Söngskólinn í Reykjavík

Söngskólinn í Reykjavík Söngskólinn í Reykjavík sinnir veigamiklu hlutverki í tónlistarkennslu ungs fólks og hefur frá upphafi menntað marga frábæra tónlistarmenn! www.songskolinn.is

Garðar Cortes stofnaði Söngskólann í Reykjavík haustið 1973 og rak hann sem einkastofnun til ársins 1978 er kennarar, nemendur og velunnarar skólans, undir forystu Garðars, stofnuðu Styrktarfélag Söngskólans í Reykjavík. Skólinn starfaði í eigin húsnæði að Hverfisgötu 45 frá 1978. Haustið 2002 fluttist Söngskólinn í Reykjavík að Snorrabraut 54 en haustið 2018 fluttist öll starfsemi í glæsilegt og rúmgott húsnæði að Laufásvegi 49-51. Frá árinu 1973 hafa á fimmta þúsund nemendur stundað nám við skólann; 355 hafa lokið framhaldsprófi (lokaprófi úr almennri deild). Einnig hefur skólinn útskrifað samtals 202 nemendur með háskólagráður í einsöng og/eða söngkennslu. Námið við Söngskólann í Reykjavík skiptist í nokkrar deildir:
Ungdeild (6 – 15 ára)
Almenn deild
Háskóladeild
Einnig býður skólinn upp á ýmis námskeið
Nemendaópera Söngskólans setur árlega upp sýningar og blómlegt tónleikahald er innan skólans. Margir af nemendum Söngskólans hafa skapað sér stóran sess í söngvaraheiminum s.s. Kristinn Sigmundsson, Garðar Thór Cortes og Þóra Einarsdóttir og lengi mætti telja. Einnig hafa margir af okkar þekktustu söngvurum í rytmísku deildinni stundað nám við Söngskólann og má þar nefna Emiliönu Torrini, Eivöru Pálsdóttur, Kristjönu Stefánsdóttur, Sigríði Thorlacius og Svavar Knút.

Marta Kristín Friðriksdóttir sópransöngkona kom í heimsókn í Söngskólann í Reykjavík í síðustu viku. Hún leiðbeindi neme...
22/09/2026

Marta Kristín Friðriksdóttir sópransöngkona kom í heimsókn í Söngskólann í Reykjavík í síðustu viku. Hún leiðbeindi nemendum í Óperudeild skólans og deildi með þeim reynslu sinni og þekkingu sem hún hefur viðað að sér við nám og störf en Marta hefur aldeilis gert garðinn frægan erlendis undanfarið.

Marta Kristín Friðriksdóttir lauk 8. stigs söngprófi með hæstu einkunn frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2017 og hélt héðan í Tónlistarháskólann í Vín. Þar lauk hún námi árið 2024 og er nú fastráðin við Staatstheater Kassel í Þýskalandi.

Leikárið 2025/26 fór hún meðal annars með hlutverk Súsönnu (Le nozze di Figaro), Fiordiligi (Così fan tutte), Gretel (Hänsel und Gretel), Rosalinde (Die Fledermaus) og sópranhlutverkið í Deutsche Sinfonie eftir Hanns Eisler.

Hún kom fyrst fram á sviði Staatstheater Kassel á leikárinu 2024/25 sem Fiordiligi og Micaëla (Carmen), og söng Donnu Önnu (Don Giovanni) í uppfærslu Vorarlberger Landestheater í Bregenz sama ár.

Árið 2023 hlaut hún aðalverðlaun í óperukeppni Kammeroper Schloss Rheinsberg og söng þar hlutverk Baronessu Eugeníu (La Molinara) á sumartónlistarhátíðinni. Hún sneri aftur til Rheinsberg sumarið 2024 og fór með aðalhlutverk í Iphigénie en Aulide eftir Gluck, þar sem hún söng við hlið Vivicu Genaux og Dietrichs Henschel. Önnur verkefni sama ár fólu meðal annars í sér hlutverk Ölmuí frumflutningi óperunnar Die Leute auf Borg eftir H. Neumann í Veliko Tarnovo í Búlgaríu.
 
Marta Kristín er einnig vinningshafi alþjóðlegra klassískra söngkeppna. Árið 2023 hlaut hún önnur verðlaun í Harvets Röst keppninni á Álandseyjum og var aðalverðlaunahafi í Kammeroper Schloss Rheinsberg keppninni. Árið 2022 hlaut hún Young singer verðlaunin í DEBUT keppninni og söng í úrslitum hinnar virtu Belvedere keppni í Jurmala í Lettlandi. Árið 2021 hlaut hún fyrstu verðlaun í keppninni Ungir einleikarar á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og árið 2019 söng hún í lokaumferð Neue Stimmen keppninnar.

