31/12/2025
Elsku þú ♥️
Á mörkum ára vil ég staldra við í þakklæti fyrir þig. Fyrir að vera hér, fyrir að lesa, finna, spegla og leyfa orðum að snerta hjartað.
Inn í nýtt ár vil ég minna þig á þetta:
Þú þarft ekki að verða meira. Þú þarft aðeins að muna hver þú ert.
Þegar þú hlustar inn á við, mjúkt og af einlægni, finnurðu leiðsögnina sem þú leitar að.
Áður en nýtt ár hefst, gefðu þér augnablik í kyrrð og spyrðu:
– Hvaða gildi kalla á mig núna?
– Hvað vill sálin mín fá meira rými fyrir á komandi ári?
– Hvað er ég tilbúin/n að sleppa með þakklæti?
Megir þú stíga inn í nýtt ár með opið hjarta, traust á eigin innsæi og frið í sál.
Ljós og kærleikur fylgi þér inn í árið sem er að fæðast