Vesturbæjarskóli

Vesturbæjarskóli Vesturbæjarskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk.

Börn í 7. bekk spreyttu sig á sápukúlumálun í sjónlistum og er útkoman svona skemmtileg 🫧
23/09/2026

Börn í 7. bekk spreyttu sig á sápukúlumálun í sjónlistum og er útkoman svona skemmtileg 🫧

Börnin í 1. bekk tóku sína fyrstu stafakönnun í dag 🩵💛🩷💚 þeim fannst verkefnið mjög skemmtilegt og enn skemmtilegra að t...
23/09/2026

Börnin í 1. bekk tóku sína fyrstu stafakönnun í dag 🩵💛🩷💚 þeim fannst verkefnið mjög skemmtilegt og enn skemmtilegra að taka til í stofunni að könnun lokinni 🥰

Hvetjum öll til að mæta ♟️💛🩷💚🩵
21/09/2026

Hvetjum öll til að mæta ♟️💛🩷💚🩵

Á Réttindaráðsfundi í morgun kíktu börnin í hugmyndakassann sem er á Skólatorgi 🩵🩷💚💛 margar góðar hugmyndir komu upp úr ...
18/09/2026

Á Réttindaráðsfundi í morgun kíktu börnin í hugmyndakassann sem er á Skólatorgi 🩵🩷💚💛 margar góðar hugmyndir komu upp úr kassanum í dag eins og að vera með skólablað, meiri viðvera skólahjúkrunarfræðings ❤️‍🩹 og að fá ís og kakó á föstudögum 😅 eins og alltaf voru hugmyndirnar ræddar út frá réttindum og forréttindum og flokkaðar út frá því hvert á að koma þeim til að koma í réttan farveg 🙌

Það var mikið stuð á Fjörleikunum okkar í dag 💕 börnunum var skipt í lið þvert á árganga og tóku þátt í fjölbreyttum lei...
17/09/2026

Það var mikið stuð á Fjörleikunum okkar í dag 💕 börnunum var skipt í lið þvert á árganga og tóku þátt í fjölbreyttum leikjum úti á skólalóð 🩵💚💛🩷 í hádeginu voru grillaðar pylsur og eftir hádegi var Skólahlaupið okkar skemmtilega 🌸 Hector kokkurinn okkar fór með okkur í Tai Chi og börnin í 7. bekk sáu um upphitun og voru liðsstjórar 🙌 það fara örugglega mörg börn snemma að sofa í kvöld 😴

Smíðahópurinn í 5. bekk skellti sér út að tálga í veðurblíðunni í dag 🙌 í leiðinni ráku þau nefið inn í Samfélagshúsið á...
15/09/2026

Smíðahópurinn í 5. bekk skellti sér út að tálga í veðurblíðunni í dag 🙌 í leiðinni ráku þau nefið inn í Samfélagshúsið á Aflagranda til að skoða þar ýmsa muni sem vöktu forvitni þeirra 🌸 það var tekið mjög vel á móti þeim og þeim boðið óvænt inn á verkstæðið þar sem sýnd voru nokkur handtök 💛💚🩵🩷

Í dag var fyrsti fundur nýskipaðs Réttindaráðs Vesturbæjarskóla. Við nýttum fundinn til að kynnast, fórum yfir hlutverk ...
11/09/2026

Í dag var fyrsti fundur nýskipaðs Réttindaráðs Vesturbæjarskóla. Við nýttum fundinn til að kynnast, fórum yfir hlutverk og helstu verkefni ráðsins og ræddum réttindastarfið fram undan 🙌

Í Réttindaráði sitja tvö börn úr hverjum árgangi í 2.–7. bekk ásamt fulltrúum starfsfólks, foreldra, Skýjaborga og Frostheima. Með Réttindaráði fá börn tækifæri til að láta rödd sína heyrast, koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa raunveruleg áhrif á skólastarfið 💛

Við hlökkum mikið til vetrarins og erum spennt að sjá hvaða verkefni Réttindaráðið velur að leggja áherslu á í ár! 💛💚🩵🩷

Í gær fengum við fiskibollur með kartöflum og sósu 🧆 og í dag var snitsel á boðstólum 💛💚🩵🩷 með matnum er alltaf nóg af f...
09/09/2026

Í gær fengum við fiskibollur með kartöflum og sósu 🧆 og í dag var snitsel á boðstólum 💛💚🩵🩷 með matnum er alltaf nóg af fersku og litríku grænmeti og gott að sjá hvað börnin eru duglega að borða 🥰

Börnin í 3. bekk héldu í Leynigarðinn við Brekkustíg í dag og leituðu að ánamöðkum en þeir eru viðfangsefni í náttúrugre...
09/09/2026

Börnin í 3. bekk héldu í Leynigarðinn við Brekkustíg í dag og leituðu að ánamöðkum en þeir eru viðfangsefni í náttúrugreinaþema haustsins 🪱 Ekki þurfti að leita lengi að möðkum og voru þeir skoðaðir í bak og fyrir 🙌 Líkamleg einkenni ánamaðka sem öll voru búin að fræðast um í vikunni voru rannsökuð 🔬 Nokkur börn tóku meira að segja eftir blóði á belti ánamaðks 🤯

Gauti skákennari og keppendurnirDagur, Helen Hekla, Tauras og Jón Fenrir munu taka þátt í European Continental Stage of ...
05/09/2026

Gauti skákennari og keppendurnir
Dagur, Helen Hekla, Tauras og Jón Fenrir munu taka þátt í European Continental Stage of the FIDE ISC World Schools Team Championship 2026 🙌 ♟️við erum ákaflega stolt af börnunum okkar og hlökkum til að fylgjast með 💛💚🩷🩵

Address

Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544117150

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vesturbæjarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share