Á myndinni sést Marta með nokkrum nemendum skólans.

Söngskólinn í Reykjavík býður upp á 10 tíma og 5 tíma SÖNGKORT. Með söngkortinu geturðu farið í einkatíma í söng hjá ken...
21/09/2026

Söngskólinn í Reykjavík býður upp á 10 tíma og 5 tíma SÖNGKORT. Með söngkortinu geturðu farið í einkatíma í söng hjá kennara við Söngskólann í Reykjavík.
Verð:
5 tímar x 30 mínútur = 55.000
10 tímar x 30 mínútur = 105.000 kr
5 tímar x 60 mínútur = 105.000 kr
10 tímar x 60 mínútur = 190.000 kr
Lágmarks kennslumagn: 5 tímar

Skráning: https://songskolinn.is/namsleidir/namskeid/

Tímarnir fara fram í húsnæði Söngskólans í Reykjavík við Grensásveg 3, 3. hæð, 108 Reykjavík. Þeir eru einnig í boði í gegnum netið.

Hægt er að kaupa SÖNGKORT sem GJAFAKORT (ath. að taka það fram í umsókn)

Það er ekkert aldurshámark og það eru engin inntökupróf fyrir söngkort.

Tímarnir eru sérsniðnir fyrir hvern nemanda, svo þeir henta bæði byrjendum og lengra komnum. Allir kennarar skólans eru vel menntaðir og reyndir söngvarar.

Styrkir
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja námskeið eða nám? Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu málið.

Söngskólinn í Reykjavík
Grensásvegur 3, 3. hæð, 108 Reykjavík
[email protected]
www.songskolinn.is

18/09/2026

Við erum sammála hljómsveitarstjóranum Iván Fischer: Use your voice and sing! It’s one of the most important activities of a human being.

2,5 MILLJÓNUM ÚTHLUTAÐ TIL EFNILEGRA NEMENDA Í SÖNGSKÓLANUM Í REYKJAVÍK ÚR MINNINGARSJÓÐI GUÐFREÐS HJÖRVARS JÓHANNESSONA...
17/09/2026

2,5 MILLJÓNUM ÚTHLUTAÐ TIL EFNILEGRA NEMENDA Í SÖNGSKÓLANUM Í REYKJAVÍK ÚR MINNINGARSJÓÐI GUÐFREÐS HJÖRVARS JÓHANNESSONAR.  
Minningarsjóður Guðfreðs Hjörvars Jóhannessonar, í varðveislu Söngskólans í Reykjavík, veitti þriðjudaginn 15. september 2026 sjö efnilegum nemendum skólans námsstyrki. Styrkirnir nýtast  til að greiða niður í heild eða að hluta til skólagjöld nemendanna sjö við Söngskólann í Reykjavík skólaárið 2026-2027. Alls var 2,5 milljónum úthlutað úr sjóðnum. 
 
Á þeim sjö árum sem liðin eru frá stofnun sjóðsins hafa 37 nemendur hlotið styrki úr honum. 
 
Styrkþegar að þessu sinni eru: 
 
Alma Hlín Þórarinsdóttir 
Aþena Helgadóttir 
Hera Sjöfn Atladóttir  
Jón Valur Kristjánsson  
Sigurður Matthías Sigurðarson 
Steinunn Harðardóttir  
Sunna Rós Guðbjörnsdóttir 
 
Söngskólinn í Reykjavík hefur í vörslu sinni áðurnefndan sjóð sem er til minningar um Guðfreð Hjörvar Jóhannesson, en hann var starfsmaður og velunnari Söngskólans í Reykjavík um árabil. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar 2018 og er stofnandi sjóðsins dánarbú Guðfreðs. 

Markmið sjóðsins er að styrkja unga, efnilega nemendur við Söngskólann í Reykjavík og skulu þeir valdir af stjórn sjóðsins, sem nú skipa þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Viðar Gunnarsson og Þorvaldur Gylfason. 
 
