Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík

Share

Barnaskólinn er sjálfstætt rekinn skóli sem starfar á grundvelli jafnréttis, umburðarlyndis og virðingar fyrir einstaklingnum.

Skólabragur og stofnanamenning Barnaskólans byggir á meginreglum Hjallastefnunnar. Þar er kveðið á um þau viðhorf til barna og fjölskyldna sem starfsmannahópurinn sameinast um að útfæra á hverju skólaári. Hann er einn af fjórum grunnskólum Hjallastefnunnar ehf og eru lykilhugtök okkar m.a. virðing, agi, sjálfstraust, kærleikur og frumkvæði. Við leggjum mikið upp úr einstaklingsmiðuðu námi í litlum

25/03/2026

Kæru fjölskyldur.

Almannavarnir og Reykjavíkurborg hafa gefið út tilmæli um að fólk haldi sig heima á meðan óveðrið gengur yfir á morgun fimmtudag. Appelsínugul viðvörun er í gildi frá 7-13 á morgun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu.

FÓLK ER HVATT TIL AÐ HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU.

Í grunn- og leikskólum verður aðeins lágmarksopnun með fáu starfsfólki.

Þeir foreldrar sem nauðsynlega þurfa að koma með börn sín skólann á morgun eru beðin um að svara þessum pósti og láta okkur vita. Þau börn sem þurfa að mæta koma í Skógarhlíð.

Hefðbundið leikskóla- og frístundastarf hefst eftir að viðvörun fellur úr gildi. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjölmiðlum.

Að öllu óbreyttu opnum við kl 13:00 og því verður ekki boðið upp á hádegismat á morgun.

Skóladagatal 27/07/2022

Skóladagatal Barnaskólans fyrir skólaárið 2022-2023

Skóladagatal Leikskóli

11/07/2022

Óskilamunir í Barnaskólanum
Mánudaginn, 11.06 og þriðjudaginn 12.06 er hægt að sækja óskilamuni í Barnaskólann.
Á miðvikudag förum við með allt í Rauða krossinn.

10/05/2022

Barnaskólabörn senda Betu kennaranum sínum og systrum stuðningskveðjur til Ítalíu á þessum fallega degi 💙🤍❤️

06/05/2022

Kæru fjölskyldur
Við fengum frábærar fréttir í gær þegar borgarráð samþykkti framtíðarsamsstarf við okkur.
Það er mikill gangur í málum núna sem snúa að því að skólastarfið verði órofið. Verkefnin eru stór og snúast um tvennt:
Bráðabirgðahúsnæði sem yrði notað frá ágúst 2022.
Langtímalausn í Öskjuhlíð.
Varðandi bráðabirgðalausn þá erum við á fullu að vinna í að ganga frá bráðabirgðahúsnæði í Skógarhlíð en þar er stefnan að við verðum, bæði Askja og Barnaskólinn næsta skólaárið, vonandi meira að segja ekki allt skólaárið. Húsnæðið hentar vel fyrir okkar starfsemi og þarf ekki að gera miklar breytingar á því.
Í vikunni höfum við skoðað húsnæðið með Heilbrigðiseftirliti, safnað gögnum og unnið að umsókn um bráðabirgðaleyfi fyrir starfsemina í þessu húsnæði, til að brúa bilið þangað til við förum vonandi í Keiluhöll. Sú umsókn fer til ráðuneytis á morgun, föstudag og við krossum fingur eftir jákvæðri og skjótri afgreiðslu.

Hvað langtímalausn varðar þá er búið að skrifa undir viljayfirlýsingu eins og við upplýstum ykkur um á föstudaginn s.l. Við skiluðum gögnum til borgarráðs á mánudaginn var og í dag samþykkti borgarráð samstarfsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Hjallastefnunnar. Þar er Hjallastefnunni gert kleift að leigja húsnæði í Öskjuhlíðinni í 10 ár. Samhliða mun borgin annað hvort kaupa það húsnæði undir þjónustu Hjallastefnunar eða byggja nýtt skólahúsnæði. Þessi stuðningur skýtur stoðum undir framtíðarstarfsemi Hjallastefnunar og gefur færi á aukinni starfsemi.

Enn og aftur erum við að njóta stuðnings og aðstoðar frá frábærum og öflugum foreldrum sem eru að vinna dag og nótt í þessu með okkur, algjörlega magnaður hópur.

Áfram gakk!

Hlý kveðja,
Linda Björk og Silja, skólastýra Öskju

https://bskrvk.hjalli.is/frettir/almennt/Borgarrad-samthykkti-framtidarsamsstarf-vid-okkur/

Áframhaldandi samstarf við Hjallastefnuna og nýr ungbarnaleikskóli 05/05/2022

Framtíð Hjallastefnunnar er á krossgötum en gagnkvæmur vilji er til þess að standa vörð um skólasamfélagið sem nú er í Öskjuhlíð og verður því lögð áhersla á að tryggja framtíðarlausn um húsnæðismál.

Áframhaldandi samstarf við Hjallastefnuna og nýr ungbarnaleikskóli Ný samstarfsyfirlýsing Hjallastefnunnar og Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarráði í dag. Samkvæmt henni skuldbindur Hjallastefnan sig til að gera tímabundinn leigusamning um húsnæði og flytja skólastarf sitt úr núverandi húsnæði við Nauthólsveg, vegna uppbyggingar nemenda....

29/04/2022

Kæru starfsfólk og kæru foreldrar.

