21/08/2026
Kæru foreldrar.
Valdimar Víðisson heiti ég og hef tekið við sem skólastjóri Húsaskóla þetta skólaár. Ég kem til starfa fullur tilhlökkunar og er strax farinn að finna fyrir þeim góða anda sem ríkir í skólanum.
Ég hef starfað við grunnskóla í rúm 20 ár og veit vel hversu mikilvæg góð samskipti eru. Ég legg mikla áherslu á opið og gott samtal og að foreldrar finni að dyr skólans standi þeim ávallt opnar. Gott samstarf heimilis og skóla er einn af hornsteinum farsællar skólagöngu barna okkar. Við erum nefnilega öll í sama liðinu og höfum sama markmið en það er að börnunum okkar líði vel, þau finni til öryggis og fái tækifæri til að vaxa og dafna.
Á mánudaginn hefjum við svo skólaárið formlega með skólasetningu. Hún verður með breyttu sniði frá því sem áður hefur tíðkast og eins og þegar hefur verið kynnt mæta árgangarnir á mismunandi tímum en ekki allir í einu. Við vonum að með því skapist notaleg og persónuleg stund fyrir nemendur og foreldra í upphafi skólaársins.
Ég hlakka til að sjá ykkur á mánudaginn, hitta ykkur og börnin ykkar og hefja nýtt og spennandi skólaár í Húsaskóla ❤️
Hlýjar kveðjur,
Valdimar Víðisson
Skólastjóri Húsaskóla