu myndir af stoltum umferðarsnillingunum á Olafsvik 🚦