18/05/2026
#22 Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi.
Hérna er hlekkur á þáttinn: https://spotifycreators-web.app.link/e/smcUFZDPe3b
19/03/2026
Við viljum vekja athygli á þessum viðburði í Gerðubergi, Breiðholti miðvikudaginn 8. apríl kl. 14:30 - 16:00.
Athugið að sætaframboð er takmarkað svo skráið ykkur sem fyrst.
Hlekkur á skráningu: https://forms.office.com/e/sx2v2qk1ph
18/03/2026
Við hjá rannsóknastofunni viljum þakka ykkur kærlega fyrir þátttökuna á netviðburðinum um nýja skilgreiningu á dyslexíu í gær.
Við erum afskaplega ánægð með þær góðu viðtökur sem viðburðurinn fékk og þann mikla áhuga sem hann vakti. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt og fylgdust með.
Meðfylgjandi er upptaka frá viðburðinum fyrir þau sem vilja horfa aftur eða deila efninu með samstarfsfólki.
Smellið á auglýsinguna til þess að komast inn á upptökuna.
AÐ SKILJA DYSLEXÍU: ÁHRIF SKILGREININGAR Á KENNSLU OG GREININGAR Á ÍSLANDI
Zoom fyrirlesturinn, Að skilja dyslexíu: Áhrif skilgreiningar á kennslu og greiningar á Íslandi fór fram í streymi…
13/03/2026
Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna vekur athygli á fræðsluerindi um nýja skilgreiningu á dyslexíu sem gefin var út af Alþjóðlegu dyslexíusamtökunum (International Dyslexia Association) síðla árs 2025. Mikil vinna liggur að baki þeim breytingum sem gerðar hafa verið og vegur mikilvægi kennslu og stuðnings nú enn meira. Tveir af þeim fræðimönnum sem unnu að skilgreiningunni Dr. Hugh Catts og Dr. Charles Haynes, munu fjalla um mótun nýju skilgreiningarinnar, hvaða vísindalegu gögn liggja til grundvallar og um áhrif skilgreiningarinnar á kennslu og greiningar.
Í ljósi þess að staða lestrargreininga á Íslandi er í nokkurri óvissu viljum við eindregið hvetja ráðandi og leiðandi aðila í menntamálum til að nýta þetta tækifæri til að kynna sér nýjustu upplýsingar á greiningar lestrarvanda.
Fyrir hönd rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna.
Berglind Axelsdóttir, verkefnastjóri læsis og starfsþróunar
06/03/2026
🌟🌟Við vekjum athygli á þessari kynningu á eTwinning fyrir starfsfólk í framhaldsskólaum🌟🌟
Allar nánari upplýsingar á https://nymennt.hi.is/is/etwinning-fyrir-framhaldsskola
12/02/2026
Algerlega frábært verkefni hér á ferð - endilega hvetjið áhugasama nemendur ykkar til að skrá sig til þátttöku . Viðburðurinn er opinn öllum framhaldsskólanemendum (nemendum í UNESCO-skólum er þó veittur forgangur) en nemendur í 10. bekk geta einnig sótt um...
Bendi einnig á ótrúleg flottan vef sem Félag Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu, settu í loftið síðast haust: https://verdurheimurinnbetri.is
Verður heimurinn betri? er kennsluverkfæri sem hjálpar ungu fólki að skilja heiminn sem við búum í. Með því að hvetja til ígrundunar um ástandið í heiminum styður verkefnið við fjölbreytta og gagnrýna hugsun, færni sem nýtist í öllum námsgreinum. Á vefnum má finna fjölbreytt og gagnvirkt efni fyrir skóla, kennara og aðra áhugasama.
Í þessu Model UN setja nemendur sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna 🇺🇳.
Frekari upplýsingar og skráningarhlekkur í athugasemdum.
Í þetta sinn verður fjallað um öryggi kvenna í Afganistan, á vettvangi öryggisráðsins.
Þátttakendur þurfa enga sérstaka reynslu og er þess einungis krafist að nemendur vilji læra meira um starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Þátttakendur fá sent efni til þess að undirbúa sig og áhugasömum verður boðið á undirbúningsfund.
🙋 Af hverju ættir þú að taka þátt?
🤝 Skemmtilegt tækifæri: Prófaðu þig áfram í ræðuhaldi, samningaviðræðum og samvinnu.
🌎 Skildu heiminn betur: Þú lærir hvernig Sameinuðu þjóðirnar starfa og hvernig ákvarðanir um stærstu mál samtímans eru teknar.
🏆 Vertu hluti af lausninni: Taktu þátt í að móta hugmyndir og lausnir sem skipta máli.
⭐️ Byggðu tengslanet: Þú hittir jafnaldra úr öðrum skólum, myndar ný vinatengsl og kynnist fólki.