Guðfreður sagði eftirfarandi í viðtali við Morgunblaðið árið 2017:. „Þar sem ég á eng­an lögerf­ingja hef ég í erfðaskrá minni unnið að því að and­virði íbúðar minn­ar og öðrum fjár­mun­um verði eft­ir minn dag varið í minn­ing­ar­sjóð fyr­ir efni­lega söng­nem­end­ur. Eins og kunn­ugt er get­ur verið erfitt fyr­ir unga list­nema að fóta sig fjár­hags­lega á meðan þeir ljúka námi og ég vil gera mitt til að veita þeim aðstoð, enda út­skrif­ast sæg­ur af hæfi­leika­fólki úr Söng­skól­an­um í Reykja­vík.“

VILTU LÆRA AÐ SYNGJA? KOMDU Á 8 VIKNA SÖNGNÁMSKEIÐ VIÐ SÖNGSKÓLANN Í REYKJAVÍK! Næsta námskeið hefst 19. október 2026. H...
15/09/2026

VILTU LÆRA AÐ SYNGJA? KOMDU Á 8 VIKNA SÖNGNÁMSKEIÐ VIÐ SÖNGSKÓLANN Í REYKJAVÍK! Næsta námskeið hefst 19. október 2026. Hægt er að skrá sig á vefsíðu skólans: https://songskolinn.is/namsleidir/namskeid/

Námskeiðin eru ætluð söngfólki á öllum aldri. Þau eru skemmtilegt, fræðandi og gefandi tómstundanám. Námskeiðin veita góða þjálfun fyrir söngvara og þau eru frábær undirbúningur fyrir þá sem hyggja á frekara söngnám. Það er ekkert aldurshámark og ekkert inntökupróf fyrir námskeiðin.

* Söngtækni
* Túlkun
* Framkoma
* Tónfræði

Innifalið:
* 8 x 30 mínútna einka söngtímar. Þeir fara fram á tíma sem kennarinn og nemandinn ákveða sín á milli.
* 7 x 45 mínútna tónfræðitímar
* 3 x 60 mínútna samsöngstímar

Gjald:
Gjaldið fyrir námskeiðið er 99.000 kr. Hægt er að skipta gjaldinu á tvo gjalddaga. 18 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík geta nýtt frístundastyrk Reykjavíkurborgar.

Allir tímar fara fram við Grensásveg 3, 3. hæð, 108 Reykjavík.

Söngkennarar eru sérmenntaðir og reyndir söngvarar og kennarar. Sjá yfirlit yfir kennara á vefsíðu skólans: https://songskolinn.is/skolinn/starfsfolk/

Námsefni
Athugið að nemendur gætu þurft að festa kaup á námsefni, s.s. nótum og kennslubók í tónfræði. Kostnaður við námsefni er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldinu.

Hóptímar eru eftirfarandi:

Tónfræði, sjö mánudaga kl. 17:30-18:15. Dagsetningar: 19. október, (26. október er vetrarfrí), 2. nóvember, 9. nóvember, 16. nóvember, 23. nóvember, 30. nóvember, 7. desember 2026. Kennari: Eygló Höskuldsdóttir Viborg.

Samsöngur, þrisvar sinnum, kl. 18:00-19:00 í sal skólans, fimmtudagana 12. nóvember, 26. nóvember og 10. desember 2026. Kennarar í samsöng: Egill Árni Pálsson söngkennari og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari.

Annað einkanám við Söngskólann í Reykjavík:

SÖNGKORT

Söngskólinn í Reykjavík býður upp á 10 tíma og 5 tíma SÖNGKORT. Með söngkortinu geturðu farið í einkatíma í söng hjá kennara við Söngskólann í Reykjavík. Tónfræði og hóptímar eru ekki innifalin í söngkortum. Kennarinn og nemandinn finna saman þann tíma sem hentar báðum.

Verð:
10 tímar x 60 mínútur = 190.000 kr
10 tímar x 30 mínútur = 105.000 kr
5 tímar x 60 mínútur = 105.000 kr
5 tímar x 30 mínútur = 55.000 kr

Lágmarks kennslumagn: 5 tímar

Hægt er að skipta skólagjöldum í tvær greiðslur á Abler.

Styrkir
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja námskeið eða nám? Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu málið. 18 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík geta nýtt frístundastyrk Reykjavíkurborgar til að sækja 8 vikna námskeið.

Aldur
Það er ekkert aldurshámark og það eru engin inntökupróf fyrir námskeið og söngkort.

8 vikna námskeið á skólaárinu 2026-2027 hefjast:
Námskeið I: 24. ágúst 2026
Námskeið II: 19. október 2026
Námskeið III: 11. janúar 2027
Námskeið IV: 8. mars 2027

Skráning: https://songskolinn.is/namsleidir/namskeid/

ALMENNT NÁM

Ungdeild (8-15 ára), Grunndeild (16-25 ára), Miðdeild, Framhaldsdeild, Söngleikjadeild (styrkt nám, kennt samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla). Hámarksaldur fyrir grunnnám er 25 ára.

