Home
>
Iceland >
Reykjavík >
Fyrstahjálp GiR / Börn og skyndihjálp, fyrir foreldra og aðstandendur barna
Fyrstahjálp GiR / Börn og skyndihjálp, fyrir foreldra og aðstandendur barna
Share
Hér getur þú sóst eftir námskeiðum í skyndihjálp. Fjölbreytt námskeið sem sniðin eru eftir þínum þörfum. HVAÐ ER FYRSTAHJÁLP GiR? Slys og veikindi barna.
Námskeið fyrir alla, unga sem aldna, krakka, barnapíur, foreldra, ömmur og afa... alla. Um er að ræða námskeið ætluð til dæmis nýbökuðum foreldrum, námskeið sem snúa að öryggi barna og viðbrögðum ef eitthvað kemur fyrir. Námskeið kjörin fyrir alla, ekki bara þá sem eru nýir foreldrar. Það er sama hvort sem við erum að tala um foreldra, afa og ömmur, systkini, barnapíur, unglinga eða aðra. Endilega
________________________________________
AÐSTAÐA OG BÚNAÐUR.
________________________________________
Ég hef aðgang að sal sem tekur allt að 100 manns í sæti, hljóðkerfi, skjávarpi og fleira. Mjög góð aðstaða til námskeiðshalds. Kennsludúkkur og önnur tæki skaffa ég einnig og er innifalið í námskeiðverði.
Þá er boðið uppá fisléttar veitingar, kaffi og "meððí" á meðan námskeiði stendur.
________________________________________
HVER ER SVO ÉG?
________________________________________
Kennarinn, ég, er Guðmundur Ingi Rúnarsson. Menntun fyrir þessa kennslu hjá mér er eftirfarandi: Starfandi leiðbeinandi frá Rauða Kross Íslands, frá 2011 og hef talsverða reynslu í kennslu þessu tengdu. Er starfandi lögreglumaður og búinn að starfa sem slíkur í síðan 2002. Þá er ég menntaður sjúrkaflutningamáður, frá 2012 (EMT-B) og stundaði nám þar frá Sjúkraflutningaskólanum á Akureyri. Hef safnað að mér ýmsum fróðleik og reynslu á þessu tímabili og nýti þá reynslu í kennslunni. Hef það að markmiði í kennslunni að koma mikilvægum atriðum frá á hnitmiðaðan en skemmtilegan hátt. Það er markmiðið að allir sem ljúka námskeiði telji sig tilbúna að bregðast við og gera sitt til að bjarga lífi. Þú getur skipt máli og lagt mikið að mörkum þegar óvænt vá eða hættuástand skapast.
Þá styðst ég við stutt myndskeið, fyrirlestra, verklegar æfingar, samvinnu og umræður við kennsluna. Lögð áhersla á að þetta séu virk samskipti leiðbeinandans og nemandans svo allir hafa gaman af.
Þú munt fara heim af námskeiðinu margfallt öruggari og reiðubúinn að gera þitt þegar á reynir, því jú þú skiptir máli.