😎 Einstök reynsla fyrir framtíðina: Þátttakan styrkir þig sem framtíðar leiðtoga og getur líka verið dýrmæt reynsla í námi og starfi.
12/02/2026
Með verkefninu "Danskir farkennarar" gefst fræðslumiðstöðum og skólaskrifstofunum tækifæri til að efla dönskukennslu í grunnskólum á sínu svæði – sérstaklega m.t.t. bættrar kennslu í munnlegri tjáningu og miðlun danskrar menningar.
Danska menntamálaráðuneytið greiðir laun danska farkennarans ásamt ferðum til og frá Íslandi. Hefurðu áhuga á að fá farkennara í skólann eða fræðast meira um verkefnið? Opið er fyrir umsóknir:)
https://donskukennsla.hi.is/skolar/
11/02/2026
Fyrirlestrar um þroska, læsi og líðan
Það er Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna mikil ánægja að geta boðið upp á sérstaka fyrirlestrarröð án endurgjalds í samstarfi við CLEDI rannsóknarhópinn (Centre for Research in Language, Education and Developmental Inequalities) við Nottingham Trent háskóla. Fyrirlestrarnir eru í tilefni árs læsis á Bretlandi og eru í beinu streymi.
Athugið að það þarf að skrá sig á hvern viðburð því takmörkuð sæti eru í boði. Skráning hér: https://forms.cloud.microsoft/pages/responsepage.aspx?id=xcLLiu3Ix0KBabpDig2-L4LuZ22Y-FRDr5qWymX-pKpUQlVNM0k0ODVZU1NRRE5GOERPT1lWOENOTi4u&route=shorturl
Dagskrá fyrirlestraraðar
_________________________________________________________________________________
18. febrúar 2026: Reading, intense interests, and autistic joy in the everyday classroom
Practical Ways to Build Inclusive Reading Experiences
Dr Ania Atkinson - Senior Lecturer and Researcher in Education Studies and SEND at Nottingham Trent University
_________________________________________________________________________________
24. febrúar 2026: It is better when we work together: Bridging the Gap between Practice and Research
What Happens When Teachers and Researchers Co-Create
Aaron Jordan – Deputy Headteacher at Millfield L.E.A.D Academy
_________________________________________________________________________________
31. mars 2026: Creating a successful Reading for Pleasure Community
Practical and innovative ways to embed reading for pleasure initiatives
Dr Beccy Cullen – WRAP Programme Director at Nottingham Trent University _________________________________________________________________________________
28. apríl 2026: Peers helping peers with their reading: PALS-UK a whole-class paired reading programme
Sharing the success of engaging with EEF programmes in your setting
Dr Emma Vardy – Associate Professor in Psychology at Nottingham Trent University
Beverley Jennings – Programme Manager at the EEF
________________________________________________________________________________
19. maí 2026: Navigating Language Disorders in the Classroom: Dyslexia and Developmental Language Disorder (DLD)
Building Understanding and Confidence in Supporting Language Needs
Dr Rebecca Larkin – Deputy Head of Department of Psychology at Nottingham Trent University & Dr Catherine Marshall – Senior Lecturer in Psychology at Nottingham Trent University
_________________________________________________________________________________
30. júní 2026: Love2Read: An innovative approach to sustain a love of reading
Six Research-Informed Principles for Fostering Reading for Pleasure
Professor Sarah McGeown – Professor of Literacy (Psychology & Education) at University of Edinburgh & Dr Jamie Lingwood – Senior Lecturer in Psychology at Liverpool Hope University
_________________________________________________________________________________
14. júlí 2026: Supporting wellbeing through stories
Practical Ways to Use Stories to Support Emotional Health
Jayne Carter – Programme Development Lead at Partnerships for Children
_________________________________________________________________________________
29. september 2026: Support Language and Movement through Storytelling in the Primary Setting
Innovative in the early years
Professor Clare Wood – Professor of Psychology at Nottingham Trent University
_________________________________________________________________________________
20. október 2026: 'I can relate to this': insights on factors affecting teen reading choices
Supporting Teen Reading Through Choice, Relevance, and Connection
Beth Kemp – PhD Researcher at Nottingham Trent University
_________________________________________________________________________________
24. nóvember 2026: From Calculation to Communication: A Disciplinary Approach to Teaching Mathematics
Practical Strategies for Developing Disciplinary Literacy in Maths
Tina Ronan – Second Grade Teacher at the International School of Bologna
_________________________________________________________________________________
15. desember 2026: ReadEasy: The Importance of Reading Volunteers
Harnessing the Power of Volunteers to Support Literacy and Confidence
Lorna Jaggard – Early Years Lead at Literacy Volunteers &
Helen Chambers, ReadEasy Volunteer in Nottingham
forms.cloud.microsoft