Eins og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði segir þá koma umhverfismálin inn á öll svið samfélagsins. Sæktu endilega um :D
Environment and Natural Resources at University of Iceland
Tinna Hallgrímsdóttir segir frá því hvað henni fannst áhugaverðast við umhverfis- og auðlindafræði. Sæktu um fyrir 15. apríl :)
09/04/2026
Haustið 2025 hófst nýtt meistaranám í sjálfbærum landbúnaði og byggðaþróun, sem er samstarfsverkefni Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands og var styrkt af Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu (HVIN). Nú þegar fyrsta skólaárið er að líða undir lok er ljóst að mikil þörf var fyrir slíka námsleið og að samstarfið milli skólanna hefur reynst afar öflugt.
Námið er byggt á þverfaglegri nálgun þar sem landbúnaðarvísindi, umhverfisvísindi, nýsköpun, félagsvísindi og byggðaþróun eru samþætt. Markmiðið er að námið skili út sérfræðingum í samfélagið sem geti leyst raunverulegar áskoranir í landbúnaði og fæðukerfum framtíðar hér heima og alþjóðlega, með sjálfbærni að leiðarljósi. Námið er kennt á ensku
Aðdragandi námsins var umfangsmikill – meðal annars var haldin fjölmenn vinnustofa sumarið 2024 í samstarfi við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, þar sem 43 fulltrúar úr ólíkum stofnunum og fyrirtækjum komu saman og lögðu sitt af mörkum við mótun námsins.
Í fyrsta námsárganginum hefur þegar skapast tenging við atvinnulíf og opinberar stofnanir, ekki síst í gegnum vettvangsferðir og heimsóknir nemenda til ýmissa aðila og stofnana. Nemendur hafa sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa meðal annars að sjálfbærri framleiðslu, nýsköpun, fæðuöryggi, loftslagsmálum, byggðaþróun og hringrásarhagkerfi. Þá hefur samkennsla og þekkingarflæði á milli skólanna reynst mikil styrking fyrir námið og kennarar beggja háskóla koma að bæði kennslu og leiðsögn.
Lagt er upp með að við stofnun námsleiðarinnar sé verið að mæta brýnni þekkingarþörf er varðar samspil landbúnaðar, fæðuöryggis og búsetu í dreifbýli. Nám í sjálfbærum landbúnaði er því orðinn mikilvægur vettvangur fyrir þau sem vilja taka þátt í að þróa íslenskan landbúnað, fæðukerfi og hinar dreifðu byggðir með framtíðina að leiðarljósi.
Opið er fyrir umsóknir í námið og rennur frestur út 15. apríl næstkomandi. Við hvetjum öll til þess að fara inn á heimasíðuna www.haskolanam.is til þess að kynna sér námið betur, en hægt er að innrita sig í það í gegnum annaðhvort umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands eða búvísindi við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Sæktu um í umhverfis- og auðlindafræði - umsóknarfrestur til 15. apríl næstkomandi 😃
27/03/2026
20 ára afmæli umhverfis- og auðlindafræðinnar var haldið með pompi og pragt í gær. Viðburðurinn heppnaðist frábærlega þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn og viljum við þakka gestum, fyrirlesurum og öllum sem komu að undirbúningi þessa viðburðar kærlega fyrir sitt framlag. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir :)
26/03/2026
Lára Jóhannsdóttir, prófessor og umsjónarkennari í umhverfis- og auðlindafræði var í viðtali á Bylgjunni í morgun þar sem hún fór yfir tuttugu ára sögu námsins.
Í dag kl. 15:00 ætlum við að fagna að 20 ár (!) eru liðin frá því að nám í umhverfis- og auðlindafræði hófst við Háskóla Íslands. Viðburðurinn fer fram í fyrirlestarsal Eddu og hefst kl. 15:00.
https://tinyurl.com/2my7b4uk
24/03/2026
„Á komandi árum verður áfram lögð áhersla í náminu á þverfaglega nálgun á helstu áskoranir samtímans, sérstaklega loftslagsbreytingar, sjálfbæra auðlindanýtingu, orkuskipti, náttúruvernd og hringrásarhagkerfi,“ segir Lára Jóhannsdóttir, prófessor og umsjónarkennari náms í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ. Sjá nánar í frétt á vefsíðu HÍ https://hi.is/frettir/nam_i_umhverfis_og_audlindafraedi_i_bodi_i_hi_i_20_ar
19/03/2026
Jón Geir Pétursson kynnti verkefnið "Hvaða þættir móta viðhorf íbúa nærsamfélaga gagnvart virkjunum: Bætt stefnumótun og ákvarðanataka" á hátíðlegri athöfn Landsvirkjunar í gær. Verkefnið var eitt af 23 verkefnum sem hlutu styrk úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar í ár. David Cook Nína M. Saviolidi
70 milljónir til 23 verkefna Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar úthlutaði styrkjum til 23 rannsóknarverkefna í ár. Þetta er í 19. skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri, eða 137. Í fyrra voru þær 88 sem þá var met.
16/03/2026
🌲The ENR programme just hosted a three-day workshop on forest ecosystem services, involving specialists from all Nordic states on the aspects of values, valuation, and governance. Following receipt of funding from SNS, in addition to this networking event, this recently established group will collaborate in 2026 on one forthcoming academic publication related to the subjects of focus in the workshop, and then a derived policy brief🌲 Jón Geir Pétursson David Cook
11/03/2026
Check out this interesting documentary which GAIA is showing in Askja on Friday :D P.S. Entry is free of charge....
04/03/2026
20 ára afmælisveisla umhverfis- og auðlindafræði verður haldin fimmtudaginn 26. mars í hátíðarsalnum í Eddu í Háskóla Íslands. Nánari dagskrá verður birt síðar en við hvetjum öll til þess að koma og fræðast, gleðjast og njóta með okkur :)
20/11/2025
On Thursday next week (Nov 27th) there will be this interesting panel discussion in Edda at the University of Iceland which is organised by the Ministry of Foreign Affairs, the University of Iceland and the Nordic Africa Institute. The panel experts will be discussing some of the trends and challenges facing Africa as a world region including issues relating to population growth, climate adaptation, democratic governance, youth activism, and migration.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Telephone
Website
Address
Reykjavík
101