Við höfum öll beðið með öndina í hálsinum eftir að fá niðurstöðu í húsnæðismál skólasamfélagsins okkar hér í Öskjuhlíð.

Eins og þið vitið eflaust öll vorum við búin að leggja mikla vinnu í að reyna komast í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg, fá allskonar úttektir og gera mikla kostnaðargreiningu. Samningar við eiganda báru því miður ekki árangur en hann vildi ekki standa við þau atriði sem búið var að undirrita í viljayfirlýsingu og við treystum okkur ekki áfram í samningaviðræður við hann.

Þarna töpuðum við dýrmætum tíma og lítill sem enginn tími til stefnu. Við gáfumst samt ekki upp og erum nú vonandi komin með enn betri niðurstöðu en í dag var undirrituð viljayfirlýsing við eigendur að Flugvallarvegi 3-3A þar sem Mjölnir er núna, gamla Keiluhöllin. Í viljayfirlýsingu er gert ráð fyrir að húsnæðinu verði gjörbreytt fyrir okkar starfsemi. Við erum gríðarlega spennt fyrir þessum möguleika en það er enn mikil vinna sem á eftir að fara fram og þó að allt gangi upp þá verður framkvæmdum ekki lokið þegar börnin okkar koma úr sumarfríi.

Við höfum verið með alla anga úti við að leita að bráðabirgðahúsnæði fyrir báða skólana fyrir næsta skólaár. Þar eru nokkrir möguleikar á borðinu.

Við erum búin að vera í allskonar viðræðum sem hafa verið viðkvæmar og höfum við því miður ekki getað upplýst ykkur fyrr en nú um stöðu mála. Það var erfitt þegar staðan var þröng að geta upplýst ykkur, við þurftum fyrst að finna leiðina. Nú erum við hins vegar komin með bolta sem hægt er að elta. Þá er verðmætt að fá ykkur öll aftur inn í ferlið.

Við gerum áfram allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja framtíð skólasamfélagsins með hópi magnaðra foreldra sem eru að leggja mikla vinnu og ómældan tíma í að láta þetta allt ganga upp með okkur, ómetanlegt.

Hlýjar kveðjur,

Linda Björk og Silja

https://bskrvk.hjalli.is/frettir/almennt/-Viljayfirlysing-um-nyju-Hollina-okkar/

18/03/2022

Kæru fjölskyldur.

Í gær birtist frétt á DV um að Hjallastefnuskóli í Reykjavík hafi sagt um barnshafandi deildarstjóra og að viðkomandi deildarstjóri hafi unnið dómsmál gegn okkur.

Hjallastefnan vill koma því á framfæri að það er ekki rétt að um leikskóla á vegum Hjallastefnunnar sé að ræða og harmar að slík mistök hafi átt sér stað.

Þessi frétt var meiðandi fyrir Hjallastefnuna og það sem þar kom fram er gegn okkar gildum og okkar kærleiksríka starfsumhverfi en við leggjum okkur alltaf fram við að sýna börnum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki okkar virðingu.

DV hefur nú uppfært fréttina og beðist afsökunar.

Kærleikskveðja

23/02/2022

Kæru vinkonur og vinir, foreldrar og fjölskyldur.

Í kvöld, klukkan 19:00, fer fram fundur með foreldrum og fjölskyldum barna í Hjallastefnuskólunum Barnaskólanum í Reykjavík, Öskju og Laufásborg í Háskólanum í Reykjavík, í stofu M101.
Það eru ekki allir sem hafa möguleika á því að mæta til fundar, eðlilega. Vegna þessa verður fundinum streymt í gegnum Zoom.

Við getum ekki ábyrgst að gæðin verði eins og best verður á kosið, þar sem við erum ekki með fullkominn útsendingarbúnað. Við gerum okkar besta í stöðunni.

Við hlökkum mikið til þess að sjá ykkur og eiga samtal um skólastarf Hjallastefnunnar í Reykjavík.

Með kærleikskveðjum,
Bóas H.

Hlekkur á fund:

Join our Cloud HD Video Meeting Zoom is the leader in modern enterprise video communications, with an easy, reliable cloud platform for video and audio conferencing, chat, and webinars across mobile, desktop, and room systems. Zoom Rooms is the original software-based conference room solution used around the world in board, confer...

21/02/2022

Kæru vinkonur og vinir, foreldrar og fjölskyldur barna í Hjallastefnuskólum í Reykjavík.
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunnar þykir okkur ekki stætt að halda okkur við fund í kvöld. Okkur þykir miður að þurfa að fresta fundi, en þar sem veðurspá varar við ofsaveðri þá komumst við ekki hjá því að fresta fundi.
Fundurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík, stofum M101 og V101 (gengið er inn um aðalinngang og stofurnar eru þær fyrstu á langa ganginum sem liggur út frá miðju hússins), fundur hefst klukkan 19:00 þann 23. febrúar. Háskólinn í Reykjavík stendur við Menntaveg 1.

Dagskrá fundar:
Fundur settur og fundarstjóri/stýra kynnt
Fulltrúar Hjallastefnunnar í viðræðunefnd Hjallastefnunnar og Reykjavíkurborgar kynna stöðu mála og sameiginlega stöðumatsskýrslu
Umræður um bráðabirgðahúsnæði
Almennar umræður
Við hlökkum mikið til að hittast og samfagna eftir þolinmæðina, styrkinn og samstöðuna sem við höfum öll skynjað á þessum erfiðu tímum.
Með kærleikskveðjum,
Bóas Hallgrímsson framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Nauthólsvegur 87
Reykjavík