Söngskólinn í Reykjavík
Grensásvegur 3, 3. hæð, 108 Reykjavík
[email protected]

Stemmning í eldri ungdeild Söngskólans í Reykjavík í dag!
09/09/2026

Stemmning í eldri ungdeild Söngskólans í Reykjavík í dag!

Kennsla er komin á fullt í Söngskólanum í Reykjavík á Grensásvegi 3, 3. hæð. Söngleikjadeildin í upphitun hjá Völu Guðna...
03/09/2026

Kennsla er komin á fullt í Söngskólanum í Reykjavík á Grensásvegi 3, 3. hæð. Söngleikjadeildin í upphitun hjá Völu Guðna. Frábær aðstaða fyrir söng og dans í stórum sal.

„Söngur hefur líkamleg áhrif þar sem það er loftháð starfsemi sem eykur súrefni í blóðrásinni og þjálfar stóra vöðvahópa...
31/08/2026

„Söngur hefur líkamleg áhrif þar sem það er loftháð starfsemi sem eykur súrefni í blóðrásinni og þjálfar stóra vöðvahópa í efri hluta líkamans og jafnvel þegar við sitjum. Söngur hefur sálfræðilegan ávinning vegna jákvæðra áhrifa við að draga úr streitu og hefur áhrif á innkirtlakerfi okkar sem tengist skilningi okkar á tilfinningalegri líðan. Sálfræðileg áhrif eru einnig augljós hvort sem fólk syngur eitt eða í hóp vegna aukins skilnings og tilfinningu fyrir samfélaginu, tilheyra og deila með öðrum.“

Syngjum!

https://hjartalif.is/soengur-hefur-frabaer-ahrif-a-hjartae-og-andlega-liean/?fbclid=IwdGRleAUC4d9wZG9mBWZkaWQWUNiJqHCpkGG1RtaG0MJ04Webcc-M7GV4dG4DYWVtAjExAHNydGMGYXBwX2lkCjY2Mjg1NjgzNzkAAR5xHAQo0J72jS19j0OCep819qdkt84yJD3Y7seIN_vkAI2tGdZNLxhEYRXvKA_aem_o9kIzZFmNNksPQc0MbL8Gw

Íslendingar syngja mikið og söngur er góður fyrir heilsuna. Rannsóknir benda til þess að söngurinn hafi líka góð áhrif á hjartað.

Bryndís Guðjónsdóttir sópran, kennari við Söngskólann í Reykjavík, kemur fram á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit...
27/08/2026

Bryndís Guðjónsdóttir sópran, kennari við Söngskólann í Reykjavík, kemur fram á Klassíkinni okkar með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Góða skemmtun!

Minningarsjóður Jóns Stefánssonar auglýsir eftir tilnefningum um styrkþega.Skriflegar tilnefningar skulu sendar á netfan...
25/08/2026

Minningarsjóður Jóns Stefánssonar auglýsir eftir tilnefningum um styrkþega.

Skriflegar tilnefningar skulu sendar á netfangið [email protected] eigi síðar en 10. september 2026. Í tilnefningu skulu koma fram:

i. Upplýsingar um umsækjanda sem er tilnefndur; nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá.
ii. Upplýsingar um þann sem leggur fram tilnefninguna; nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Lýsing á tengslum viðkomandi við þann sem er tilnefndur.
ii. Stutt og hnitmiðuð lýsing á hvers vegna umsækjandi er tilnefndur.
iii. Lýsing á því hvernig tilnefningin fellur að markmiðum Minningarsjóðs Jóns Stefánssonar.

Almennt er miðað við að tilnefndir einstaklingar hafi lokið framhaldsnámi í tónlist og séu að hefja eða komnir í tónlistarnám á háskólastigi. Stjórn sjóðsins mun ákveða upphæð veittra styrkja.

Úthlutun verður 16. september 2026 á Heiðurstónleikum Jóns Stefánssonar í Lanholtskirkju. Hann hefði orðið 80 ára í júlí 2026 og því ætla kórar kirkjunnar að syngja á tónleikum honum til heiðurs á vígsludegi Langholtskirkju.
Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna inn á www.minningarsjodurjs.com

Address

Grensásvegur 3
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Söngskólinn í Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category